Dvöl - 01.01.1938, Side 44

Dvöl - 01.01.1938, Side 44
38 D V 0 L mey sína, Evu, dóttur prófessors Michael Sars, eina glæsilegustu söngkonu Noregs á þeirri tíð. Annars varð hún skammlíf, dó 1907. Árið 1890 leggur hann fyrir landfræðifélagið í Osló ráðagerð um norðurheimskautsleiðangur, og féllust sérfræðingar á ráða- gerðir hans. Norska þingið veitti tvo þriðju kostnaðar til fram- kvæmda, en Oskar II. Svíkonung- ur, sem var hinn mesti vinur lista og vísinda, og aðrir einstaklingar, lögðu fram það, sem á vantaði. Skip hans, „Fram“, sem hann lét smíða til þessarar farar, var alveg óvenjulegt að allri gerð, óhemju- sterkt og svo hallfleyttar síðurnar, að ætlað var að það mundi lyft- ast, þegar það kæmi í umbrota ís, í stað þess að merjast milli jak- anna, eins og orðið höfðu örlög margra norðurhafsfara. 24. júní 1893 sigldi Fram frá Oslo. Sver- drup var skipstj., Sigurd Hansen ungur sjóliðsforingi, átti að annast stjörnufræði- og veðurfræði-mæl- ingar. Með var einnig Henrik Blessing, doktor í jurtafræði, og Johansen. 22. september fraus Fram inni á 78. gr. 50 mín. n. breiddar, og nú byrjaði hið langa rek með ísnum yfir hina enda- lausu auðn íshafsins. Nansen sá brátt, að Fram þoldi þrýsting íss- ins prýðilega, svo að skipinu var engin hætta búin, og 14. marz lagði hann af stað í leiðangur frá skipinu með Johansen, á 84. gr. n. breiddar. 8. apríl sneru þeir aftur á 86. gr. 14 mín. n. br., og var það lengst norður, ernokkur maður hafði komizt, og lögðu þá leið sína til Franz Joseps lands. Komust þeir nú í matarskort og hinar mestu hörmungar og urðu að dveljast á Frederik Jacksons eyju við Franz Joseps land frá 26. ágúst 1895 til 19. maí 1896. Lögðu þeir þá af stað þaðan og ætluðu að ná Spitzbergen, en 17. júní hittu þeir flokk úr leið- angri Bretanna Jackson og Ham,- worth og fóru til Noregs með skipi þeirra Windward, og komu til Vardö 13. ágúst. Viku seinna kom Fram til Noregs heilu og höldnu.*) Var Nansen nú tekið eins og þjóðhetju og nafn hans á hvers manns vörum. Ferðaðist hann nú víðsvegar um álfuna og skýrði frá rannsóknum sínum í vísindafélögum. 1896 er stofnað handa honum prófessorsembætti í Osló. Er svo það í skemmstu máli af Nansen að segja, að á þessari braut heldur hann áfram, *) Jón Eyþórsson hefir skrifað ferða- sögu F. N yfir Ishafið á „Frami“ í 3. árg. Dvalar. Segir J. E. þarr í upphafi m. a.: „Ferðasaga Nansens mun vera til á flestum tungumálum Norðurálfu, nema íslenzku. Og um allan heim lesa drengir hana með meiri áhuga en nokkurt æfintýri og strengja þess heit að gera eins vel eða betur heldur en Nansen, pegar. peir séu orðnir stórir". Ritstj.

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.