Ægir - 01.08.1998, Síða 9
Fjarskipti í sjávarútvegi
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Stefán Amdal, stöðvarstjórí Fjarskiptastöðvariimar í Gufunesi, segir strandarstöðvarnar
hafa þjónustað yfir 80 þúsund símtöl sjómanna á síðastliðnu ári. Mynd: Haukur Snonason
þar er búnaður allur sá fullkomnasti til
fjarskiptaþjónustu en stærsti liður í
þjónustu stöðvarinnar er við milli-
landaflugið, en Stefán segir öryggis-
þáttinn í þjónustunni við skipaflotann
mjög mikilvægan.
Fjarskiptastöðvarnar út um landið
eru sex talsins, þ.e. Reykjavíkurradíó,
Vestmannaeyjaradíó, Siglufjarðarrad-
íó, Ísafjarðarradíó, Nesradíó á Nes-
kaupstað og Hornafjarðarradíó. Nýver-
ið hefur verið komið á fjarstýringu
stöðvarinnar í Gufunesi á Nesradíói og
Hornafjarðarradíói og Siglufjarðarrad-
íó hefur um nokkurt skeið fjarstýrt
stöðinni á ísafirði á næturnar og um
helgar, en mun fjarstýra henni allan
sólarhringinn frá 1. september nk.
Þessar breytingar segir Stefán Arndal
að miði að því að ná fram hagvæmari
rekstri strandarstöðvanna.
„Þjónusta strandarstöðvanna við
skipaflotann er jöfnum höndum ör-
yggisfjarskipti og skeyta- og símtala-
þjónusta fyrir sjómenn, aðstandendur
þeirra og útgerðirnar. Hvað varðar ör-
yggisþáttinn þá tökum við m.a. við
skyldutilkynningum skipanna og
komum þeim til Tilkynningaskyld-
unnar, en einnig sinnum við
neyðar- og háskafjarskiptum.
Neyðartilvik voru t.d. 415 á sl.
ári, beiðnir um læknisaðstoð
51 og aðrar aðstoðarbeiðnir
231. Útsending veðurspáa og
ýmissa viðvarana, á tali og með
Navtex, er einnig þáttur í ör-
yggisþjónustunni. En nú er í
farvatninu nýtt sjálfvirkt til-
kynningakerfi og væntanlega
kemst það í notkun að hluta til
nú á vetrarmánuðum. Tölvubúnaður-
inn vegna kerfisins mun verða hér í
Gufunesi og í umsjá Landssímans hf,
en stjórnstöðin og eftirlitið mun verða
áfram hjá Slysavarnafélagi íslands.
Landssíminn mun einnig sjá um upp-
setningu og rekstur metrabylgjustöðva
vegna sjálfvirku tilkynningaskyldunn-
ar, en þær verða tengdar hingað," seg-
ir Stefán.
Á sl. ári fóru um strandarstöðvarnar
315 þúsund skyldutilkynningar, og
voru 60% þeirra afgreidd um Gufunes.
Yfir 80 þúsund símtöl og skeyti voru
afgreidd, og annaðist Gufunes 70%
þeirra.
Gufunesstöðin vel búin tækjum
Gufunesstöðin er sú eina strandar-
stöðvanna sem er með stuttbylgju og
morse-kerfi og sú stöð sem best er
búin tækjum. „Stuttbylgjan nýtist vel
þeim skipum sem eru í Smugunni, á
Flæmska hattinum, djúpt á Reykjanes-
hrygg og við Grænland og hún er
töluvert mikið notuð af skipum á þess-
um svæðum. Einnig nýtist hún vel
skipum í millilandasiglingum. Yfirleitt
er sambandið gott, en það getur verið
breytilegt eftir fjarlægð í skip og
einnig eftir því hvort talað er á nóttu
eða degi," segir Stefán. Síðustu árin
hefur notkun talstöðvarsambands far-
ið minnkandi og þar segir Stefán að
tvennt komi til. Annars vegar það at-
riði að störf loftskeytamanna hurfu úr
flotanum fyrir all mörgum árum og
hins vegar er tilkoma farsíma- og
gervihnattakerfa. „Síðastnefnda
atriðið er samt ekki farið að
breyta miklu enn sem komið er.
í fyrsta lagi eru gervihnattasím-
ar dýrir í innkaupum og í fáum
skipum, auk þess sem samtölin
með þeim eru dýr. Á næstu
árum mun gervihnattakerfum
fjölga og það hlýtur að boða
aukna notkun og þar með lækk-
andi verð bæði á tækjum og
þjónustu," segir Stefán.
Hagstæður verðsamanburöur
Aðspurður um gjöld fyrir þjónustu
strandarstöðvanna segist Stefán telja
þau hagstæð, ef borið sé saman við
önnur lönd. Á metrabylgju (VHF)
kostar þriggja mínútna samtal 90
krónur og hver mínúta eftir það 30
krónur. Á millibylgju er þriggja mín-
útna gjaldið 111 krónur og hver mín-
„Á sl. ári fóru um strandarstöðv-
arnar 315 þúsund skyldutilkynn-
ingar og voru 60% þeina af-
greiddar um Gufunes."
ÁGIR 9