Dvöl - 01.01.1938, Page 76

Dvöl - 01.01.1938, Page 76
7Q D V 0 L fyrsta landnáms og fram á æfi þeirra, sem enn eru ungir. Höfund bókar- innar þarf ekki að kynna, hann er einn af þeim fáu „stóru spámönn- um“, sem nú skipa öndvegi í höllu Braga, hagorður sveitadrengur, sem á fáum árum hefir vaxið upp í stórskáld, andi, sem er glöggur á fyrirbæri lífs- ins og beinir óhikað sjónum yfir lönd og höf, þótt jafnan standi hann föst- uin fótum í íslenzkri gróðurmoid. Þessum línum var ekki það hlutverk ætlað að leggja dóm á bókina „Hrím- hvíta móðir,“ heldur aðeins minnast hennar, benda á hana. Og þrátt fyrir takmarkað rúm, get ég ekki stillt mig um að taka hér upp örfá erindi sem sýnishom. I kvæðinu Eldur uppi, sem er eitt þróttmesta kvæði bókarinnar, er ham- förum Skaftáreldanna m. a. þannig lýst: Er yfir byggðum hvelfist heiði bjart og hvítasunna skín á vígðan reit, að fjallabaki magnast mistur svart og mökkur stefnir nið’r í fagra sveit . . . Það dimmir að — og dufti rignir hljótt. Það dimmir enn. Það hnígur yfir nótt. Hvort aftur birtir, enginn maður veit . . . Úr norðri slítur slyddu í bláum lit, sem sletti jötunn bleki úr fjöðurstaf, og slikur sviði herjar hvers manns vit, að hvarmar þrútnir fara í tárakaf. — Á njólablöðin detta dulræn göt, — á dalsins váng, á túnsins græna flöt leggst öskufallsins hrjúfa, svarta haf. Og jörðin nötrar, hrollköld, hitaveik, er herpast iðrin, gaula og kippast til. Úr nasaholum blæs hún rauðum reyk, svo reið að truflast dags og nætur skil. — Um sérhvert brjóst hin innsta angist fer: Guð allrar skepnu! Viltu hjálpa mér! En bænin týnist strax í húmsins hyl . . . En íslenzka þjóðin barðist við „elda og isa“ og því gleymir skáldið ekki hafísnum heldur. Kvæðið fsalfíg er fjórða meistaraverkið, sem islenzk ljóðskáld hafa samið með „landsins forna fjanda“ að yrkisefni. Þar segir: Að norðan mikill floti fer, sem fyrir vindi gengur. — Af silfurstokkum bjarma ber og biiki slær á rengur. Og gullhlað sólar sindrar dátt í seglum krystalsglærum. Og bjartir stafnar hefjast hátt á hafsins bylgjum tærum. Og bitrar örvar yfir fold í einni svipan fljúga og griðalaust á gljúpri mold í gegnum hjartað smjúga. — Þá fölnar bóndans feimna kinn og felmti slær á sauðinn. Þeir vita, að flotaforinginn þar frammi — er sjálfur dauðinn. Kvæðið um baráltu sjómannanna og

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.