Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Síða 59

Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Síða 59
Samkvæmt þessari bókun skuldbinda EFTA-ríkin sig, án þess þó að fram- selja löggjafarvald til stofnana EES, til að haga innanlandslöggjöf með þeim hætti að EES-reglur gangi framar réttarreglum landsréttar ef þær fá ekki sam- rýmst.53 Af þeim ákvæðum sem rakin hafa verið verður auðveldlega ráðið hversu mikil áhersla er lögð á einsleitni innan Evrópska efnahagssvæðisins. Að lokum er rétt að vísa til 4. gr. EES-samningsins en þar er lagt bann við hvers konar mismunun á grundvelli ríkisfangs á gildissviði samningsins nema annað leiði af einstökum ákvæðum hans. Ákvæðið stuðlar að því að sömu reglur eigi við alla sem innan svæðisins búa.54 3.4 Staða einstaklinga innan Evrópska efnahagssvæðisins Það hefur sérstaka þýðingu að kanna réttarstöðu einstaklinga á Evrópska efnahagssvæðinu. Er EES-samningnum einungis ætlað að hafa áhrif í sam- skiptum þjóða á milli eða skapar hann einstaklingum beinan rétt í einhverju formi? Margt bendir til þess að svo sé. Fyrst skal það nefnt að flest efnisákvæði samningsins miða að því að setja samskiptareglur milli yfirvalda og einstaklinga eða einstaklinganna sín á milli, sbr. II., III. og IV. hluta EES-samningsins. Reglumar leggja sumar hverjar einstaklingum eða lögaðilum skyldur á herðar, sbr. samkeppnisákvæðin í 53. og 54. gr. Eru jafnvel heimildir til að sekta einstaklinga fyrir brot gegn þessum reglum og eru ákvarðanir ESA og framkvæmdastjórnarinnar sem leggja slíkar fjárskuldbindingar á aðra aðila en ríki fullnustuhæfar, sbr. 110. gr. EES-samn- ingsins. Með þessari tilhögun hefur EES-samningurinn bein áhrif á líf og réttar- stöðu einstaklinga sem búa á Evrópska efnahagssvæðinu. Enda segir í áttunda lið inngangsorða samningsins að samningsaðilar séu sannfærðir um „að ein- staklingar muni gegna mikilvægu hlutverki á Evrópska efnahagssvæðinu vegna beitingar þeirra réttinda sem þeir öðlast með [samningnum] og þeirrar vemdar dómstóla sem þessi réttindi njóta“. Vert er að gefa því gaum að minnst er á réttindi sem einstaklingar öðlast með samningnum og að þau réttindi njóti vemdar dómstóla. Tilvitnuð setning veitir vísbendingu í þá átt að EES-samn- 53 Bókun 35 er hluti af EES-samningnum, sbr. a-lið 2. gr. íslenska ríkið leitaðist við að fullnægja skyldu sinni samkvæmt bókuninni með 3. gr. laga um Evrópska efnahagssvæðið nr. 2/1993. Þar segir: „Skýra skal lög og reglur, að svo miklu leyti sem við á, til samræmis við EES-samninginn og þær reglur sem á honum byggja". Davíð Þór Björgvinsson telur vafasamt að 3. gr. laga nr. 2/1993 fullnægi þeim skyldum sem leiða af bókun 35, sjá bls. 150-155. Ákvæði norskra laga sem ætlað er að uppfylla skuldbindingar samkvæmt bókun 35 er að finna í 2. gr. laga 109/1992 (lov nr. 112 av 27. november 1992 om gjennomfpring i norsk rett av hoveddelen i Avtale om Det europeiske pkonomiske samarbeidsomráde (E0S) mv.). Um það fjalla Henrik Bull: „E0S-avtalen - litt um avtalens struktur og om prinsippene for gjennomfpring i norsk rett“. (1992) LoR, (Henrik Bull) bls. 599-601 og Fredrik Sejersted, bls. 139-143. 54 Sjá um 4. gr. EES-samningsins Jorgen Aall: „Diskrimineringsforbudet etter E0S-avtalens artikkel 4“. (1994) TfR, bls. 1011-1027. Samanburð á grundvallarreglum EB- og EES-réttar er að finna hjá Stefáni Má Stefánssyni, bls. 33-54. 143
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.