Dvöl - 01.01.1938, Page 60

Dvöl - 01.01.1938, Page 60
r 54 um og fjölda af púðum. Á þeim lágu Rómverjar, er þeir mötuð- ust. Á milli dyranna, sem liggja inn í ýms smáherbergi, eru líkn- eski úr marmara eða bronsi, Svo komum við inn í garð umlukt- an súlum, þar eru tré, runnar og yndisleg blóm, smá gosbrunnar, líkneski og brjóstmyndir. Ot frá þessum garði liggja svo aftur smá herbergi og salir, allt mjög skrautlegt. Flest er fólkið hvít- klætt. Það er í ullarskyrtum, með sjöl, ,,Toga“, sem lögð eru í margbrotnar fellingar. Á fótunum hefir það sandala. En þetta er aðeins draumsýn — draumsýn, sem sýnir okkur tvö þúsund ár aftur í timann. Nú er allt autt og tómt, fólkið dáið, þökin fallin, súlurnar brotnar, ábreiðurnar tjöldin og púðarnir horfið, líkn- eskin og skrautgripirnir flutt burt. Aðeins gólfin og veggmyndirn- ar eru að mestu óskemmt. Eitt hús er að vísu nú nær því éins og það var þá, það er hús Vetti bræðranna. Þeir voru stórauðugir, ógiftir Rómverjar, og lifðu sæl- lífi miklu. Það, sem fallið var af húsi þeirra, hefir verið byggt upp. Ekkert hefir þaðan verið tekið, þar eru líkneski og súlur úr hrein- um marmara. Rær plöntur, sem vaxið hafa í garðinum á liðnum öldum, hafa verið gróðursettar þar á ný. í þessum garði erum við nú, þegar Joseppi með beyg- ingum, handapati og allri kurt- eisi ítalans, biður „hinar heiðruðu D V 0 L dömur“, eins og hann kemst að orði, að setjast niður. Hann labb- ar með stóra lyklakippu á und- an karlmönnunum að lokuðu herbergi, sem körlum er a;ðeins leyft að sjá. Par hverfa þeir inn í rökkrið, en við sitjum eftir úti í sólskininu. Hvað var að sjá á þessum leyndardómsfulla stað, fékk ég aldrei að vita. Svo kom- um við í baðhúsið, það er eina húsið, sem haldið hefir þakinu, vegna þess að það var hvolfþak; myndir og „útflúr“ er málað á loft og veggi. Þar hafði verið heitt og kalt vatnsbað og einnig gufubað, sem hitað var með hringrás milli veggja. Fyrir utan baðhúsið var stór leikvöllur og skammt þaðan stærsta veitinga- húsið í borginni. Þar vioru löng borð með misjafnlega stórum göt- um. Þar hafa vínkerin verið geymd. Við komum að þró einni mikilli. Leiðsögumaðurinn segir okkur þá ótrúlegu sögu, að hún hafi verið til þess ætluð að æla í hana, þegar menn höfðu etið og drukkið um of. Svo mikið var óhófið í þá daga. Þar er og hringleikhús eitt mikið. Alþýða manna hefir setið á hæstu bekkj- unum. Þangað upp lágu mjóar steintröppur, og voru þær mjög slitnar af fótum þeirra þúsunda, sem þarna höfðu horft á leika, merki þess, hve leikhús hafa ver- ið vel sóýt í þá daga. Við kom- um í Forum. Nú eru súlurnar brotnar, líkneskin flutt í Na-

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.