Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Blaðsíða 68
Á VÍÐ OG DREIF
FRÁ LAGADEILD HÁSKÓLA ÍSLANDS
DEILDARFRÉTTIR 1997
1. ALMENNT
Á haustmisseri 1997 var nemendafjöldi í lagadeild sem hér segir: Á fyrsta ári
184, á öðru ári 62, á þriðja ári 58, á fjórða ári 91 og á fimmta ári 56, eða samtals
452 laganemar. Tíu prófessorar eru nú við lagadeild og tveir dósentar. Á
háskólaárinu 1996-1997 voru haldnir sex deildarfundir, fjórir kennarafundir og
fjórir fræðafundir í lagadeild.
Ymsar nefndir voru skipaðar til að annast einstaka málaflokka í samræmi við
þá stefnu deildarforseta að auka valddreifingu við stjórnun lagadeildar. Verður
þeirra, auk fastanefnda frá fyrri tíma, getið hér á eftir.
2. INNRI MÁLEFNI LAGADEILDAR
2.1 Húsnæðismál lagadeildar
a. Endurnýjun og viðhald
Hafist hefur verið handa við endurbætur og viðhald innanhúss í Lögbergi, en
það hefur sáralítið verið í um 20 ár. Byrjað var á efstu hæð, skipt þar um
gólfefni og málað í þeim hluta, sem nefndur er stjómsýsluhluti hússins.
Málverk eftir kunna listamenn prýða þar nú veggi og má segja að þessi hluti
hússins hafi fengið nokkra andlitslyftingu. I vor og sumar verður þessum
endurbótum haldið áfram í öðrum hlutum Lögbergs.
b. Aukið kennslurými
Á deildarfundum hefur ítrekað komið fram að brýnt sé að lagadeild fái til
afnota fleiri kennslustofur í Lögbergi, en aðrar deildir háskólans hafa haft afnot
af kennslustofum þar. Þá var einnig samþykkt á deildarfundi 19. desember 1997
að þess yrði farið á leit við yfirstjóm Háskólans að 4. hæð Lögbergs yrði
einungis nýtt undir skrifstofur kennara, fundarherbergi deildarinnar, kennara-
stofu og stjórnsýslu lagadeildar og að 2. og 3. hæð yrðu eingöngu nýttar í þágu
starfsemi deildarinnar.
152