Ægir - 01.09.1996, Blaðsíða 162
Skipaverslun Stiklu og Bónus-birgða
Viljum auka þjónustuna við
áhöfnina
„Okkur hefur gengid mjög vel og höfum fengið að mínum dómi frá-
bærar viðtökur á markaðnum. Eins og verið hefur þá er kokkurinn okk-
ar aðalmaður því hann annast öll innkaup á mat og þessháttar en við
viljum gjarnan auka þjónustuna við aðra skipverja og hafa á boðstól-
um ýmsar vörur sem þeir þurfa á að halda sem dvelja langdvölum úti
á sjó. Þeir geta þá komið hingað og keypt á einum stað það sem þá
vanhagar um á sanngjörnu verði,“ segir Lúther Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Stiklu hf., sem er skipaverslun sem starfar í samvinnu
við Bónus-Birgðir hf., í samtali við Ægi.
Fyrirtækið sérhæfir sig í að veita skip-
um þjónustu og það er fleira en kostur
sem Stikla selur. Það eru allar rekstrarvör-
ur, hnífar, bindiborðar, hreinsiefni, tæki
í eldhúsið, áhöld og fatnaður fyrir alla á-
höfnina og síðast en ekki síst veiðarfæri.
„Við segjum stundum í gamni að við
séum eina fyrirtækið á íslandi sem af-
greiðir bæði troll og klósettpappír, " segir
Lúther.
Stikla selur alla matvöru og pakkavöru
frá Bónus-Birgðum hf. Lúther segir að
þeirra helsta vopn í harðri samkeppni sé
gott úrval og lágt vöruverð en auðvitað
hefur viðskiptavinurinn síðasta orðið.
„Kúnninn hefur alltaf rétt fyrir sér og
það sem hann vill það útvegum við."
Fyrirtækið hefur farið að stað með
trukki og dýfu því aðeins er um eitt og
hálft ár síðan fyrsta pöntunin fór út úr
dyrunum en það var í mars 1995. Síðan
hefur mikið vatn runnið til sjávar og
mikill kostur farið um borð í skipin og í
dag eru starfsmenn fyrirtækisins átta tals-
ins. Nýr vörulisti er nýlega kominn út og
hefur lengst um heilar fjórar blaðsíður frá
síðustu útgáfu sem segir sína sögu um
aukin umsvif. En Lúther vill veita enn
betri þjónustu.
„Við viljum veita áhöfninni enn betri
þjónustu. Það hefur hinsvegar lítinn til-
gang að bjóða vöru sem engan vantar og
þess vegna viljum við komast í enn betra
samband við aðra áhafnarmeðlimi og
heyra frá þeim sjálfum hvað það er sem
við ættum helst að hafa á boðstólum. Við
viljum gjarnan fá þessa menn í heimsókn
og spjall til okkar, eins og kokkinn."
Stikla hf. skiptir ekki bara við skipa-
flotann því þar eru einnig seldar ýmsar
rekstrarvörur fyrir matvælaiðnað og fisk-
vinnslu, s.s. hreinsiefni og þess háttar og
síðast en ekki síst vinsælustu einnota
hanskarnir sem mikið er notaðir t.d. í
rækjuvinnslu þar sem geysilega strangar
kröfur eru um umgengni og hreinlæti og
einnota hanskar eru eitt af tækjunum til
þess.
Alltaf er verið að bæta við vöruúrvalið
og sem dæmi má nefna að nú er á listan-
um úrval af kökum sem eru seldar frosn-
ar og óbakaðar. Kokkurinn getur keypt
þær í tugavís hjá Stiklu og boðið upp á
nýbakað með kaffinu á hverjum degi fyr-
irhafnarlaust og orðið vinsælasti maður-
inn um borð eins og ekkert sé.
En hefur fyrirtækið náð þeirri mark-
aðshlutdeild sem stefnt var að?
„Já. Við höfum orðið góða stöðu á
markaðnum. Aðalmálið er samt að
standa sig vel. Það er ekki aðalatriðið að
þjónusta svo og svo mörg skip, heldur að
Lúther Guðmundsson framkvœmdastjóri
Stiklu hf.
gera það vel og leggja sig allan fram við
að veita góða þjónustu."
Lúther og hans menn eiga jafnan tölu-
verð viðskipti við erlend skip sem koma
til landsins og þar á meðal skemmtiferða-
skip en þar er flest stærra í sniðum en
þeir eiga að venjast. Eitt farþegaskipið
keypti mikið af matvörum af Stiklu og
þar á meðal grænmeti og ávexti. Þetta var
engin smáræðis sending því samtals vógu
grænmetið og ávextirnir tíu tonn. Og eft-
irlitið var strangt því kokkurinn tilkynnti
það fyrirfram að það sem ekki stæðist
skoðun hans manna yrði eftir á kajanum.
„Við vorum pínulítið stressaðir því
þetta er nú viðkvæm vara. Þegar við
mættum með bílana þá komu fjórir
menn í hvítum göllum sem skoðuðu
ofan í hvern einasta kassa sem fór um
borð. Þegar upp var staðið voru það tæp
20 kíló af þessum 10 tonnum sem ekki
sluppu gegnum nálaraugað. Það held ég
að sé ágætt hlutfall." □
162 ÆGIR