Melkorka - 01.06.1949, Page 15

Melkorka - 01.06.1949, Page 15
Lárus Jóliannesson, lögðu til að málið væri afgreitt með rökstuddri dagskrá, er þeir báru fram og var á þessa leið: ,,í trausti þess, að ríkisstjórnin láti rannsaka, að hve miklu leyti kvenfólk nýtur ekki sömu réttinda nú og karl- menn og að þeirri rannsókn lokinni leggi fyrir Alþingi frumvarp til laga, eða breytinga á eldri lögum, eftir því sem þurfa þykir til þess að skapa sem fullkomnast lagalegt jafnrétti milli kvenna qg karla í þjóðfélaginu, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá." Rök þau, er meiri hlutinn bar einkum fyrir sig voru þessi: ,,Við teljum málið ekki nægjanlega rannsakað og óvíst og óljóst, að hve miklu leyti kvenfólk nú hefur annan rétt en karlmenn. Vafasamt er líka, hvort ekki sé heppilegra og jafnvel nauðsynlegt að breyta fleiri lögum til að skapa konum full- komið jafnrétti en að gera það með einum lögum eins og hér er ætlast til að gert sé.“ Minni hlutinn, þeir Hannibal Valdimars- son og Brynjólfur Bjarnason, lögðu eindreg- ið til að frumvarpið yrði samþykkt óbreytt á þinginu áður en því lyki. Fórust þeim í áliti sínu orð á þessa leið: „Við teljum það alkunna staðreynd, að konur búa enn við stórum þrengri rétt en karlar á ýmsum sviðum þjóðfélagsins. Er misréttið mest á sviði fjárhagsmála, atvinnu- mála og launamála. Minni liluti nefndarinnar telur alveg sjálfsagt, að konur eigi þess kost að ganga að starfi í þjóðfélaginu í bróðurlegu samstarfi við karlmenn með nákvæmlega sama rétti og skyldum og þeir. — Einmitt þetta — og ekkert annað en Jretta — felst í frumvarpi því, sem hér liggur fyrir.“ Afdrif málsins á Jiingi urðu þau, að við atkvæðagreiðslu efri deildar að lokinni 2. umræðu var tillaga meiri hlutans, rökstudda dagskráin, felld með 4 atkv. gegn 4, en 4 deildarmenn sátu lijá og greiddu eigi at- kvæði. Lá Jrá næst fyrir atkvæðagreiðsla um frumvarpið sjálft. Fyrsta greinin var sam- þykkt með 5 atkv. gegn 4, en allar hinar greinar frumvarpsins felldar með 5 atkv. gegn 5. Með sömu atkvæðatölu var svo fellt að vísa málinu til 3. umræðu. Því ber að fagna, að svo er að sjá sem ekki hafi verið ágreiningur innan félags- málanefndar um Jrað, að konur ættu að hafa fullt jafnrétti við karla að lögum. Aðeins bregður því fyrir í áliti meiri hlutans, að ekki sé alveg víst nema að svo sé í raun og veru nú Jregar. Til þess svo að flana ekki út í neina óvissu að Jtessu leyti, vildi meiri hlutinn vís'a málinu frá að sinni unz full- rannsakað væri, livort nokkuð skorti á laga- legt jafnrétti. Minni hlutinn var hins vegar alveg viss um, að misrétti á sér enn stað í sumum greinum íslenzkra laga. Leiðréttingu á Jressu vildi minni hlutinn fá strax og greinilega með J^ví að samj^ykkja frumvarp Hannibals og nema jafnframt úr gildi öll eldri laga- ákvæði, er brytn í bága við þau lög, er sett hefðu verið, ef áðurnefnt frumvarp hefði náð fram að ganga. Rannsóknin á Jrví, í hvaða lögum slík ákvæði væru, mátti, að dómi minni hlutans, alveg eins fara fram eftir á, þegar þau nteð gildistöku nýju lag- anna liefðu eigi lengur neitt að segja. Flutningsmaður frumvarps til laga um réttindi kvenna og J?eir, sem honum fylgdu að málum, vildu flýta því svo sem kostur væri á, að fullt jafnrétti beggja kynja kæm- ist á. En enda Jrótt gleðjast megi yfir áður- nefndu atriði, að öll nefndin virtist fylgj- andi jafnréttishugsjóninni, verður nokkuð annars konar geðbrigða vart, þegar litið er á afgreiðslu háttvirtrar efri deildar Alþing- is á málinu. Varla er hægt að gera sér ann- að í hugarlund, en að þeir, sem að atkvæða- gxeiðslunni stóðu, hafi annað hvort verið svo syfjaðir og þreyttir (atkvæðagreiðslan mun hafa farið fram, er mjög var áliðið nætur), að þeir hafi tæpast vitað, hvað var að gerast, eða Joá hitt, að Jreim liafi virzt hér vera um hégómamál eitt að ræða. Tæp- MELKORKA 13

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.