Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1998, Blaðsíða 21

Ægir - 01.08.1998, Blaðsíða 21
Fjarskipti í sjávarútvegi SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI Radíómiðun býður útskrift fyrir hvem og einn kaupanda GMDSS-f]arskiptabúnaðar þar sem sett er upp hagstœðasta tillaga að búnaði í liverju skipi. Mynd: Haukur Snonason ættu menn að skoða hér í flotanum. Hér er um að ræða sambyggt tæki og einfaldara en áður en um leið miklu ódýrara," segir Kristján en þeirri spurningu hvaða kostnaði útgerðir standi frammi fyrir þegar kaupa skal GMDSS búnað, og uppfylla þannig al- þjóðalög, segir Kristján ekki hægt að svara á einfaldan hátt. „Kostnaðurinn ræðst af mörgum þáttum, til að mynda því á hvaða haf- svæði viðkomandi skip kemur til með að verða, hvaða búnaður er fyrir í skipinu og þannig mætti áfram telja. Við hjá Radíómiðun ákváðum að hanna tölvuforrit sem gerir okkur kleift að slá inn öllum þessum upplýs- ingum um viðskiptavininn og að því loknu kemur forritið með tillögu að hagkvæmust lausninni fyrir hvern og einn. Þetta tel ég vera mjög þýðingar- mikla þjónustu þegar aðstæður við- skiptavinanna eru mismunandi því hafa verður í huga að fjárfesting í GMDSS búnaðinum er stór. Það þarf heldur ekki að vera nauðsynlegt að henda út búnaði sem fyrir er í skipun- um heldur getur verið mögulegt fyrir okkur að uppfæra tæki sem fyrir eru, hvort heldur þau eru frá okkur eða samkeppnisaðilum. Ég vil þess vegna halda því fram að útgerðaraðilar ættu tvímælalaust að fá útskrift hjá okkur og sjá hvernig þeir standa gagnvart GMDSS-tækjavæðingunni. Forritið skilar okkur örugglega hagstæðustu til- lögunni í hverju tilfelli," segir Krist- ján. Þjónustan skiptir miklu Sérstakt leyfi þarf til viðgerðarþjón- ustu á fjarskiptabúnaði og hefur Rad- íómiðun haft slíkt leyfi lengst allra. Kristján segist leggja mikið upp úr þjónustuþættinum og bjóði fyrirtækið þar af leiðandi sölu og þjónustu á sama stað. „Radíómiðun byrjaði á sínum tíma í þjónustu við miðunarstöðvar en árið 1964 gerðumst við umboðsaðilar við Sailor og erum elsti umboðsaðili Sail- ortækja í heiminum," segir Kristján. Gervihnattafyrirtækin munu berjast Á komandi árum segir Kristján að fjar- skipti hvers konar muni í grunninn byggja á gervihnattalausnum. Það eigi við um talsamband, jafnt sem gagna- flutning með tölvum. „Ég tel að í nánustu framtíð muni berjast mörg gervihnattafyrirtæki á markaðnum. Inmarsat er fyrir á mark- aðnum og hefur forskot en það mun þróast áfram en fá harðari samkeppni í þjónustu," segir Kristján Gíslason. Kanada: Skoðunargjöld að sliga togaraútgerðina Kanadískir útgerðarmenn eru þungorðir þessa dagana. Á fyrstu sex mánuðum ársins hættu um 20 kanadískir togarar veiðum við við vesturströnd Kanada vegna þess að há skoðun- argjöld voru að sliga útgerðina. Gjald fyrir veiðar á svæðinu er 365 kanadískir dollarar á dag og þetta segja útgerðarmenn að gangi nær því í mörgum tilfellum að samsvara bæði olíukostnaði og launum áhafnar. Eina leiðin sem útgerðarmenn hafi sé einfaldlega að hætta veiðum. Fyrir vikið varð eftir verulegur hluti af kvóta á svæðinu. 1 blaðinu World Fishing segir einn útgerðarmanna að lengst hafi haldið úti tveir af minni togurunum en sú barátta skili vafalítið litlu í vasann. „Þessi skoðunargjöld hafa leikið útgerðirnar grátt og sökkt skipunum fjár- hagslega,“ sagði Bruce Devereux, forseti samtaka togaraeigenda á vestur- strönd Kanada. ÁGIR 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.