Hlín - 01.01.1922, Blaðsíða 10
8
Hlln
XI. Endurskoðaður reikningur Sámbandsins iesin upp
og samþyktur.
Gjaidkeri skoraði á sambandsdeildirnar að greiða gjöld
sín í sambandssjóð á aðalfundi ár hvert.
XII. Rætt um hvernig verja skuli fé því, 500 kr., er
Alþingi veitti til Sambandsins á síðasta þingi. (Fyrir árið
1923). Tillaga samþykt:
^Fundurinn gefur stjórninni heimild tii að verja nokkru
af fé þessu tii stuðnings landskjörslista kvenna (póst-
gjöld og símagjöld).«
Önnur tillaga svohljóðandi samþykt:
»Fiíndurinn heimilar stjórninni að útvega fyrirlesara
(konu), ef hentugleikar leyfa, til að ferðast um á fjelags-
svæðinu.«
XIII. Kosin stjórn Sambandsins:
Fundinum barst brjef frá ritara Sambandsins, frú Ingi-
björgu Benediktsdóttur, þar sem hún telur sig ófáanlega
til að taka við endurkosningu.
Kosningu hlutu: Utanáskrift:
Formaður: Halldóra Bjarnadóttir, »Hlín«, Reykjavík.
Gjaldkeri: Sigriður Porláksdóttir, Brekkug. 5, Akureyri.
Ritari: Pórdis Ásgeirsdóttir, Húsavík.
Vegna þess að formaður Sambandsins flytur í haust
búferlum af sambandssvæðinu (til Reykjavíkur) voru tvær
konur kosnar í stjórnina til vara.
Hlutu kosningu:
Varaformaður: Kristbjörg /ónatansdóltir, Akureyri,
Vararitari: Kristjana Óladóttir, Húsavlk.
XIIII. Til að endurskoða lög S. N. K. og sýslusam
bandslögin voru kosnar 3 konur: Hólmfríður Pjetursdóttir,