Dvöl - 01.01.1943, Page 133

Dvöl - 01.01.1943, Page 133
D VÖL 131 og eru þær sjálfsagt góðar og gildar. En lesandinn, sem aðeins hefði hlotið ánægj- una að vita skil á höfundunum, en enga óþökk átt á hættu, óskar þess í huganum, að Jóhannes hefði ekki haldið þær svona mikilvægar. Annars er skilmerkilega gerð grein fyrir tilefnum vísnanna. Langflestar eru vísurnar kveðnar í kesknistón, og eru skeytin oft allhvöss. Virðist slíkur kveðskapur jafnan hafa fylgt þingum íslendinga. Elzta þingvísa þessarar tegundar, sem nú er kunn, er kveðlingur Hjalta Skeggjasonar úr Þjórs- árdal um hin heiðnu goð, ortur sumarið 1000: Vil ek ei goð geyja, — grey þykkir mér Preyja. Æ mun annat tveggja Óðinn grey eða Freyja. Hafa löggjafar síðari tíma eigi orðið eftirbátar forfeðranna í þessu efni. J. H. Barðstrendinc/abók. Útg.: ísa- foldarprentsmiðja h.f. Það má telja vel farið, hversu marg- ir færa sögur einstakra héraða í letur. Veldur þessu eigi hvað sízt áhugi þeirra, sem bernskubyggðir kvöddu og kusu sér aösetur í höfuðborginni, en gleymdu ekki heimahögum heldur létu vera sér ríka í minni. Verður ekki um það efazt, að vart verður ættbyggðinni annan veg betur ræktarvottur sýndur en með því að efna til útgáfu sögu hennar. Barðstrendingabók er með nokkrum öðrum hætti til komin en sögur annarra héraða eru eða munu verða. En hinu vil ég spá, að fyrirkomulag hennar þyki vel henta og verði síðar talið til nokkurrar fyrirmyndar. — Barðstrendingar hafa látið sér nægja að leggja tij efni bókar innar en falið ísafoldarprentsmiðju út- gáfu hennar. Mun það vel farið, því að mjög er til útgáfunnar vandað í hvívetna og hefði annar aðili ísafoldarprentsmiðju þar vart betur gert. Er bókin prýdd 64 heilsíðumyndum, auk 14 mannamynda, prentað á góðan pappír, henni valið myndarlegt brot og frágangur hennar all- ur vandaður hið bezta. Þorsteinn Jóseps- son hefur tekið myndir þær, er bókin flytur, og setja þær mikinn svip og góðan á ritið, enda mun hafa verið vel til starf- ans valið. Bók þessari er efnislega skipt í þrjá kafla. Hún flytur lýsingar héraðsins, og hefur sá þáttur að geyma tíu greinar. Annar þátturinn greinir frá atvinnulífi og lifnaðarháttum Barðstrendinga. Skipt- ist hann í átta greinar. Loks er þáttur, sem fjallar um menningarmál héraðsins og er hann sjö greinar. Alls rita 1 bókiria tu rnenn og ein kona. Má með sanni segja að þar sé um nokkurt mannval að' ræða. Það, sem ég tel mest um Barðstrend- ingabók vert, er það, hversu vel hefur tekizt að gera hana í senn fróðlega og skemmtilega. Hún er alþýðleg, enda eru allir þeir, sem lagt hafa henni efni, úr alþýðustétt komnir og flestir alþýðumenn ævilangt. Munu fáar bækur bera íslenzkri alþýðumenningu betra vitni en Barð- strendingabók. Ég hef því miður aldrei Barðastranda- sýslu gist, en Barðstrendingabók hefur fært mér mikinn fróðleik um hérað þetta. Lýsing þess hefur veitt mér nokkra þekk- ingu á náttúrufegurð sögufrægra sveita þess. Ég hef og kynnzt högum og háttum fólksins, sem byggir þessar byggöir, at- vinnulífi þess, lifnaðarháttum og menn- ingu. Og að loknum lestri bókarinnar sækir hug minn sú þrá að gista þetta fagra og merka hérað og hljóta af því aukin kynni. Ég tel sérstaklega skylt að geta þess, að Barð'strendingabók mun reynast til mikilla heilla, er hafizt verður handa um útgáfu sögu íslenzks atvinnulífs og menn- ingar eða einstakra þátta þess. Ef önn- ur héruð eignuðust hliðstæöar sögur sínar og Barðastrandasýsla hefur nú gert, væri það vel farið. Setji þau sér það takmark að vanda eigi síður til þeirra en gert hefur verið við Barðstrendingabók — og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Dvöl

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.