Árbók Háskóla Íslands - 02.01.1955, Síða 31
29
eins og myndin (mynd 6) sýnir. Punktarnir voru allir í beinni
línu, eða því sem næst, og hefur aflitunin því verið hlutfallslega
jöfn á tímanum 10—60 eða 90 sekúndur. Ef gera má ráð fyrir að
svo hafi einnig verið allt frá byrjunarstiginu, fæst- „augna-
bliksmælingargildið" með því að framlengja línuna til vinstri,
þangað til hún sker lóðrétta ásinn. En munurinn á því og mæl-
ingargildi próflitarins óbreytts sýnir, hve mikið hefur aflitazt,
áður en þau efni, sem hægvirkari eru en askorbínsýran, komu
til sögunnar. Með þessari aðferð má ætla, að komizt verði nær
hinu.rétta, en fyllilega örugg getur hún ekki talizt, og ónákvæmni
getur orðið talsverð.
Af fyrstu sýnishornunum 6, sem rannsökuð voru á venjulegan
hátt, var meðaltalið 14,4 mg, en það er vafalítið of hátt, og eru
þessi sýnishorn ekki talin með í töflunni, heldur aðeins hin, sem
rannsökuð voru með ofangreindri aðferð. Voru berin stundum
tekin í heilu lagi, en stundum aðeins safinn, og var heldur auð-
veldara að fást við hann.
Eftir því, sem þannig verður næst komizt, virðist því ekki
vera nema um 10 mg að meðaltali í krækiberjum, og kann vera,
að þetta sé fremur of hátt metið en of lágt. Sama talan (10 mg)
er gefin upp í norskum töflum, (rannsóknaraðferð er ekki til-
greind), en í berjum frá Kólaskaga (14), sem rannsökuð voru
fyrir alllöngu (dýratilraunir), var talið að C-vítamínmagnið
hefði ekki náð 5 mg. — Fárra annara. heimilda mun völ um
krækiber.*)
I berjum, bláberjum og krækiberjum, sem frosið höfðu áður
en tínd voru, fannst áberandi lítið af C-vítamíni, einkum í kræki-
berjunum. Að vísu var hér aðeins um eitt sýnishorn að ræða af
hvorri tegund, en engan veginn er ólíklegt, að frostinu hafi verið
um að kenna (sbr. bls. 36, um fryst grænmeti).
Rósaráldin. Einkennilega mikið er af C-vitamíni í rósarald-
*) 1 nýútkomnu riti um manneldisrannsóknir í Grænlandi (43) er þó m. a.
getið C-vítamínmælinga í krækiberjum og bláberjum. 1 Jcrækiberjum mæld-
ust rúmlega 20 mg, og er sennilega of hátt metið, því að mælt mun hafa
verið með „titratio". I krœkiberjasaft mældust 4 mg (nóvember) og í blá-
berjum (að því er virðist eitt sýnishorn) 40 mg.