Dvöl - 01.01.1938, Side 52
46
D V 0 L
Merkileg grein um merkilegt mál
Dr. phil. Helfíi Péturss
I.
I síðasta hefti tímaritsins
„Dvöl“ sl. ár, er grein eftir Borg-
firðinginn Porstein Jónsson frá
Olfsstöðum, sem mjög er þess
verð, að vakin sé eftirtekt á henni.
Vissi ég áður, að P. J. er með
gáfuðustu skáldum íslenzkum,
sem nú eru uppi, en ekkert hef-
ir þó gert mér það eins ljóst og
þessi grein hans í „Dvöl“. Hún
er um drauma. P. J. hefir gert
það, sem enginn gerir nema sá,
sem vitur er, en það er að láta
það, sem hann hafði lesið eftir
mig um eðli drauma, verða til
þess, að hann íór sjálfur að at-
huga þetta efni, og segir hann
þarna í greininni á aðdáanlegan
hátt frá nokkrum af- þessum at-
hugunum sínum. Hin algenga trú
er, að endurminningar vorar úr
vöku skapi draumana, en Por-
steinn hefir gert sér fullkomlega
Ijóst, hvílíkt ósamræmi er milli
vökumLnninganna og þess, sem
fyrir oss ben í draumi, og að hið
rétta er, að draumsýni'rnar hafa
með sér endurminningar, sem alls
ekki eru til í vökulífi voru. En
þetta er mjög þýðingarmikið at-
riði til að glöggva sig á sam-
bandseðli draumlífsins. En þó
verður ennþá auðveldara að skilja
þetta, þegar vér veitum því eft-
irtekt, að það, sem er fyrir aug-
unum á einhverjum öðrum, verð-
ur að draumsýn vorri. Porsteinn
segir frá fróðlegu dæmi slíks, af
eigin athugun, og eins hefir hann
dreymt, að hann sæi sjálfan sig
í spegli, en það var þó í raun
réttri annar maður, sem hann sá.
Artemidór, hinn ágæti höfundur
draumafræði (Oneirokritikon), sem
er meira en 1700 ára gömul, seg-
ir frá þesskonar athugunum, en
hefir að vísu ekki skilið þær, svo
einkar góð hjálp sem þær þó eru
til þess að geta gengið alveg úr
skugga um,- að kenningin um
draumgjafann er rétt. Til eru