Dvöl - 01.01.1938, Side 69

Dvöl - 01.01.1938, Side 69
D V 0 L 63 Austfirzkar stökur Á ofanverðri 19. öld bjuggu á Langhúsum í Fljótsdal hjón að nafni Þorbjörg og Sigfús. Þótti Þorbjörg afbrigða vel skáldmælt, og svo hraðyrkin, að hún lét iðu- lega fjúka í hringhendum. Breidd- ust vísur hennar út á Héraði og eru margar kunnar enn, t. d. þess- ar: Lundhýr Lorri þýddi mund, þandi skúra um hæð og sand. Undir fjalla ultu á grund, anda volgum blés á land. En Qóa var hörð: Rastir saman fjúka fast festir Góa slæman gest, kastar éljum kynja hast, kestir snjóa hylja flest. Eitt sinn bar mann að garði á Langhúsum, og var sá langt að kominn. Þorbjörg var úti stödd °g kastar gesturinn á hana kveðju, °g spyr um heiti bæjar og bónda. Þorbjörg svarar: Máls af krús eg mæli fús — meður sónar blandi — á Langhúsum og Sigfús er eg húsráðandi. Börn þeirra Sigfúsar voru Jón, Einar, Kristrún og Sigfús. Einar bjó á Stórabakka í Hróarstungu, Ienti í brösum við Pál Ólafsson skáld, þegar hann var á Hallfreð- arstöðum, og kváðust þeir á lengi og ekki allt sem prúðast. Sigfús yngri bjó á Skjögrastöð- um í Skógum, hann var hagyrð- ingur góður, fræðimaður og skrif- aði manna fegursta rithönd. Dæt- ur hans, Þuríður, Margrét, Rann- veig og Kristrún eru enn á lífi og hafa yndi af að bregða fyrir sig pennanum, bæði í bundnu máli og óbundnu. Einu sinni var Sigfús á ferð yfir Fljótsdalsheiði milli Jök- uldals og Fljótsdals, og var ein dætra hansí í för með honum. Var veður hið fegursta og fjallasýn. Byrjar Sigfús þá: Snæfells tindinn háa, hreina, himinlindar gyltir binda — og botnaðu nú, dóttir góð, segir hann. Hún svarar: Hans er strindi — höldar meina — hversdags yndi sumarvinda. Ein dóttir Rannveigar Sigfús- dóttur er Jóhanna Þorsteinsdóttir húsfreyja að Teigi í Vopnafirði. Hafa allvíða birzt eftir hana ljóð undir nafninu „Erla“, og er nú nýkomin út ljóðabók eftir hana.

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.