Dvöl - 01.01.1938, Síða 77

Dvöl - 01.01.1938, Síða 77
n v o l 71 ósigur þeirra fyrir blindum náttúruöfl- um heitir 1 saltan mar, Og norðanveður — vetrarnótt, með fáleg strengiagrip. Og frostið nístir hart og hljótt, og hrímgrá ísing furðu skjótt á kugginn setur svip. — Þar hefir brynju á sæinn sótt hið svarta fiskiskip. Svo lyftist banabylgjan há og brýtur fleyið valt. Og æðrulaust þeir sökkva i sjá, — þeim segir ekki meira frá, því nú er úti um allt ... — Nú kryddar djúpin dul og blá hið dýra jarðar salt. Ég býst nú við, að skáldskapur sem þessi verði af ýmsum kallaður „rót í sorphaugunum", „uppmálun svörtustu hliða lífsins" og „ylvana hugleiðing- ar hinnar steinköldu efnishyggju(!)“, þvi að eitthvað á þessa leið hljóða þrumuræður íslenzkra bókagagnrýn- enda oftast nú á dögum. Þessurn hreinleikans og hlýjunnar unn- endum til huggunar skal ég tilfæra hér eitt erindi úr síðasta kvæði bók- arinnar, Þegnar pagnarinnar. Það er tileinkað óþekktu hermönnunum, hin- um „mörgu og smáu“, hverra nöfn ekki standa skráðj i sögu hinna „stóru og fáu“, þeim, er háðu sitt „þögula lífsstríð án frægðar og fjár“. Og landið mér opnast sem iðandi haf af almúga kynslóðum liðnum, sem sagan ei offraði orði né staf og eru því vanastar friðnum. — Þær hópast uim sál xnina, hægar sem blær, með hjúfrandi góðleika í fasi. Hin framliðnu hjartaslög færast mér nær, og fótatak heyrist í grasi. Það er engin tilviljun, að hið fyrsta og síðasta hinna eiginlegu söguljóða þessarar bókar fjallar um baráttu þeirra, sem eiga frelsi sitt og af- komu undir högg að sækja. Hjá þeim er hugur skáldsins meira en hálfur. Og ef íslenzk alþýða ekki metur að verð- leikum þessa bók, sem fyrst og fremst er upprifjun hennar eigin sögu, tján- ing hennar eigin hugsana, snúin silki- þráðum óbrotins og alþýðlegs lista- forms, þá veit ég ekki, hverja and- lega fæðu hún telur sér Samboðna. Þ. G. Minningar Nokkru fyrir jólin kom á markaðinn ný bók eftir frú Ingunni Jónsdótt- ur frá Melum, sem hún nefnir „Minn- ingar“. Það er framhald af „Bókin min“ eftir sama höfund, sem kom út 1925 og fékk góða dóma. „Minn- ingar eru í þrem aðalköflum. Fyrsti kaflinn heitir „Móðurætt mín“, ann- ar „Endurminningar úr Hornafirði", og sá þriðji „Á víð og dreif“. — Skemmtilegan formála ritar dóttir höf., frú Guðrún Björnsdóttir. „Minningar" eru bæði skemmtileg og fróðleg bók, rituð á látlausu en kjam-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dvöl

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.