Ægir - 01.09.1996, Page 140
Safalinn/Sorptækni:
Sérfræðingar í rusli
Finnskt fyrirtæki sem er leiðandi og í
forustu á Evrópumarkaði - allar gerð-
ir, allar stærðir og ávallt hannað mið-
að við aðstæður á hverjum stað.
Safalinn/Sorptækni er ungt fyrirtæki,
sem haslað hefur sér völl á sviði full-
komins búnaðar til hirðu og vinnslu
sorps af öllu tagi. Búnaður sá sem Safal-
inn/Sorp býður upp á er hannaður og
framleiddur af finnska fyrirtækinu Euro-
press, sem er stærsta fyrirtækið í Evrópu
í framleiðslu allskonar tækja til hirðu
sorps og annarra spilli- og úrgangsefna.
Europress er leiðandi á markaðnum og
er til dæmis eitt um að bjóða sorpgáma
með kæli- og hitunarbúnaði. Fram-
leiðsluvörur þeirra fara víða um heim og
eru auk þess framleiddar eftir leyfi hjá
öðrum aðilum. Safalinn/Sorptækni býð-
ur sorpgáma og sorpkerfi, sem hentar
allskonar atvinnustarfsemi af öllum
stærðum og gerðum. Tækin henta jafnt
stórum sveitarfélögum sem smáum og
jafnt stórfyrirtækjum og hinum smærri.
Tæki frá Europress fullnægja algjörlega
öllum þeim Evrópustöðlum, sem ganga
nú sem óðast í gildi hér á landi. Safal-
inn/Sorptækni hefur undanfarin misseri
unnið sérstaklega að því að bjóða sorp-
kerfi af nýjustu gerð til fyrirtækja í mat-
vælaiðnaði svo og til notkunar um borð
í fiskiskipum. Safalinn/Sorptækni legg-
ur áherslu á að hanna hvert sorpkerfi
eftir aðstæðum á hverjum stað. Fyrst
eru kannaðar aðstæður um borð í skip-
um eða hjá fyrirtækjum. Síðan er kerfið
skipulagt og hannað í samræmi við það.
Sérútbúinn pressusorpgámur í
Venus:
I>að hefur orðið bylting á meðferð
sorps og alls úrgangs hér á landi á und-
anförnum árum og þá ekki síður á sjó
en í landi. Eitt merki þess eru þau að
þegar frystitogarinn Venus frá Hafnar-
firði sigldi úr höfn eftir miklar viðgerðir
og endurbætur fyrri hluta þessa árs, þá
var þar kominn sérútbúinn sorpgámur
um borð. Sá fyrsti sinnar tegundar um
borð í íslensku skipi. Það er fyrirtækið
Sorptækni, sem er umboðsaðili þessarar
nýjungar, sem í raun er sérútbúin fyrir
hvert skip. Um borð í Venusi var settur
níu rúmmetra pressugámur.
Reynslan af nýja
sorppressugáminum er góð,
segja þeir um borð í Venusi
i samtali við Guðmund Jónsson, skip-
stjóra á Venusi og Grétar Guðnason yfir-
vélstjóra kom fram, að reynslan af nýt-
ingu og notkun gámsins er góð. í gáminn
fer allt venjulegt sorp, nema það lífræna,
sem sett er í hafið. Netaafgangar, olía og
önnur spilliefni er varðveitt sérstaklega.
Að sögn Grétars yfirvélstjóra kemur
geymsla sorpsins í sérútbúnum gámn-
sorpi um borð. Auk þess þarf mun
minna geymslurými vegna þess, þar sem
það er pressað saman í gáminum. Þegat
að landi er komið er gámurinn hífður í
land og sorpinu komið til síns heima.
Jón Ólafur Magnússon, sölustjóri hjá
fyrirtækinu Sorptækni, sem annast sölu
og þjónustu vegna gáma af þessu tagi til
notkunar bæði á sjó og landi, sagði að
gámurinn um borð í Venusi væri sér-
hannaður til nota þar um borð. Á þann
hátt væri best hægt að nýta rýmið eftir
aðstæðum um borð í hverju skipi. Þetta
ætti bæði við um staðsetningu gámanna
um borð, stærð þeirra, hvort sérstakrar
kælingar væri þörf og hverskonar sorp
legðist til á hverjum stað. Sorptækni er
umboðsaðili fyrir Europak, sem er finnskt
fyrirtæki, sem er leiðandi í sorpgáma-
framleiðslu í Evrópu. Fyrirtækið er til
dæmis eitt um að bjóða upp á sorpgáma
með kæli- og eða hitakerfum. Sorptækni
býður upp á lausnir í sorpmálum fyrir
allar stærðir fyrirtækja og sveitarfélaga.
Mikill skilningur á þörf umhverfis-
og mengunarvarna er um borð í Venusi.
Jón Ólafur Magnússon sagði ánægjulegt
að hafa átt þátt í að setja fyrsta sérhann-
aða pressugáminn fyrir sorp um borð 1
Venus. Guðmundur Jónsson og áhöfn
hans væru mjög meðvitaðir um nauð-
syn umhverfisverndar af öllu tagi. Þeir
hafi til dæmis verið brautryðjendur um
böggun sorps um borð fyrir rúmum sex
árum. Jón Ólafur benti auk þess á að
um borð í Venusi eins og reyndar ýms-
um öðrum fiskiskipum væru aðeins
notaðar lífrænar sápur.
Skilningur á þörf mengunarvarna
kominn lengra á sjó en í landi
Grétar Guðnason yfirvélstjóri fræddi
okkur á því að öll olíuhreinsiefni sem
notuð væru um borð væru skiljanleg og
því valda þau ekki neinni mengun.
Áberandi væri reyndar hve sölumenn
fyrirtækja á hreinlætismarkaði væru
meðvitaðri um innihald vöru sinnar nú
en fyrr á árum. Yfirvélstjórinn og Guð-
mundur skipstjóri voru sammála um að
mengunarvarnir og skilningur á um-
hverfisvernd væri að mörgu leyti kom-
inn mun lengra í sjávarútvegi en í öðr-
um atvinnugreinum. □
um í veg fyrir alla lykt, leka og óþrif af
Frystitogarinn Venus er með sérútbúinn sorpgám um borð þann fyrsta sinnar tegundar í
íslenskum skipum.
1 40 ÆGIR