Ægir - 01.09.1996, Side 78
Bílanaust:
Með áherslu á iðnaðinn
„Einhverjir spyrja kannski hvað
Bílanaust sé að gera á sjávarút-
vegssýningu og halda að við selj-
um bara varahluti í bíla. Sannleik-
urinn er sá að fyrirtækið tekur nú
■ þriðja sinn þátt í slíkri sýningu
og hefur undanfarin ár lagt rnikla
áherslu á að sinna iðnaðarmönn-
um og vélstjórum betur en áður
og höfum við náð miklum árangri
í þeim efnum," sagði Reynir
Matthíasson framkvæmdastjóri
hjá Bílanaust í samtali við Ægi.
Reynir bendir á að í mjög mörgum
tilvikum séu vörur sem Bílanaust selur
viðhaldsvörur fyrir vélar almennt óháð
því hvar þær eru staðsettar. Það er oft og
tíðum enginn munur á bátnum og bíln-
urn hvað varðar aðalvélina sjálfa nema
annað farartækið er á hjólum en hitt
ekki.
„Sem dæmi um þetta má nefna síur
frá Donaldson sem við seljum. Olíusíur
og loftsíur eru notaðar í skipum, á verk-
stæðum og hvar sem vélar er að reka.
Við erum einnig með hinar þekktu
Fram olíusíur sem margir kannast við."
Reynir segir að sem dæmi um góðar
viðtökur sé að Bílanaust sé með stór fyr-
irtæki, s.s. Eimskip, Járnblendifélagið og
Álverið í Straumsvík, í föstum viðskiptum.
„Við erum með fjöldann af olíuvör-
um, hreinsiefnum og smurbætiefni frá
QMI og fleirum. Þar má benda á
hreinsiefni sem sérstaklega henta í mat-
vælaiðnaði og eru umhverfisvæn. Við
erum með verkfæri frá þýska framleið-
andanum Hazet sem er gamalgróinn í
þessari grein. Þetta eru traust handverk-
færi sem margir þekkja og njóta vin-
sælda hjá vélstjórunum. Þetta eru sömu
verkfærin og eru seld í vélsmiðjur og á
bílaverkstæði og til almenningsnota."
Bílanaust er bráðum 35 ára gamalt
fyrirtæki sem rekur verslanir á fjórum
stöðum og vörudreifingu um allt land.
Hjá fyrirtækinu vinna um 80 manns og
að sögn Reynis er veltan um 900 millj-
ónir og stefnir í vöxt milli ára.
„Við höfum vaxið í átt til iðnaðarins
undanfarin ár. Sjávarútvegurinn er okk-
ar iðnaður og þó við seljum ekki vörur
sem beinlínis varða fiskinn þá leggjum
við margt í hendur þeirra sem með-
höndla fiskinn."
Bílanaust mun einnig kynna á sjáv-
arútvegssýningunni loftverkfæri frá
Þýskalandi sem heita Rodcraft og nýj-
ung á sýningunni verður kynning á
vörum frá 3M sem eru einkum slípivör-
ur fyrir sérhæfða málmvinnslu og verk-
stæði. 3M er annars gífurlega stórt fyr-
irtæki sem framleiðir vörur til margra
ólíkra hluta.
Einnig má nefna úðabrúsa og máln-
ingarvörur frá Tempo sem einnig selur
sérvörur fyrir sportbáta og smábáta.
Einnig má nefna rafmagnsvörur frá
danska fyrirtækinu Cargo sem henta vel
smábátum og einnig hina klassísku og
vel þekktu Varta rafgeyma sem eru alltaf
í stuði hvort sem er í bílnum eða bátn-
um.
Sænska fyrirtækið Hella framleiðir
siglingaljós og vinnuljós fyrir báta og
verður kynnt á sýningunni.
„Þær vörur sem við kynntum á
fyrstu sýningunni okkar eru svo hillu-
samstæður frá Constructor sem áður
hét Electrolux-Constructor. Þetta eru
nokkurs konar hillukerfi eða rekkar sem
hafa notið vaxandi vinsælda fyrir lag-
era en einnig í matvælaiðnaði," segir
Reynir.
„Þetta eru t.d. galvaníseraðar stæður
sem henta vel í saltfiskgeymslur og við
höfum einnig selt þær nokkuð í frysti-
geymslur. Þannig eru t.d. allir rekkar og
hillur í Faxafrost, sem er gríðarstór
frystiskáli í eigu Eimskips, með hillum
og rekkum frá okkur."
Rekkar og hillur frá Constructor hafa,
að sögn Reynis, fyllt upp í þörf sem var
fyrir hendi í iðnaðinum og verið vel
tekið.
Bílanaust veitir einnig ráðgjöf fyrir þá
sem hafa í hyggju að taka slíkar innrétt-
ingar í notkun. Þá tekur sérfróður mað-
ur út rýmið og þarfir fyrirtækisins og
metur hvað hentar best.
„Við höfum að undanförnu lagt
aukna áherslu á fræðslu og kynningar
fyrir okkar viðskiptavini. Eftir því sem
við eigum meiri viðskipti við iðnaðar-
menn, vélstjóra og fyrirtæki sem þjón-
usta sjávarútveginn þá eykst þörfin á
upplýsingaflæði um nýja möguleika og
nýjar vörutegundir. Við höfum komið
okkur upp góðri aðstöðu til þess að hafa
litla fræðslufundi eða námskynningar
fyrir okkar viðskiptavini og þetta hefur
mælst mjög vel fyrir." □
78 ÆGIR