Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Blaðsíða 10

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Blaðsíða 10
undanhaldi, eins og hið myndarlega framtak dómsmálaráðherra varðandi heim- ilisofbeldi á íslandi bendir vonandi til,8 þó ekki sé eftirsóknarvert að sjá fréttir af fjölskylduofbeldi með stríðsfyrirsögnum í fjölmiðlum eins og við sjáum reglulega með götuofbeldið. Það sem gæti stutt það mat að ofbeldi sé orðið grófara og alvarlegra en áður er að samkvæmt gögnum slysadeildar Sjúkrahúss Reykjavíkur9 hefur áverka- mynstrið breyst og færst frá andliti yfir í aðra viðkvæmari líkamsparta. Það sem gæti hins vegar mælt á móti því er að samkvæmt alþjóðlegum stöðlum yfir alvarleika ofbeldisáverka virðist samt sem alvarleiki brotanna hafi ekki aukist. En skýringar á auknum áhyggjum af afbrotum og ofbeldisverkum eru fleiri. í rannsóknum höfundar hefur komið í ljós að umfjöllun fjölmiðla um afbrot er mun meiri10 og jafnvel hasarkenndari á þessum áratug en áratugina þar á undan. Fjölmiðlar hafa í auknum mæli beint kastljósi sínu að afbrotum, ekki síst ofbeldismálum, sem hefur að öllum líkindum mótað viðhorf borgaranna til þessa málaflokks. Afbrot fela í sér dramatík og spennu, skúrka og fómarlömb, sem virðist vera vinsælt fréttaefni og selja því vel sem hlýtur að skipta máli í umhverfi þar sem markaðurinn ræður. Afbrot eru m.ö.o. í raun orðin eftir- sóknarverð söluvara í fjölmiðlaheiminum þó að þetta sé vissulega að einhverju leyti breytilegt eftir einstökum fjölmiðlum. Það má því vafalítið, að hluta til a.m.k., skýra auknar áhyggjur íslendinga af ofbeldi og öðmm afbrotum með auknum áhuga fjölmiðla á þessum málaflokki. Fregnir af afbrotum hafa jafnvel verið fluttar svo til beint af vettvangi inn í stofur landsmanna og þetta hefur óneitanlega áhrif á skynjun okkar á vanda- málum samtímans. Fjölmiðlar eru, hvort sem okkur líkar betur eða verr, gluggi okkar að samfélaginu og veruleika þess. Rannsóknir erlendis sýna sömuleiðis að jafnvel þó afbrotum og ofbeldisglæpum fjölgi ekki telja sífellt fleiri afbrot og ofbeldi vaxandi vanda sem fræðimenn hafa tengt við umfjöllun fjölmiðla (Maguire og Pastore, 1995). En þótt vandi vegna afbrota virðist minni hjá okkur en mörgum nágranna- þjóðanna er fjöldi afbrota samt sem áður verulegt áhyggjuefni sem krefst óhjá- kvæmilega markvissra viðbragða af hálfu okkar allra. Ekki síður er mikilvægt að hafa í huga að við höfum alla burði til þess að betrumbæta ástandið. 4. ÚRRÆÐI SAMFÉLAGSINS Hvað er þá helst til ráða? Það sjónarmið heyrist oft að hertar refsingar og auknar fangelsanir séu svarið við aukningu afbrota. Þetta hljómar í fljótu bragði bæði sannfærandi og skynsamlegt, enda eiga slíkar hugmyndir jafnan mikinn hljómgrunn meðal almennings og stjómmálamanna á framabraut. Hertar refs- 8 Skýrsla dómsmálaráðherra um orsakir, umfang og afleiðingar heimilisofbeldis og annars ofbeldis gegn konum og börnum. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, febrúar 1997. 9 Sjá tilvísun 5 hér að framan. 10 Sjá tilvísun 2 hér að framan. 94
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.