Ægir - 01.09.1996, Side 150
Ellingsen í 80 ár:
Sækjum fram í veiðarfærum
Á síðasta ári hóf Ellingsen sam-
starf við Netagerðina Ingólf í
Vestmannaeyjum um innflutning á
netum og trollum frá Swan Net
Ltd. á írlandi. Að sögn Óttars Ell-
ingsen framkvæmdastjóra hafa
viðtökur markaðarins verið góðar
og því hefur nú verið stigið nýtt
skref í átt til þess að veita enn
betri þjónustu í veiðarfærum.
„Á sínum tíma fóru tveir starfsmenn
héðan út í sjálfstæðan rekstur og stofn-
uðu víraverkstæðið Ingvar og Ari hf.
Þetta fyrirtæki keypti Ellingsen fyrir
nokkmm árum en nú hefur Netagerðin
Ingólfur gengið til liðs við það og mun
það bjóða upp á alla hefðbundna neta-
þjónustu við skip og báta auk þess að
vera aðalþjónustuaðili fyrir Swan Net
Ltd. en það var skýr krafa viðskiptavin-
anna að fá þjónustu hér í Reykjavík.
Með tilkomu þessa verkstæðis getum
við útvegað hvaða skipi sem er hvaða
þjónustu sem er, hvort sem það er
handfærabátur eða frystitogari," sagði
Óttar í samtali við Ægi.
Verkstæðið er nú rekið í húsnæði Ell-
ingsen við Eiðisgranda en að sögn Ótt-
ars verður það með tímanum flutt á
nýjar slóðir nær höfninni þar sem auð-
veldara verður að bjóða viðgerðarþjón-
ustu og uppsetningar á stórum flottroll-
um.
Af stóru flottrollunum er það annars
nýtt að frétta, að í upphafi þessa árs var
hafist handa við að betrumbæta og
hanna uppá nýtt flottrollið frá Swan
Net sem ætlað er til úthafskarfaveiða.
Trollið sem sett var á rnarkað á síðasta
ári reyndist ekki henta í úthafinu vegna
of smárra möskva og þar afleiðandi of
mikillar mótstöðu. í júní síðasliðnum
var nýja úthafskarfatrollið sett um borð
í frystitogarann Akureyrin EA 110 og fór
skipið með trollið til úthafskarfaveiða á
Reykjaneshrygg. Eftir að veiðum var þar
hætt hefur skipið verið við veiðar á
Grænlandsmiðum og trollið komið
mjög vel út. Er þar greinilegur mikill
munur á milli skipa hverjir fiska mest.
Öll önnur skip Samherja eru með
flottroll frá Hampiðjunni úr polyethyle.
Bestu einkunn sem við gátum hugsað
ÓttarB. Ellingsen framkvœrndastjóri Ellingsen.
okkur að fá voru orð skipstjórans á Ak-
ureyrinni EA, Sturlu Einarssonar, sem
sagði m.a. að vinna með trollinu væri
algjörlega eins og hugur manns og eng-
inn sem væri með troll frá samkeppnis-
aðilanum, Hampiðjunni, gæti leikið
það eftir sem honum væri kleift að gera
með Swan Net trollinu. Nú loksins
fyndist honum persónulega að Hamp-
iðjan væri búin að fá samkeppnisaðila
inná markaðinn. Enda á meðan önnur
skip voru 10-12 tíma að fiska fyrir
vinnsluna var hann aðeins 5-8 tíma á
togi. Trollið er af nýrri gerð eins og áður
sagði og er 2754 metrar í ummál. Til
gamans má geta þess að írarnir hjá
Swan Net kalla trollið „White Tiger"
vegna stærðar þess. Einnig má geta þess
að mótstaða trollsins er minni í sjó en
Gloriu 2048. Eldri karfatrollin hafa aftur
á móti komið mjög vel út í Smugunni
og má þar nefna skip eins og Akureyrin
EA sem gerði mettúr á síðastliðnu ári
með Swan Net trolli að stærð 1689. Og
eins er Klakkur SH sem kom fyrstur
skipa með fullfermi úr Smugunni með
Swan net troll 1536. Nú, ánægjulegast
við þetta er að nú í dag seljum við báðar
gerðinar af trollunum, eldri gerðina í
Smuguna og nýju útgáfuna í úthafskarf-
ann, þannig að við getum ekki annað
en verið bjartsýnir með framtíðina.
Ellingsen hefur einnig verið að selja
troll og snurvoðir fyrir smærri skip úr
Dyneema en það er mikið undraefni og
hefur tilkomu þess í netagerð verið líkt
við þá byltingu sem varð þegar nælonið
leysti hampinn af hólmi á sínum tíma í
veiðarfæragerð. Alls hafa 12 skip og bát-
ar í Vestmanneyjum veðjað á undraefn-
ið en efni þetta ryður sér nú til rúms
víða við Norður-Atlantshafið.
„Þetta „ofurefni" er svo sterkt að þar
sem áður þurfti 6 mm dugar 2 mm
þráður sem er jafn sterkur eða sterkari, "
sagði Haukur Þorvaldsson. Af þessu leið-
ir að troll úr ofurefninu er mun léttara í
drætti, flýtur betur í sjónum og er fiskn-
ara. Ellingsen og Ingólfur hafa í vor selt
nokkrum Vestmannaeyjabátum slík
troll og skipstjórar og útgerðarmenn eru
afar hrifnir. Minnsti báturinn sem hef-
ur tekið slíkt troll um borð er með 135
ha. vél en þeir stærstu eru togararnir
Þórunn Sveinsdóttir VE og Bylgja.
„Það er óhætt að tala um byltingu í
þessum efnum og ég er persónulega
sannfærður um að þetta á eftir að ryðja
sér verulega til rúms í flotanum á næstu
árum."
Verksmiðjan í Hollandi sem Elling-
sen skiptir við framleiðir tiltekinn kvóta
af þessu ofurefni samkvæmt einkaleyfl
hráefnisframleiðandans D.S.M. í Hol-
landi sem hefur úthlutað Evrópu 1000
tonna kvóta. Samtals fara 800 tonn af
Evrópukvótanum til fslands.
Vegna aukinnar áherslu á veiðarfæra-
sölu hefur Ellingsen hafið sölu á vörum
frá danska framleiðandanum Utzon
sem framleiðir tóg, trollgam og allt efni
til netagerðar. Að sögn Hauks og Óttars
er verkstæðið rekið sem sjálfstæð eining
en það verður fyrst um sinn rekið undir
nafninu Netagerðin Ingólfur-Ingvar og
Ari hf. □
1 50 ÆGIR