Melkorka - 01.06.1949, Page 20

Melkorka - 01.06.1949, Page 20
nauðsynlegt að eiga sér málgagn, sem ræðir af alúð og án hlutdrægni þau málefni, sem á hverjum tíma eru el'st á baugi og áríðandi er að vita sem gleggst skil á. Mér hefur verið tjáð, að Melkorka eigi að vera ópólitísk, þ. e. a. s. sé ekki ætlað að blanda sér í pólitísk ágreiningsefni. Þó ugg- ir mig, að ekki muni veitast létt að forða henni Irá því að verða dregin í ákveðinn pólitískan dilk, jafnvel þótt konur úr öllum stjórnmálaflokkum standi að henni. Áróð- urskenndum getsökum er oft beitt til að veikja áhrif og rugla dómgreind. En látið ekki slíkan áróður blekkja ykkur, konur góðar, heldur metið sjálfar hvort hann hef- ur við raunhæf rök að styðjast. En því vík ég að þessu, að enn sem fyrr munu umbóta- sinnaðar konur standa að Melkorku, og kann því að vera að einhverjar lítilsigldar og einfaldar sálir láti hræða sig á því, að eðlilegar og sjálfsagðar framfarir, sem Mel- korka mælir með, eigi eitthvað skylt við byltingu. En það mun þó fyrst og fremst vaka fyrir þeim konum, sem gefa Melkorku út, að víkka sjóndeildarhring lesenda sinna og kynna þeim allt, sem máli skiptir fvrir konuna sem þjóðfélagsþegn. En þar á ég við og vona, að Melkorka rjúfi þögn sína til þess fyrst og fremst að vekja konuna til þjóðfélagslegrar santábyrgðar á hvaða vett- vangi, sem hún kann að vinna störf sín; og beiti sér gegn þeirri innilokunarstefnu, sem gerir það annað hvort eða hvort tveggja dýrðlegast fyrir konuna eða hampaminnst, að halda sig innan fjögurra veggja heimilis- ins í algerðu andvaraleysi um það, sem ger. ist utan þeirra veggja. Heimili okkar er ekki lengur skorðað við fjóra veggi og eitt þak, allt jrjóðfélagið er raunverulega heimili okkar, og þar við .ligg- ur sæmd okkar að það komi heilt og traust úr deiglunni, sent Jrað nú er í. Konunni, sem sinnir barni sínu með innilegum og fórnfúsum kærleika, má ekki gleymast, að Jrjóðfélagið hefur einnig þörf fyrir móður- þel liennar. Mörg börn eru í voða stödd og Þórunn Magnúsdótíir rithöjundur. fara forgörðum vegna þess, hve Jjjóðíélagið er snautt að því móðurjDeli, sem hefði getað bjargað ungmenninu, sem ísland mátti ekki missa. Það er ósk mín og von, að Melkorka verði öllum konurn landsins, hvort senr þær búa einangraðar innst í afdal eða í fjölmenninu við sjávaissíðuna, hollur og hjartfólginn gestur, sem opnar þeim gluggann rit að heiminum, en gleymir þó ekki vandamálun- um heinra fyrir. Jafnframt Jrví, sem Mel- korka mun vekja áliuga kvenna fyrir al- héimsmálum vænti ég þess, að hún auki skilning þeirra á einkalegustu vandanrálum mannlegs lífs og veiti Jreim styrk Jrroskans og vizkunnar til þess að bera með sæmd, það sem ekki verður umflúið, en rísa með mannlund gegn hvers koirar álögum og ólögum, samanber í vísunni: . . álögin úr ýmsum stað, en ólög fæðast heima“. íslenzkar konur, við skulum taka hönd- unr saman um það, að búa svo vel að Mel- korku, að hún eigi fyrir sér langt og mikið starf til fagnaðar- og nrenningarauka, og rödd hennar verði okkur ætíð rödd vöku- mannsins og varni því, að við fljótum sof- andi að feigðarósi, þegar íslandi veltur mest á því, að við séum vel vakandi. 7. maí 1949 18 MELKORKA

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.