Ægir - 01.08.1998, Qupperneq 10
FJarskipti f sjávarútvegi
Starfsmenn viö vinnu sína í Gufunesstöðinni. Til þessara starfa er reynt að fá fólk sem
reynslu hefur af sjómennsku og þekkir þannig gildi góðrar fjarskiptaþjónustu fyrir
sjómentl. Mynd: Haukur Snorrason
úta eftir það kostar 37 krónur. Loks er
gjald fyrir stuttbylgjusamtal, en
þriggja mínútna samtal á henni kostar
153 krónur og hver mínúta umfram
þann tíma kostar 51 krónu. Þessi verð
eru öll án virðisaukaskatts, en Stefán
segir að í öllum samanburði við önnur
lönd hafi þjónustan reynst mun ódýr-
ari hér. „Munurinn er verulegur enda
hefur þessi þjónusta hér á landi aldrei
staðið undir sér. Ástæðan er sú, að í
umræðu um gjaldskrána þá hefur það
alltaf verið ósk fjarskiptayfirvalda,
fyrst og fremst samgönguráðuneytis,
að tekið væri tillit til þess að notendur
þjónustunnar eru fyrst og fremst sjó-
menn og útgerðir. Gjaldskrárhækkanir
hafa þess vegna ekki orðið í samræmi
við aðrar verðhækkanir í þjóðfélaginu
og það þýðir að þjónustan er hlutfalls-
lega ódýrari en var fyrir nokkrum
10 AGIR ------------------------
árum," segir Stefán og bætir við að
umræða sé um hækkun gjaldskrár,
sem lið í því að ná jafnvægi í rekstri
þessarar þjónustu. „Það er líka mikil
umræða um þá spurningu hvort fyrir-
tæki eins og Landssíminn hf. eigi að
bera kostnað af öryggisþjónustu. Sú
spurning er uppi hvort ekki sé eðlilegt
að ríkið eða útgerðir greiði þennan
kostnað, enda er það víða erlendis svo
að ríkið greiðir fyrir öryggisþjónustu."
Þjónustað út fyrir landsteinana
Stefán segir Gufunesstöðina veita t.d.
Færeyingum, Grænlendingum og
Norðmönnum fjarskiptaþjónustu og
algengt er að leitað sé erlendis frá eftir
þjónustu. Til að mynda er ekki langt
síðan að aðili í Namibíu óskaði eftir
aðstoð Gufunesstöðvarinnar til að ná
sambandi við skip undan ströndum
Namibíu, sem gekk mjög vel, en þá
hafði enginn árangur orðið af þjón-
ustu þarlendra strandarstöðva. En er
það framtíðarsýn Stefáns að sam-
keppnin muni harðna á þessu sviði
með tilkomu aukinnar gervihnatta-
tækni, tölvutenginga og annars bún-
aðar sem snýr að fjarskiptum.
„Já, það er viðbúið að þessar breyt-
ingar beri okkur ofurliði. Gervihnatta-
búnaðurinn verður ódýrari og þar af
leiðandi verður hægt að bjóða ódýrari
samtöl. Gervihnattafyrirtækjunum
mun líka fjölga og samkeppni verður
þeirra í milli, sem aftur mun leiða til
verðlækkana á þjónustunni. Ásóknin
verður líka af eðlilegum ástæðum í
sjálfvirkt samband þar sem það er
þægilegra og fólk er í meira öryggi
með sín samtöl gangvart hlerun," seg-
ir Stefán.
Fyrrum sjómenn í þjónustunni
Afgreiðsluborð í Gufunesstöðinni eru
mörg og hvert borð getur afgreitt
mörg samtöl samtímis. Þar af leiðandi
er hægt að þjónusta marga notendur
samtímis. Þetta segir Stefán skila því
að biðtími sé mjög stuttur og í meiri-
hluta tilfella segir hann hægt að af-
greiða skip strax og það óskar þjón-
ustu.
„Við lítum líka til þess að í dag eru
gerðar mun meiri kröfur um hraða
þjónustu á þessu sviði en var á árum
áður. Þessum kröfum mætum við eins
og frekast er kostur. Að mínu mati er
skipaþjónusta okkar mikils virði fyrir
sjófarendur, bæði þá sem nota okkur
til að tengjast símleiðis í land og líka
vegna öryggisþjónustunnar. Margt af
starfsfólki okkar í strandarstöðvaþjón-
ustunni hefur starfað til sjós og þekkir
gildi góðrar fjarskiptaþjónustu og allir
leggja sig fram um að veita sem besta
þjónustu," segir Stefán.
Við skipafjarskiptin starfa nú rúm-
lega 20 manns í Gufunesi, en 40 við
flugfjarskiptin. í Vestmannaeyjum eru
fimm starfsmenn við skipafjarskipti og
fjórir á Siglufirði.