Ægir - 01.09.1996, Qupperneq 20
Skiparadíó
Nýr höfuðlínusónar
Skiparadíó býður nú nýjan WESMAR höfuðlínusónar en tvö ár eru lið-
in síðan Skiparadíó og Wesmar hófu tilraunanotkun á höfuðlínusón-
arnum en tilraunirnar hafa leitt til verulegra endurbóta. Höfuðlínusón-
arinn er samsettur af skjá og stjórnborði í brú og höfuðlínustykki. Á
höfuðlínustykkinu er sónarhaus, tvö „botnstykki" en annað þeirra sýn-
ir innkomu í trollið en hitt vísar upp, hitanemi og dýpisnemi. Að auki er
hægt að fá lausa aflanema sem festir eru aftur í poka og senda þráð-
lausar upplýsingar til höfuðlínustykkisins 60 sinnum á mínútu.
Höfuðlínusónarinn er fjölhæft tæki
sem sýnir opnun trollsins, fjarlægð höfuð-
línu frá fótreipi, fylgist með því sem ger-
ist fyrir ofan höfuðlínu, skoðar umhverfi
trollsins fyrir neðan, ofan, til hliðar og fyr-
ir framan. Á skjánum er hægt að hafa
hvort heldur er sónarmyndina eða mynd-
ina frá botnstykkjunum eða þá báðar
myndir samtímis í skiptri skjámynd.
Sónarnum er hægt að halla eða „tilta" á
sviðinu frá +15 til -90 með einnar gráðu
bili og hann býður upp á geiraskönnun að
vali í fullri skjámynd. Sónarinn hefur fulla
skönnun 360 gráður í láréttu plani og sýn-
ir fisk í töluverðri fjarlægð. Bendlar á ská
gefa kost á fjarlægðarmælingum fram í
hlera, milli hlera, í lóðningu og allar þær
fjarlægðir milli punkta sem fram koma á
myndinni. Botnstykkin hafa A-skóp með
þeim kostum sem sá möguleiki gefur og
allar valmyndir eru á íslensku.
„Það má segja að þarna sé kominn full-
kominn neðansjávarradar á höfuðlín-
unni," sagði Arnar Sigurbjörnsson hjá
Skiparadíó í samtali við Ægi og benti á að
þetta væri hluti af þeirri þróun að upplýs-
ingaöflunin er að færast úr skipinu sjálfu
aftur í veiðarfærið.
„Það má segja að þarna sé búið að færa
saman í eitt tæki radar og dýptarmæli og
koma því niður á heimaslóðir fiskanna."
Höfuðlínusónarinn er tengdur með
kapli við skipið og fær orku þaðan og
sendir upplýsingar en Amar telur að kap-
allinn hafi marga kosti umfram þráðlausa
sendingu. Sónarinn þolir að fara niður á
um 700 faðma dýpi.
Að sögn Arnars hefur orðspor höfuð-
línusónarsins verið slíkt að mikil eftir-
spurn er eftir tækinu en það er þegar kom-
ið um borð í allmörg fiskiskip á íslandi og
einnig hefur Skiparadíó selt í þýsk fiski-
skip í eigu DFFU og Samherja. Meðal skipa
sem búin em höfuðlínusónar frá Wesmar
em Breki VE, Haukur GK, Margrét EA, Már
SH, Cuxhaven, Kiel, Wiesbaden, Siglir SI,
Þorsteinn EA og Kambaröst SU.
Sónarinn sér allt
Þó höfuðlínusónarinn sé mikið tækni-
undur þá er hefðbundinn sónar frá Wesm-
ar tæki sem búið er að vera í framleiðslu
mjög lengi og Wesmar hefur framleitt
fleiri sónara en öll önnur fyrirtæki saman-
lagt. íslensk fiskiskip hafa notað sónartæki
frá Wesmar um margra ára skeið.
Að sögn Arnars er alltaf verið að endur-
bæta sónartækin og ýmsar nýjungar em í
Wesmar trollsónarinn gefur
gríðarlega góða yfirsýn yfir
trollið og stöðu þess. Á mynd-
inni sést greinilega hvar troll-
ið liggur utan í bratta og rétt
frarnan við vxng stjómborðs-
megin er fiskitorfa.
Stillt á „Sneiðmynd" sést
opnunin á trolllinu greinilega
og að 103 metrar eru milli
hlera, greina má torfu sem er
á leið inn í trollið
20 ÆGIR