Hlín - 01.01.1932, Blaðsíða 142
140
HUn
Um myndirnar (Skýringar).
1. mynd: Krossofin ábreiða frá Fossvöllum í Jökulsárhlíð.
(Sjá bls. 17).
2. mynd: Krosssaumuð blómsturkarfa eftir Helgu Benedikts-
dóttur, Gröndal, Hafnarfirði, saumuð eftir blómsturkörfu Guð-
rúnar Sveinbjarnardóttur, föðursystur Helgu, er saumuð var
með perluspori (yfir eilm þráð).
Neðst á bls. er mynd af íslenskum fljettusaum. Með þessum
saum eru heilar ábreiður í Þjóðmenjasafninu saumaðar, flestar
með íslensku bandi. Með honum var saumað í rósavetlingana,
sem tíðkuðust mjög áður fyr (sjá næst síðustu bls.). Þessi
saumur er einkennilegur og sjerstakur fyrir okkur íslendinga
og ætti að takast upp að nýju. Undirsporið er jafnan tvöfalt
lengra en yfirsporið, sem er eins og vanalegt krosé-spor. Saum-
inn má sauma fram og aftur eins og annan kross-saum.
3. mynd: Sessa saumuð með blómstursaum af Jórunni ísleifs-
dóttur, frá Brekku á Álftanesi er síðar giftist Páli Melsteð,
sagnfræðingi. Jórunn ánafnaði sessuna Sigríði Gísladóttur,
prestskona á Mosfelli í Grímsnesi. Sessan er í eigu Stefaníu
Thorarensen, f. Stephensen, dóttur Sigríðar.
Blómstwrsaumur (sýnishorn), saumað hefur Margrjet Símon-
ardóttir frá Brimnesi. Blómstursaumur er þannig gerður, að
stungið er upp í miðjan þráðinn (hann klofinn), og myndast því
spor líkt steypilykkju. Þessi saumur er mjög mikið notaður til
hannyrða hjer á landi til skamms tíma: á samfellur, sessur o. fl.
Litirnir, voru mjög fjölbreyttir. Oftast var notað útlent band,
fínt. Saumurinn og munstur þau, er honum fylgja, eru alger-
lega einstök fyrir fsland, og ættu þessar gömlu, þjóðlegu gerðir
að komast aftur til vegs og virðingar í íslenskum hannyrðum.
4. mynd: Þetta teppi er saumað af Unni ólafsdóttur, hann-
yrðakonu, Hverfisgötu 84, Reykjavík, saumað í ullartau (boy)
með fjórum litum. Stærðin er 4,15 m. X 2,10 m. — Aðalupp-
drátturinn (hringirnir) er gerður eftir hinni frægu Valþjófs-
staðahurð, sem nú er endurheimt frá Danmörku eftir langa úti-
vist. Hurðin er álitin vera frá 12. eða 13. öld. Uppdrátturinn í
neðri hringnum er tekinn upp á alla ísiensku bankaseðlana.
— Utan um myndina hefur frú Unnur skorið eikaramma með
höfðaletri. Er þar og í hringjunum utan um myndirnar, lýst
sögninni, sem við myndirnar er bundin,