Tímarit lögfræðinga - 01.10.1998, Side 13
vitnað í dönsk lögskýringargögn. Hana beri að skilja svo að alltaf þegar sýnt er
fram á fjártjón hins slasaða vegna skertrar vinnugetu sé varanleg örorka hans
metin 15% þó tekjutapið nái ekki 15%.
Þessi lögskýring kemur greinilega fram í bók Jens Mpller, Erstatningsan-
svarsloven med kommentarer, 4. útgáfu 1996, bls. 116-117og 118, og eftir regl-
unni er farið í Danmörku.
A bls. 118 í bók Mpller segir svo um þetta:
Reglen í EAL § 5 om, at det ikke ydes erstatning ved et erhvervsevnetab pá mindre
end 15%, skal som nævnt forstás pá samme máde som reglen ASFL. Dette betyder,
at der ogsá i den private erstatningsret skal ydes erstatning med mindst 15%, hvis
tabet er klart og varigt.
Hvers vegna þessar mikilvægu skýringar um túlkun lagagreinarinnar komu
ekki fram í upphaflega frumvarpinu og hvers vegna þeirra var hvergi getið í
andsvörum við gagnrýni á greinina er illskiljanlegt.
Ef réttar upplýsingar hefðu fengist strax er ljóst að enginn hefði hreyft and-
mælum því að þannig túlkuð er greinin mun eðlilegri og réttlátari en breytt.
6.2 Margföldunarstuðullinn
Margföldunarstuðull 6. gr. er hækkaður úr 6,0 í 7,5 og 9. grein laganna
jafnframt breytt á þann hátt að bætur lækka frá 26 ára aldri en ekki frá 56 ára
aldri eins og í fyrra frumvarpinu.
Hvers vegna margföldunarstuðullinn 7,5 er nú valinn er ekki rökstutt í frum-
varpinu frekar en fyrri ákvörðun í eldra frumvarpinu. í báðum frumvörpunum
er þetta skýrt svo á bls. 13:
„Lágur margföldunarstuðull vegur á móti því hagræði sem tjónþoli hefur af
því að greiðslur frá þriðja manni dragast ekki frá skaðabótakröfu hans“.
Þessi skýring getur átt við þá sem slasast í umferðarslysum í vinnu eða á leið
til eða frá vinnu og fá bætur frá Tryggingastofnun ríkisins og slysatryggingu
launþega en hefur litla þýðingu fyrir aðra slasaða sem fá yfirleitt ekki bætur frá
þriðja manni. Er þá tjón þeirra fyrrnefndu ofbætt eða tjón hinna síðarnefndu
ekki bætt að fullu?
Hugsanlega liggja þarna að baki útreikningar tryggingastærðfræðings þó að
þess sé ekki getið. Ef svo er hefði átt að birta þá útreikninga í athugasemdum með
frumvarpinu. Margföldunarstuðullinn 7,5 virðist hins vegar hrein ágiskun til kom-
in vegna eftirfarandi fullyrðinga á bls. 13. Þar segir að fastur stuðull sé til þess
fallinn annars vegar „að einfalda ákvörðun bótafjárhæðar og hins vegar að komast
hjá miklum og tíðum sveiflum á bótafjárhæðum vegna breytinga á vöxtum“.
6.3 Lækkun bóta vegna aldurs
í frumvarpinu er reglum 1. mgr. 9. greinar um lækkun vegna aldurs breytt á
þann hátt að skerðingin byrjar við 26 ára aldur í stað 56 ára áður.
181