Ægir - 01.09.1996, Blaðsíða 100
Fást hf
Sérfræðingar í færiböndum
„Þessi bönd eru einstök í heiminum og voru fyrst kynnt á sýningu í
Þýskalandi í vor. Þessi bönd úr acetal bjóða kröppustu beygjur og
minnstu deilingu sem völ er á en hægt er að leggja þau í 1:1 radíus,
sem sagt hægt að snúa þeim á punktinum eða leggja fyrir krappt horn.
Vegna þess hvernig bandið er samsett er auðvelt að gera við það ef
óhapp verður því hægt er að skipta um einstaka liði, jafnmarga og þarf.
Starfsmenn Fást, ]ón
Geirsson, Eyjólfur
Sigurðsson og Ingi-
mundur Guðmunds-
son framkvcemda-
stjóri.
Við teljum að þetta komi að góðum
notum víða þar sem pláss er takmarkað,
eins og um borð í vinnsluskipum, því
með því að nota krappar beygjur er oft
hægt að nota eitt band þar sem voru tvö
áður og spara þannig mótora og bönd.
Þannig má ennfremur losna við að við-
kvæmt hráefni falli milli banda eins og
oft þarf að gera þar sem þröngt er."
Ingimundur segir að annar stór kostur
sé hvernig hægt sé að leggja sköfur þétt
að bandinu til þess að taka við vörum af
því en slíkt er oft vandamál á hefðbundn-
um færiböndum.
„Þessi bönd hafa öll leyfi sem þarf til
matvælavinnslu, að sjálfsögðu. Við erum
þess vegna mjög bjartsýnir á framtíðina
því við teljum að við séum með bestu
lausnirnar á þessu sviði fyrir fiskvinnslu
og matvælaiðnað," sagði Ingimundur
Guðmundsson framkvæmdastjóri Fást hf.
í samtali við Ægi. Fást er ungt en vaxandi
fyrirtæki þar sem vinna þrír starfsmenn
en frá því fyrirtækið var stofnað 1990 hef-
ur velta þess vaxið að jafnaði um 40% á
hverju ári. Nú hefur fyrirtækið sprengt
utan af sér húsnæðið í þriðja sinn en fyrst
var Fást við Grandagarð, þá við Suður-
landsbraut og er nú flutt í enn stærra hús-
næði á Smiðjuvegi i Kópavogi. Vinsældir
þess sem Fást býður hafa aukist og einnig
hefur vöruflokkum fjölgað.
„Það má segja að við séum að sérhæfa
okkur í færiböndum því innflutningur á
færiböndum og hlutum í færibönd, við
höfum verið að þjónusta sjávarútvegsfyr-
irtæki og matvælafyrirtæki. Við seljum
færibönd, leguefni, skurðarbretti og fleira
úr plasti en einnig alla hluti í færibönd og
hjól undir vinnuborð og vagna af ýmsu
tagi.
Einnig hafa drifkeðjur af ýmsu tagi,
bæði fyrir færibönd og lyftara, verið stór
þáttur í okkar sölu. Við þjónustum enn-
fremur smíðafyrirtækin sem eru að fram-
leiða stærri einingar, eins og heilar
vinnslulínur, og vélsmiðjur eru stórir við-
skiptavinir okkar," sagði Ingimundur.
„Við höfum reynt að sérhæfa okkur í
þeim sérstöku hlutum sem em framleidd-
ir sérstaklega fyrir matvælaiðnað. Kröf-
umar þyngjast stöðugt og sérstaklega hef-
ur orðið bylting í þessum efnum eftir að
ísland varð aðili að evrópska efnahags-
svæðinu og við finnum glöggt hve þörf-
in fyrir sérhæfða þjónustu eins og okkar
hefur aukist.
Öll efni sem eru notuð í matvæla-
vinnslu, hvort sem það eru plastefni í
færiböndum, leiðarar, keðjur eða legur,
allt þarf þetta að vera samkvæmt ákveðn-
um stöðlum. Við flytjum mest af okkar
vörum inn frá Þýskalandi en einnig frá
Bretlandi og Ítalíu og okkar vörur hafa
allar viðurkenningar sem þarf."
Klæðskerasaumuð sérsmíði
Ingimundur segir að þegar sérsmíða
þurfi fyrir einstaka aðila og sníða sérstak-
lega færibönd og ýmsa hluti inn í sérstakt
rými þá leiti þeir til þýsks fyrirtækis, bæði
með ráðgjöf og síðan smíðina sjálfa, og
geti þannig boðið klæðskerasaumaðar
lausnir fyrir hvern og einn. Teikningar
má einnig senda út og þær eru síðan sett-
ar í tölvustýrðar smíðavélar CNC sem
skila geysilega nákvæmu verki.
Fást mun kynna ýmsar aðrar nýjungar
á sjávarútvegssýningunni og mun kenna
margra grasa í bás þeirra í Laugardalshöll-
Þar verða hjól undir vagna og borð, sér-
hæfð fyrir matvælavinnslu, en einnig
verður kynnt ný lína af fjöldaframleidd-
um hlutum og burðarvirkjum fyrir færi-
bönd sem auðveldar mjög samsetningu
einstakra lausna.
í auknum mæli býður Fást ýmsar vörur
sem henta togurum og má t.d. nefna
grindur og palla sem hægt er að sníða eft-
ir þörfum hvers og eins. Plast og leguefni
eru einnig stór þáttur í vöruvali Fást og
verður ítarlega kynnt. □
100 ÆGIR