Tímarit lögfræðinga - 01.05.1998, Qupperneq 69
c. Kennaraskrifstofur
Skortur er á skrifstofuhúsnæði m.a. fyrir aðjúnkta, stundakennara, gestafyrir-
lesara og fræðimenn aðra sem kysu að starfa við lagadeild. Er unnið að lausn
þess máls.
d. Umgengni í Lögbergi
Umgengni í Lögbergi hefur verið mjög ábótavant, einkum vegna þeirra
mörgu utanaðkomandi aðila sem þar hafa aðgang. Hefur deildarforseti hafið
átak til þess að úr verði bætt, en framtíðardraumur deildarinnar er, að hún fái
húsið ein til afnota fyrir starfsemi sína og verður vonandi svo, fyrr en seinna.
2.2 Tölvumál
Þótt tækjakostur lagadeildar hafi vissulega batnað mikið á undanförnum ár-
um, er langt frá því að tölvu- og tækjakostur deildarinnar sé viðunandi. Helgast
það fyrst og fremst af því hversu þröngur stakkur deildinni er skorinn við
úthlutun fjár til tækjakaupa. Þannig er nokkur hluti tækjakosts löngu orðinn
úreltur og tímabært að huga að endumýjun. Þá hefur þess ítrekað verið farið á
leit að komið verði á innanhússnettengingu í Lögbergi, en án árangurs.
Tölvuver laganema í Lögbergi hefur notið mikilla vinsælda laganema, sem
og annarra háskólanema, en þar sem tölvuverið var sett á fót til að fullnægja
þörfum þeirra laganema, sem ekki hafa aðgang að tölvum annars staðar, var
þess farið á leit við nemendur annarra deilda að þeir vikju fyrir laganemum, en
það hefur ekki enn náð fram að ganga.
2.3 Stöðumál
Breytingar sem orðið hafa á föstum stöðum innan deildarinnar em þær að
Páll Hreinsson var ráðinn dósent frá 1. september 1997 og Karl Axelsson var
endurráðinn aðjúnkt frá 1. október 1997 til tveggja ára.
Prófessorarnir Stefán Már Stefánsson, Jónatan Þórmundsspn og Þorgeir
Örlygsson fengu rannsóknarleyfi á árinu 1997.
Niðurstaða viðræðna lagadeildar og fulltrúa Tryggingastofnunar ríkisins
þann 15. apríl 1997 um prófessorsstöðu í almannatryggingarétti varð sú að full-
trúar Tryggingastofnunar töldu ekki raunhæft að ætla að stofnað yrði til sér-
stakrar prófessorsstöðu í almannatryggingarétti.
2.4 Bókasafnsmál
Á deildarfundi 23. október 1997 var samþykkt að deildarforseti tæki sæti í
samráðsnefnd á vegum rektorsembættis háskólans til að fjalla um úrbætur í
bókasafnsmálum lagadeildar, þar sem ófremdarástand ríkir í þessum efnum
vegna þess hversu litlu fjármagni er veitt til bókakaupa.
Fyrr um haustið hafði Viðar Már Matthíasson prófessor gert f.h. bókasafns-
nefndar ítarlega úttekt á bókasafnsmálum deildarinnar. Þar kom m.a. fram að
153