Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Blaðsíða 25
Notkun ESBK á evrói sem reiknieiningu mun því leiða til einsleitrar
peningastefnu. í skilningi hagfræðinnar má því segja að sameiginlegum gjald-
miðli hafi verið komið á fót. A aðlögunartímanum má tilgreina fjárhæð í evrói,
eða í gjaldmiðli ríkis á evró-svæðinu án þess að það hafi nokkur áhrif á kaup-
getu fjárhæðarinnar. Hið endanlega, fastákveðna reiknigengi og meginreglurnar
um samhengið milli evrósins og gjaldmiðla þátttökuríkja tryggja þessa niður-
stöðu.
9. GILDI SAMNINGA
í sjöundu forsendu aðfararorða reglugerðarinnar er vísað til þeirrar almennt
viðurkenndu meginreglu, að gildistaka nýs gjaldmiðils hafi ekki áhrif á gildi
samninga og annarra réttarskapandi gerða, og að reglan skerði ekki almennt
samningsfrelsi. Þar sem aðilar samnings hafa komið sér saman um ákveðin
réttaráhrif í samningssambandinu með hliðsjón af gildistöku evrósins gildir sá
sérstaki samningur milli þeirra. Ráðið vísar til þess að það sé hagkvæmt að
staðfesta með skýrum hætti meginregluna um gildi samninga í tengslum við
gildistöku evrósins.29 Frávíkjanleg regla er í 3. gr. reglugerðarinnar um að
gildistaka evrósins:
- breyti ekki skilyrðum í löggerningum
- leysi ekki undan skyldu til að efna skuldbindingu og réttlæti ekki vanefndir
löggernings
- veiti aðila ekki rétt til að breyta eða segja upp löggerningi
I sjöundu forsendu kemur skýrt fram að reglan um gildi samninga feli í sér,
að ekki skuli breyta umsömdum vöxtum vegna gildistöku evrósins. Öll slík
atriði ráðast af ákvæðum samningsins sjálfs.
I mörgum samningum, sérstaklega í alþjóðlegum lánssamningum, eru vextir
oft ákveðnir viðmiðunarvextir, s.s. FIBOR, sem stendur fyrir „Frankfurt
Interbank Offered Rate“.30 Reglugerðimar hafa ekki að geyma ákvæði um álita-
efni sem kunna að rísa í þessu efni,31 en ganga verður út frá því, í því tilviki að
ágreiningur rísi, að miða verði við sambærilega viðmiðunarvexti.32 í Frankfurt
mun DEM-FIBOR t.d. verða leyst af hólmi af evró-FIBOR.
29 Sbr. einnig neðanmálsgrein 10.
30 Þetta eru þeir vextir sem notaðir eru á peningamarkaði (millibankamarkaði) f Frankfurt og eru
birtir daglega í kerfi þeirra sem þátt taka. Viðmiðunarvextir á öðrum fjármálamörkuðum eru
auðkenndir með svipuðum hætti, t.d. LIBOR fyrir fjármálamarkað í London.
31 Ekki var talin ástæða til að mæla fyrir um slík álitaefni með hliðsjón af þeim afbrigðum sem eru
við notkun viðmiðunarvaxta og áhrifa á þá einkaaðila sem birta vextina, sbr. Euro Papers. „Legal
framework for the use of the euro“, bls. 9.
32 Framkvæmdastjórnin hefur bent á að reynslan sýni að ,,[if] parties were not able to agree on the
replacement of a reference rate, courts have in general tried to ensure the execution of the contract
by taking a new reference rate which is as close as possible to the old one“, sbr. European Economy.
„Legal Framework for the use of the euro“, bls. 5.
109