Ægir - 01.08.1998, Síða 35
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Afkoman hjá sjávarútvegsfyrirtœkjum
á jyrri hluta ársins erframar vonum:
r
Islendingar eru
heimsmeistarar
í sjávarútvegi
- segir Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson,
hjá Kaupþingi Norðurlands
reksturinn í sjávarútvegi þá verði ekki
framhjá því litið að stjórnun fyrirtækj-
anna sé að batna, önnur hugsun hafi
komið inn með hlutafélagavæðing-
unni, sveitarfélög séu að draga sig út
úr fyrirtækjunum í ríkari mæli og
þannig mætti áfram telja. Allt segir
hann þetta hjálpa til við að tryggja
stöðu fyrirtækjanna og skila góðum
rekstri. „Arðsemiskrafan er nú meira
leiðarljós en áður var, og fyrirtækin
ekki lengur rekin á félagslegum for-
sendum. Sjávarútvegsfyrirtækin eru
hins vegar komin í þá stöðu að upp-
safnað tap er að verða búið og handan
við hornið eru mun meiri skatttekjur
ríkissjóðs af þessum fyrirtækjum.
Þannig er líklegt að á næstu árum
muni endanleg niðurstöðutala rekstr-
arreiknings eitthvað láta á sjá," segir
Þorvaldur.
Tekur okkur enginn fram
Hvað varðar bolfiskvinnsluna og þró-
unina yfir í fullvinnslu á neytenda-
markað með fullkomnum tæknibún-
aði, telur Þorvaldur að þeir spádómar
hafi gengið eftir að fyrir meira unnar
vörur fáist mun hærra verð.
„Já, við sjáum fyrirtæki eins og t.d.
HB á Akranesi, ÚA, Fiskiðjusamlag
Húsavíkur skila mjög góðum árangri.
Þetta segir okkur að íslendingar eru að
færast frá því að vera framleiðsluþjóð á
hrávöru yfir í að framleiða matvæli
beint ofan í neytendur, þótt auðvitað
sé sú fullvinnsluvæðing enn skammt á
veg komin.
Á hinn bóginn verður einnig að líta
á það að með aukinni fullvinnslu og
stærri sérsamningum við erlendar
verslunarkeðjur reynist íslensku fyrir-
tækjunum erfiðara að velta t.a.m. hrá-
vöruhækkunum út í endanlegt verð
afurðanna.
Ég segi hins vegar óhikað að íslend-
ingar eru búnir að sanna að þeir eru
heimsmeistarar í sjávarútvegi. Það tek-
ur enginn okkur fram í sjávarútvegi,
hvort heldur lítur að veiðistjórnun, út-
gerð eða vinnslu. Þetta eru kannski
stór orð en þetta er bjargföst skoðun
mín miðað við þann árangur sem við
sjáum hér allt í kringum okkur í sjáv-
arútveginum, þá ekki síst sé litið til
annarra þjóða" segir Þorvaldur Lúðvík
Sigurjónsson.
Sex mánaða uppgjör sjávarútvegsfyrirtækjanna
Síldarvinnslan með
208 milljóna hagnað
Síldarvinnslan í Neskaupstað skilaði
208 milljóna króna hagnaði fyrstu
sex mánuðina, borið saman við 175
milljóna króna hagnað á sama tíma-
bili í fyrra. Rekstrartekjur jukust um
8% milli ára. Fyrirtækið hefur gefið
út áætlanir um 100 milljóna króna
hagnað á síðari hluta ársins.
Tangi í góðum hagnaði
Tangi hf. á Vopnafirði sýnir tölu-
verðan bata í afkomu milli ára. A
fyrstu sex mánuðunum var hagnað-
ur fyrirtækisins 85 milljónir króna
en 49 milljónir á sama tímabili í
fyrra. í heild er batinn af reglulegri
starfsemi tæp 59%.
SH áætlaði meira
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hafði gert áætlanir um betri afkomu
á fyrri hluta ársins en raun varð á.
Niðurstaða uppgjörs félagsins var 59
milljónir í hagnað, á móti 233 millj-
ónum á sama tímabili í fyrra. Erfið-
leikar á Rússlands- og Bretlands-
mörkuðum skýra fyrst og fremst
minni hagnað.
Grandi skilar á
íjórða hundrað
milljónum
Grandi hf. og dótturfélag þess, Faxa-
mjöl, skiluðu 324 milljónum í hagn-
að fyrstu sex mánuðina. Þetta er bati
upp á tæplega 8 prósentustig og er
hagnaðurinn um 16% af veltu fyrir-
tækisins.
AGIR 35