Dvöl - 01.01.1938, Page 27
O V 0 L
21
Jólatrésfagnaður
og brúðkaup
Eftir Fjodor Dostojefskij
Fjodor Doatojevskij er fæddur í
Moskva árlð 1821, en dó í Péturs-
borg árið 1881. j
Pegar á ungra aldri var hann tek-
inn fastur fyrir smávægilegar sakir og
dæmdur til dauða. Þeim 'dómi var
síðan breytt í utlegðardóm, og dvaldi
hann I Sibiriu næstu 10 ár. Þessi út-
legðarár mótuðu mjög líf hans og
skoðanir og gætir pess víða í ritum
hans. Hann hefir skrifað mikið um
reynslu sína o g lífið í útlegðinni;
Kemur par í ljós sá mikli skilningur
á sálarlífi meðbræðra hans, og dul-
spekilegum og heimspekilegum efn-
um, sem hrærir menn til meðaumkunar
með þeim, sem eru óhamingjusamir.
Dostojevskij er eitt af höfuðskáldum
Rússa, og eru bækur hans bæði marg-
ar og stórar.
Á islenzku hefir birzt eftir hann ein
stór skáldsaga, sem er með beztu bók-
um hans, það er „Glæpur og refsing"
í þýðingu Vilhjálms Þ. Gíslasonar.
Fyrir nokkrum árum var ég
viðstaddur brúðkaup...........Nei,
ég ætla heldur að segja þér frá
jólatrésfagnaði. Brúðkaupið var
að vísu prýðilegt, og mér geðj-
aðist mjög vel að því. En hitt
var þó ennþá betra.
Ég veit ekki, hvernig á því
stendur, að þetta brúðkaup skuli
minna mig á jólatrésfagnað.
Dað vildi þannig til, að hérna
um árið var ég staddur á barna-
skemmtun á gamlaárskvöld. Þetta
var hjá háttsettum kaupsýslu-
manni, sem átti mikið af skyld-
mennum og kunningjum, en líka
mikið af slægð. Barnaskemmtun-
in var nú samt aðeins höfð til
þess að fullorðna fólkið gæti kom-
ið saman og spjallað um áhuga-
mál sín, en það liti þó eins út og
það hittist þarna vegna blessaðra
barnanna, eða þá af hreinni til-
viljun.
Ég var ókunnugur, og af því
að ég hafði enga löngun til þess
að láta bera á mér, gat ég eytt
kvöldinu í kyrrþey.
Þarna var líka annar gestur,
sem eins og ég virtist vera utan
við samkvæmið. Hann var það
fyrsta, sem vakti athygli mína.
Af útliti hans var ekki hægt
að sjá, að hann væri kominn af
heldra fólki.
Hann var hár, magur, mjög
alvarlegur og vel klæddur. Strax
og hann hafði komið sér fyrir
einn úti í horni, hvarf uppgerð-
arbrosið af andlitinu, en svartar