Ægir - 01.09.1996, Síða 160
Dynjandi ehf.:
Stórvirkar háþrýstidælur,
sem aðeins nota vatn
- Island er eina Evrópulandið sem
tollar öryggisbúnað í lúxusflokk
Dynjandi hf. er gamalgróið fyrirtæki
stofnað árið 1954. Þjónusta þess er eink-
um á sviði ýmiskonar öryggisbúnaðar.
„Á sjávarútvegssýningunni í Laugardal
leggjum við m.a. áherslu á að kynna
stórvirkar háþrýstidælur," sagði Stein-
dór Gunnlaugsson, framkvæmdasjóri
Dynjanda hf. „Með þeim er hægt að
þvo og hreinsa skip án þess að nota
sand, aðeins er beitt vatnskraftinum.
Slippstöðin hf. á Akureyri festi kaup á
einni slíkri í vor og hefur hún verið not-
uð þar í sumar. Áður voru þeir með
þurrblástur, sem er m.a. mengunarvald-
andi. Þarna er um að ræða gjörbreyt-
ingu í vinnubrögðum, bæði hvað varð-
ar mengun og auk þess er með nýju
dælunum hægt að koma í veg fyrir
skemmdir af sandi sem vill smjúga inn
um allt og getur eyðilagt tæki og tól.
2000 kg þrýstingur
Við vitum að skipaeigendur hafa far-
ið með skip sín erlendis til að fá slíkan
háþrýstiþvott á skipum sínum. Nú er
hinsvegar hægt að fá þessa þjónustu hjá
þeim á Akureyri og þar hefur verið mik-
ið að gera á þessu sviði í sumar. Há-
þrýstidælan sem þeir keyptu hjá Slipp-
stöðinni er með 2000 kg þrýstingi sem
er mikið afl og mun vafalaust þjóna
þeim lengi. Afkastagetan við hreinsun
skipa eykst mikið og til dæmis geta þrír
starfsmenn verið að vinna við þetta í
einu eftir að nýja dælan var tekin í
notkun. Þessar dælur eru frá bandaríska
fyrirtækinu Butterworth Jetting Sy-
stems.
Við það að taka nýju háþrýstidælurn-
ar í notkun auka fyrirtækin þjónustu
við viðskiptavini sína og lækka jafn-
Steindór Gunnlaugsson framkvœmdastjóri
Dynjanda.
framt verðið. Áður var aðeins um að
ræða svonefndan skolþvott með vatni
og svo sandblástur en hann er mjög dýr.
Með nýju dælunni er hægt að bjóða
upp á háþrýstihreinsun með vatni, sem
að verði til er þarna á milli. Auk þess er
hægt að hreinsa mun meira en áður
bæði á millidekki og í lestum.
Að brjóta steypu með dælum
Við höfum auk þess selt þessar nýju
dælur til ýmiskonar annarra nota, svo
sem til húsaþvotts og einnig til steypu-
brots. Að brjóta steypu á þennan hátt
kemur sér víða vel. Til dæmis við brúar-
vinnu og stíflugerð, þar sem höggvélar
geta sprengt út frá sér. Hægt að skera og
sprengja steypu með þessu móti án
nokkurs titrings og þrýstings."
Dynjandi hf. hefur löngum verið
þekktast fyrir ýmiskonar öryggisvörur.
Má þar nefna skó, hjálma, heyrnarhlíf-
ar, hanska, gleraugu og allskonar hlífar,
svo eitthvað sé nefnt. „M.a. vörur frá
sænska fyrirtækinu Peltor. Þeir eru einn
virtasti framleiðandi heims á allskonar
heyrnarhlífum, heyrnartólum og sam-
skiptakerfum. Þar er m.a. um að ræða
samskiptakerfi bæði í skip og frystihús
og aðra verksmiðjuvinnu.
Heyrnartæki í lúxustoll
Á síðasta ári kom Peltor með á mark-
að heyrnartól með innbyggðu útvarpi.
Tækin eru auk þess þannig gerð að ekki
er hægt að hafa hljóðstyrkinn svo mik-
inn að hann valdi skaða á heyrn.
Þegar við settum þessa vöm á markað
hér, þá kom hið opinbera okkur í
nokkurn vanda. Varan var umsvifalaust
sett í lúxustoll. Þessi heyrnartól em fyrst
og fremst notuð af fólki, sem vinnur í
hávaða. Enginn mundi nota þau ef há-
vaðinn væri ekki fyrir hendi. Þetta er af
tollayfirvöldum túlkað þannig að ef
vara getur flokkast í tvo tollflokka þá er
hún ávallt sett í þann sem ber meiri
toll. Þetta hækkar innlent verð hlífanna
um 37%. Til að fullnægja Evrópustöðl-
um þarf að nota svona hlífar. Enginn
mundi kaupa þær einvörðungu til að
nota sem útvarp, því útvörp ein sér má
fá á mun lægra verði. ísland er eina
landið, sem túlkar tollalögin á þennan
hátt.
Þá vil ég að lokum nefna aðra nýjung
frá Peltor, en það er samskiptabúnaður
til að nota um borð í togurum, það er
frá brú og aftur í skutrennu. Þetta hefur
verið vandamál, sem hinn nýi búnaður
leysir," sagði Steindór Gunnlaugsson að
lokum. □
160 ÆGIR