Búnaðarrit - 01.01.1888, Blaðsíða 72
68
Ea þótt menn séu, ef svo mætti að orði kveða,
neyddir til stjórnleysis, í hvaða stöðu sem peir eru, þá
hefur þó mikill hluti þljóðarinnar lifandi tilfinningu
fyrir þessu þjóðarmeini og vildi fúslega, að á því væri
ráðin bót. ]pað er líka óefað, að allmargir fara til Ame-
ríku, til þess að flýa stjórnleysi í landinu. Og þeir, sem
fara af þessari ástæðu, eru aftur hinir nýtustu af þeim,
er vestur flytja. Margir hljóta að kannast við, að þeir
hafi heyrt unga og efnilega bændur segja, að þeir færu
af landi brott sökum þess, að þeim yxi hjúahaldið í
augum. ]>eir treystust þó ekki einir að stríða á móti
straumnum, en hefðu eigi geð til þess að láta liann
bera sig eftir rangri og skaðlegri stefnu ; enda mættu
þeir ekki við því fjárhagsins vegna. Sarna er að segja
urn efnileg hjú, þau fara ekki öll til Ameríku sökum
þess, að þau álíti eigi að hér á landi megi, engu síður
en annarstaðar, framfieyta lífi sínu á heiðarlegan hátt.
En þau fara inörg af þeirri ástæðu, að þeiin íinnst ó-
kjör að vera vistbundin sökum stjórnleysis húsbændanna,
og að ógjörningur sé að vera hjú með hjúum, eins og
þau reynist allt of mörg. En þó að sjaldan reki svo
langt, að menn flýi land af þessum ástæðum, þá eru
kvartanir mjög algengar bæði hjá húsbændum og hjú-
um, hvorum yfir öðrum. Enda er öll von til þess; því
að hörmulegt er til þess að vita, hve mikinn skaða og
hneysu leiðir á mörgum stöðum af stjórnleysi húsbænda
og lijúa. ]>að kveður líka víða svo rammt að þessu, að
oft er erfitt að vita, hvort hjúið er húsbóndinn eða
húsbóndinn lijúið. ]>etta mun fiestum vera svo kunn-
ugt, að eigi þurfi að sanna það með dæmum. ]>ó má
geta þess, að einu sinni bað granni granna sinn að lána
sér hest næsta dag, til þess að binda hey á. »]>að vildi
eg gjarna gjöra, og get það mér að meinalausu», kvað
hinn; »en það á líka að binda hjá mér á morgun, og