Dvöl - 01.01.1938, Blaðsíða 55

Dvöl - 01.01.1938, Blaðsíða 55
D VOL 49 það í marga daga. Varirnar eru þurrar og gráar, þótt hún í sí- fellu væti þær með tungunni. Hún er önnum kafin. Augu hennar hvarfla naumast frá börn- unum. Tvö þeirra yfirgefa hana aldrei. Annað þeirra hvílir við brjóst 'hennar, sem nú eru ekki annað en skorpin húðfelling. Hún þrýstir litlu veiklulegu verunni að brjósti sínu. Pað er tæmt fyrir löngu, en barninu er samt fróun að hvíla þar, og langa stund er grátur þess ekki eins örvænting- arfullur og fyrr. Hitt barnið er tveggja ára telpa. Lítil, visin vera, sem stöðugt hvílir þögul og hreyfingarlaus í örmum móður sinnar. Hin börnin þrjú færa sig einnig lítið úr stað. En skríði eitt þeirra eitthvað úr stað eða nálgist vatnið, hrópar móðirin á það og tekur ekki ró sína aftur, fyrr en öll börnin eru enn á ný það ná- lægt henni, að hún nái til þeirra með höndunum. Á nóttunni er hún einkum óró- leg. Henni kemur naumast blund- Ur á augu, og hún lætur börnin hvíla þétt upp að sér. Ótal sinn- Um hrekkur hún upp af móki sínu og þreifar eftir börnunum sínum. Eru þau nú þarna öll — öll fimm? Hvar er hin telpan? Jú — hér er hún — þau eru hér öll. Ef faðirinn bærir sig hið minnsta, hrópar hún með höst- Um rómi: »Hvað ertu að gera — hvað er nú að?“ Stundum eys faðirinn yfir hana bitrum formælingum. Henni er vel ljóst hversvegna. Hún svarar engu orði, en gætir þess, að börnin víki ekki frá sér og telur þau aftur og aftuö í nátt- myrkrinu. Að lokum rennur nýr dagur. Hún reynir að láta líta svo út sem hún sé önnum kafin við matreiðslu. Hún sækir dálítið af köldu ár- vatni og hrærir saman við það ofurlitlu af mjölögninni, sem þau eiga eftir. Hún reynir að segja glaðlega: ,,Pað er vissulega meira mjöl eftir en ég hélt. Pað nægir okk- ur áreiðanlega í marga daga.“ Hún gætir þess, að mest komi í hlut föðurins og þaggar niður deilu eldri drengjanna tveggja, vegna óljóss ótta um, að faðir- inn veiti henni athygli. Hún sit- ur kyrr og starir á þá dimmum augum, en mælir ekki orð. Pað kemur minnst í hennar hlut af matnum, en hún lætur sem það taki sig langan tíma að neyta þess. Hún bragðar ekki sjálf á neinu, ef hún fær komið því við. Lætur sem hún sé ekki soltin eða hafi þrautir innvortis. Ef maður hennar snýr baki að henni eitt augnablik, lætur hún matinn í flýti til smábarnanna tveggja. En faðirinn lætur ekki blekkja sig. Ef hann veitir gjörðum henn- ar athygli, hrópar hann: ,,Ég fyrirbýð að þú sveltir til bana til þess að halda lífinu í þeim!“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.