Dvöl - 01.01.1938, Page 70

Dvöl - 01.01.1938, Page 70
64 D V 0 L Sigfinnur heitinn Mikaelsson á Grýtáreyri við Seyðisfjörð kvað um kvenfélag eitt þar eystra, er honum þótti sækja hart að safna fé til starfsemi sinnar. Fáu er líkt og fæst mun ýkt um fjárhagsþolið —. Falsi sýkt var frúar volið — fyrst var sníkt — og svo var stolið —. Þegar Páll Ólafsson skáld bjó að Nesi í Loðmundarfirði, voru þar eitt sinn á ferð fimm höfð- ingjar, og er sagt að þar væri einn eða tveir kaupmenn af Seyð- isfirði og hinir alþekktir embætt- ismenn þar eystra. Komu þeir inn á Nesi. Þegar þeir voru farnir af stað, kvað Páll: Lýgi og Smjaður skelltu á skeið — — skárri1 er það nú fylkingin —. Héðan úr hlaði Rógur reið, Ranglætið og Illgirnin — Einu sinni reri Páll sem oftar til fiskjar út á Loðmundarfjörð þeg- ar hann bjó á Nesi, en varð ekki ,Var. Þegar í landkom, þyrptistfólk niður í fjöruna ,og spurði Pál hvernig hann hefði fiskað, og svaraði þá Páll heldur stuttur í spuna: Það er ekki þorsk að fá, í þessum firði þurru landi eru þeir á og einskis virði. E. B. Merkileg bók The Northern Countries in World Economy, heiíir nýútkomin bók, sem Dvöl hefir verið send. Stór og fróð- leg bók, með nokkrum ágætum mynd- um. Ríkisstjórnir allra Norðurlanda og Norræna félagið hafa staðið að útgáfu hennar. Eins og nafnið ber með sér, fjallar bókin aðallega um þátt Norður- landa í heimsviðskiptunum. Lengra úti í heimi hættir mörgum við að líta smáum augum á Norður- lönd, þó að þau hafi, við nánari kynn- ingu, margt athyglisvert að bjóða, bæði i menningu þjóðanna og nátt- úru landanna. Við lestur þessarar bók- ar fá menn greinilega yfirsýn yfir, hve Norðurlöndin eru veigamikill þátt- takandi í heimsviðskiptunum. — Þjóð- ernisrembingur og sjálfstæðisgorgeir vilja stundum fjarlægja frændþjóðirn- ar á Norðurlöndum hverja frá annari. En úti í heimi er mjög oft litiðá Norðurlöndin sem eina heild. Við lest- ur þessarar bókar skýrist fyrir mönn- um, hve nauðsynlegt er, að Norður- löndin standi sem einn aðili út á við. Lærðu þau að leggja til hliðar mis- skildan innbyrðis-metnað og ýmsan ó- heilla krit, en kæmu fram sameinuð, þá yrðu þau sterk og stór Vegna rúmleysis er hér ekki liægt að rekja efni þessarar merku Norður- landabókar, þar sem tslandi er skip- að við hlið hinna Norðurlandanna, en mönnum, er skilja ensku og vilja fræðast um Norðurlönd, einkum í við- skipta- og fjárhagsefnum, er bent á að lesa haua.

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.