Ægir - 01.08.1998, Síða 43
SAMLEIÐ MEÐ ÍSLENSKUM SJÁVARÚTVEGI
Brimrún ehf:
Sala hafin á GMDSS
Q arskiptabúnaði frá Furuno
rimrún ehf. í Reykjavík hófný-
verið innflutning á fjarskipta-
húnaði frá japanska fratnleiðandan-
utn Furuno Electric Company. Fyrir-
tœkið getur nú boðið allan GMDSS
f/arskiptabúnað frá Furuno, en sem
kunnugt erþurfa öll skip settt eru 24
nietra eða lengri að vera nieð þann
búnað frá og með 1. febrúar 1999.
í frétt frá Brimrún segir að með sölu
á fjarskiptatækjum frá Furuno bjóði
Brimrún svo til eingöngu tæki og
skipabúnað frá sama framleiðanda.
Útgerðir eigi þess nú kost að kaupa
heildarlausn frá Furuno en stór hluti
íslenska fiskiskipaflotans sé búinn
tækjum frá þeim framleiðanda að ein-
hverju eða öllu leyti. „Furuno hefur í
áratugi framleitt fjarskiptabúnað fyrir
GMDSS fjarskiptasamstœða frá Furuno.
báta og skip af öllum stærðum og
gerðum, allt frá trillum til stærstu
fiskiskipa, flutninga- og farþegaskipa.
Auk þess er Furuno eitt stærsta fyrir-
tæki heims í framleiðslu á fiskileitar-
og siglingatækjum," segir í tilkynn-
ingu frá Brimrún.
GMDSS búnaðurinn er fyrst og
fremst hugsaður til þess að auka ör-
yggi sæfarenda. Með búnaðinum er
hægt að senda neyðarskeyti á þrjá mis-
munandi vegu með því einu að halda
inni neyðarhnöppum. Þá á sér stað
neyðarsending í þremur kerfum (haf-
svæði A3): DSC (sjálfvirkt valkall) á
VHF bylgju, DSC á MF/HF og Inmarsat
C (gervitunglasending). Með þessu
móti fer almenn neyðarsending frá
skipinu til strandstöðva og annarra
skipa sem búin eru GMDSS búnaði.
Þar er tekið á móti sendingunni sem
sýnir hvaða skip er í háska og hvar
það er statt. Vinnist ekki tími til að
senda út neyðarkall með ofangreind-
um hætti er frífljótandi neyðarbauja
um borð sem hægt er að setja í gang
handvirkt. Sökkvi skip fer baujan sjálf-
virkt í gang. Neyðarbaujan sendir upp-
lýsingar í gegnum gervitungl til jarð-
stöðvar sem segja til um fjölda í
áhöfn, nafn skips og staðsetningu.
Dæmi um GMDSS fjarskiptabúnað
sem Brimrún býður frá Furuno fyrir
hafsvæði A3:
FM-8500 semi-duplex VHF talstöð
með innbyggðum DSC sendi-móttak-
ara fyrir rás 70, FS-1662-15/25 150 W
eða 250 W semi-duplex MF/HF tal-
stöð, AA-50 sex rása MF/HF DSC vakt-
móttakari, DSC-6 MF/HF DSC stjórn-
borð, DP-6 radíótelex, IB-581 tölva
með LCD skjá fyrir radíótelex, PP-510
prentari fyrir radíótelex.
Tvöföldun fyrir A3:
FM 8500 semi-duplex VHF talstöð
með innbyggðum DSC sendi-móttak-
ara fyrir rás 70, Felcom 12 Inmarsat C,
IB-581 tölva með LCD skjá fyrir radíó-
telex, PP-510 prentari fyrir radíótelex.
ÉssS. ~r' ~r Iffr !*■. a*(’c.3d
GMDSS VHF-talstöð frá Furuno.
ÆGllR 43