Ægir - 01.08.1998, Side 25
Fjarskipti í sjávarútvegi
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Hjá Brimrún er þjónusta allt frá sölu taskja til viðgerðar og þannig segir Björn Ámason
að heildstœð mynd sé á þjónustunni við viðskiptavinina. Mymt: Haukm Snonason
og bendir á að sama dagsetning gildi
um allan heim varðandi hvenær því
skuli lokið. Því geti tækjaframleiðend-
ur orðið í vandræðum með að mæta
eftirspurn þegar nær dregur 1. febrúar.
Þar af leiðandi sé ráðlegt fyrir útgerð-
araðila að draga ekki lengi undirbún-
ing þessa máls.
„GMDSS er í raun hnattrænt neyð-
ar- og öryggiskerfi fyrir sjófarendur og
þó svo að á næstu mánuðum séu að
koma fram ný gervihnattakerfi þá geta
þau ekki komið í stað GMDSS-kerfis-
ins. Menn geta deilt um það hvort
ávinningurinn af GMDSS-kerfinu rétt-
læti fyllilega þann kostnað sem bún-
aðinum fylgir fyrir útgerðir en öryggi
sjófarenda eykst óumdeilanlega mik-
ið," segir Björn og bætir við að rúm-
lega 300 skip hér á landi þurfi að fjár-
festa verulega í búnaði vegna GMDSS.
Tölvutenging skipa við
við land er rétt að byrja
Að sögn Sveins Kristjáns Sveinssonar,
sölustjóra hjá Brimrún, er mikil fram-
þróun í möguleikum á tölvusamskipt-
um milli skips og lands. Nú þegar er
algengt að flutningaskip séu tölvu-
tengd í land í gegnum Inmarsat gervi-
tungl. Hár kostnaður á búnaði og mín-
útuverði og það að gagnaflutningur er
enn í dag tiltölulega hægur, segir
hann trúlega helstu ástæður þess að
fiskiskip eru í mjög litlum mæli komin
með þessa tölvutengingu.
„Furuno er nú að setja á markað
nýjan Inmarsat fjarskiptabúnað, Fel-
com-81 HSD, með margföldum flutn-
ingshraða á gögnum miðað við það
sem hægt er í dag," segir Sveinn og
bætir við að með fjölgun gervitungla-
fyrirtækja, sem munu veita Inmarsat
samkeppni, hljóti mínútuverð að
lækka.
MóreNot a*s NETANAUST ísco’NetaNaust
Súðarvogi 7, 104 Reykjavik, simi 568 9030, fax 568 0555
lÆi) JJJ-iáJiJJJJ JJJ3i) j'jJ£lr'3Jj£)J:
ÆCm 25