Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Side 12

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Side 12
stórum fjárhæðum, og því eðlilegt að viðurlögin taki mið af þessum ásetningi. Jafnframt er ljóst að væri tekið hart á brotum af þessu tagi væri það líkast til tekið með í reikninginn af hinum brotlega og fælingarmáttur löggjafarinnar verður því raunverulegur - sérstaklega ef viðkomandi er lítið tengdur afbrota- lífemi að öðru leyti sem reyndar er yfirleitt raunin. Ef helstu vina- og kunn- ingjatengsl viðkomandi brotamanns tengjast hins vegar líferni afbrota sýna rannsóknir að það dregur úr vamaðaráhrifum viðurlaga. Vitneskja um þyngd refsinga virðist því hafa mismunandi áhrif á ólíka borgara (Tunnell, 1992). Síðan er annar flötur sem krefst skoðunar. Ekki em öll afbrot kærð til lög- reglu og því vandséð að hertar refsingar slái á tíðni þessara duldu brota. Jafnframt er ljóst að ekki upplýsast öll mál sem kærð em til lögreglu, stundum ekki nema minnihluti mála. Ef líkumar á að nást em hverfandi skipta harðar refsingar því einar og sér í raun ákaflega litlu (Jareborg, 1995), nema e.t.v. sem einhvers konar táknrænn gemingur gagnvart almenningi og stjórnmálamönnum sem fá á tilfinninguna að verið sé að gera eitthvað róttækt í málunum. Almennt séð hafa rannsóknir þó sýnt að uppljóstrun brota og áreiðanleiki viðurlaga hefur að jafnaði meiri fælni í för með sér en áhersla á hertar refsingar eingöngu (sjá t.d. Conklin, 1998: 481 og Decker, et. al, 1993). Ef líkurnar á að nást em tals- verðar, málsmeðferð skjót og markviss í réttarvörslukerfinu er í raun óþarfi með öllu að refsa meir en sem nemur tilteknu hlutfalli af alvarleika afbrotsins til að hafa áhrif á tíðni brota.14 Þetta hlutfall er skilgreint í lögum, reyndar með talsverðum sveigjanleika, sem gefur dómsvaldinu nauðsynlegt svigrúm til að meta einstök mál og um þetta hafa skapast dómvenjur sem ber að virða. í þessu samhengi ber jafnframt að brýna að árvekni og aðgæsla borgaranna og sam- ræmdar aðgerðir og eftirlit lögreglu skiptir einnig miklu máli gagnvart hinum ýmsu brotum eins og innbrotum, þjófnuðum og mörgum ofbeldisbrotum. Aðgerðir af þessu tagi hafa sýnt að hafa áhrif á tíðni brota (Clarke, 1992). Alþekkt er í rannsóknum, bæði hér heima og erlendis, að almenningur telur iðulega að refsingar séu of vægar (sjá t.d. Ray, 1982). Jafnvel í Bandaríkjunum sem beita að jafnaði harðari viðurlögum og eru jafnframt með hæstu tíðni fangelsana á Vesturlöndum vilja borgaramir samt sjá harðari refsingar. Reyndar hafa sumar rannsóknir sýnt að þekking almennings á viðurlagakerfinu er í raun oft ekki ýkja mikil. Hugmyndir borgaranna em stundum óljósar um refsimat og byggja á brotakenndum fregnum fjölmiðla sem iðulega hafa tilhneigingu til að varpa ljósi á einstök óvenjuleg mál en ekki á heildina sem e.t.v. er heldur ekki hægt að ætlast til af þeim (Roberts og Stalans, 1997). Væntingarnar til dóms- kerfisins em því miklar en stundum óraunhæfar. Sumir álíta jafnvel að vægir dómar séu skýringin á fjölda glæpa og alvarleika þeirra. En þó réttarkerfið 14 Þetta er í raun kjaminn í réttarheimspeki Cesares Beccaria (1764, 1963) en hugmyndir hans höfðu umtalsverð áhrif á þróun réttarfars á Vesturlöndum. Beccaria áleit að það væri árangursríkara til að halda glæpum niðri að leitast við að tryggja uppljóstrun brota og skilvirka málsmeðferð frekar en einblína á refsiþyngdina. 96

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.