Ægir - 01.09.1996, Page 18
Friðrik A. Jónsson
Friðrik A. Jónsson og Simrad tengt
órafa böndum
í hugum þeirra, sem fylgst hafa með sjávarútvegi og fiskveiðum um
eitthvert árabil þá er fyrirtækið Friðrik A. Jónsson tengt norska fyrir-
tækinu Simrad órjúfanlegum böndum. Tæpast er til dæmis ofsagt að
ekki hafi verið til neitt það íslenskt síldveiðiskip á sjöunda áratugn-
um, sem ekki hafði um borð fiskleitartæki frá Simrad. í aukinni sam-
keppni hefur Simrad fyrirtækið, sem reyndar er alþjóðlegt fyrirtæki,
þó svo norskir aðilar eigi þar meirihluta hefur haldið velli og vel það.
Höfuðstöðvarnar eru enn í Noregi en auk þess eru deildir eða útibú ■
Danmörku, Englandi, Bandaríkjunum, Singapúr og Taiwan.
Að venju eru framleiðsluvörur Simrad
fyrirferðamiklar hjá fyrirtækinu Friðrik A.
Jónsson. í ár kom þaðan ný útgáfa af „son-
ar" en eitt slíkt tæki er þegar komið um
borð í Þerney einn af togurum Granda hf.
Þarna er um að ræða millistærð en auk
þess er lögð áhersla á stærri gerðir af „son-
ar" fyrir loðnuflotann, sem margir huga að
fyrir komandi loðnuvertíð. „Höfulínuson-
ar" frá Simrad hefur verið seldur mikið í
úthafsflotann.
Sjónsvið „sonar" tækisins frá Simrad
er 360° þannig að sjá má hvað gerist allt
um kring og það sem Simrad hefur
framyfir alla aðra keppinauta á markað-
inum er að tæki þeirra eru með 90°
halla, þannig að sjá má beint niður. Aðr-
ir eru með 60°.
Frá Simrad Anritsu er kynnt ný radar.
Hann er 24 mílna og er ætlaður fyrir
minni báta. Hann gefur mjög mikla mögu-
leika og er auk þess á hagstæðu verði. Þessa
ratsjá má tengja öllum jaðartækjum og á
skjánum er þrívíddarmynd.
Simrad Robertson hefur verið leiðandi
á markaði fyrir sjálfstýringar um langt ára-
bil. Ný gerð stýringar frá þeim hentar vel
skipum sem em allt að 20 metrar að lengd.
Auk þess kynnir Friðrik A. Jónsson á
sjávarútvegssýningunni siglingatæki frá
Simrad Shipmate, kallkerfi fyrir skip frá
Vingtor, dýptarmæla frá JMC og ljóskast-
ara frá NorseLight, sem eru á hagstæðu
verði og hafa enda selst vel að undan-
förnu. Þá kynnir Friðrik A. Jónsson einnig
neyðartæki frá Nekon, ratsjár frá Tokimec,
fjarlægðarmæla og víralengdarmæla frá
Datronik, skrúfur og skrúfuhringi frá
Promac, loftnet frá Celwave og loft-
tæmidælur frá Tendos.
Fyrirtækið Friðrik A. Jónsson hefur sett
á markaðinn 20 lítra samanbrotinn „-
þurrkassa", sem hannaður er til fiskflutn-
ings á landi og í lofti. Framleiðandinn SCA
Packaging Sweden AB hefur hannað kass-
ann í samvinnu og með samþykki IATA
(Alþjóðlegir flugflutningar), sem setur regl-
ur um umbúnað fyrir flugflutninga á fersk-
um kældum fiski. Þurrkassinn er úr pappa
og er afgreiddur til notenda útflattur
þannig að hann tekur lítið rými og er auð-
veldur í umbroti. Kassinn er með tvöfaldar
hliðar, styrkt horn og er sérstaklega gerður
til að þola hnjask. Mörg erlend flugfélög
eru hætt að leyfa fiskflutning í venjuleg-
um frauðplastkössum (polystyrene) vegna
Umhverfisvœnir þurrkassar.
þess að þeir brotna auðveldlega við hnjask.
Þerrispjald fylgir með þurrkössunum og
sýgur það í sig allt tilfallandi vatn. Kassar
til landflutninga eru með 3 lítra þerri-
spjaldi en kassar til flugflutninga em með
tvöfalda þá getu.
Síðast en ekki síst má geta þess að nýi
þurrkassinn er umhverfisvænn, því hann
er endurvinnanlegur.
Helstu kostir þurrkassans, sem Friðrik A.
Jónsson býður eru eftirfarandi:
* Hægt er að fiytja fisk samhliða annarri vöru
* Gott útlit
* Lægri flutningskostnaður á útfiöttum kössum
* Minni geymslukostnaður
* Öryggi í flugflutningum er mjög mikið
* Öll umgengni er auðveld
* AUt að 25% minna rými í flutningi
* Aukin gœði farmsins
* Enginn leki né hœtta á leka
Þurrkassin nýi verður til sýnis á sjávar-
útvegssýningunni i Laugardal, bæði í sýn-
ingarbás Friðriks A. Jónssonar (A-2) og í
hinum sænska (E-70). □
18 ÆGIR