Dvöl - 01.01.1938, Page 26

Dvöl - 01.01.1938, Page 26
b VÓL 2Ö að auka kynni frændþjóða okkar og annara á sjálfum okkur, landi okkar, fegurð þess og framtíðar- möguleikum, þá verðum við að eignast þau tæki og gögn, sem til þess eru hagfelld og heppileg, svo sem skuggamyndir og mjófilmu. Og við verðum ekki síður að búa fræðslustarfsemi landsins hlið- stæðum tækjum, sem efla þekk- ingu almennings á frændum okk- ar, heimkynnum þeirra og lífi handan við hin miklu úthöf. Og eitt enn. Hversu ánægjulegt væri það ekki, að Islendingar vest- an hafs og austan gætu skipzt á fjölþættum sýnimyndum úr lífiog störfum þjóðarinnar beggja meg- in Atlandshafsins. Pað gæti vel orðið til stóraukinna tengsla þjóð- arbrotsins í Ameríku við ættjörð sína og ættingja. Það eru þvílík tengsl, er svo fjölmargir ágætir Vestur-íslendingar hafa barizt fyr- ir og reynt að halda við, þrátt fyr- ir mikla erfiðleika og þrátt fyrir ómótmælanlegt skeytingarleysi okkar í [heimalandinu. Hvað vitum við um hin margþættu störf, líf og baráttu landa okkar í Vestur- heimi undir næsta ólíkum skil- yrðum og við eigum að venjast? Og hvað’ myndf Islendingum vestra, sem svo margir þrá ætt- jörð sína og heimahaga, kær- komnara en að geta séð — þótt í myndum einum væri — fegurð og sérkenni föðurlandsins, geta á þann hátt kynnzt og fylgzt með margbrejdilegri þróun þjóðlífsins fram á þennan dag? Ef skólar íslendinga í Vestur- heimi ættu yfir góðu, íslenzku sýnimyndasafni að ráða, held ég, að það gæti orðið þeim dýrmæt eign í þeirri einlægu, en erfiðu baráttu, sem þeir heyja fyrir við- haldi þjóðernis síns og sambands við heimalandið.' Ég efast um, að við gætum gefið þeim öllu gagnlegri og hlý- legri gjöf, eða kærkomnari. Slíkt safn væri lítill, en snot- ur viðurkenningarvottur héðan að heiman til fólks, sem býr fjarvist- um við ættland sitt, en hefir þó sýnt því svo trausta tryggð og ræktarsemi gegnum langa og tor- velda lífsbaráttu. Ríkastur allra er sá sparsami, en sá ágjarni fátækastur. Náttúran hefir ekki sagt við mig: Vertu fátækur; og þvi siður: Vertu ríkur. En hún býður mér að vera sjálf- um mér nögur. Vitur maður er eyðileggingunni of- urseldur, ef hann á ekki einnig sterka skapgerð. Eyrað og heilinn þekkja hugtakið endurtekning, en fyrir hjartanu er allt nýtt. Chamfort.

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.