Melkorka - 01.06.1949, Page 21

Melkorka - 01.06.1949, Page 21
F E RÐASAGA (Vorið 1948) Eftir Oddnýju GuÖmundsdóttur Oft hafði ég farið um þessi vegamót og sagt við sjálfa mig: Einhverntíma verð ég að lijóla þarna vestur. Nú sneri ég hjólinu inn á ókunna veginn og hlakkaði til að fara um ókunna sveit. Það leið að kvöldi. Vegurinn er ekki fjölfarinn. Loftið er þungbúið. Þarsprakk! Og þegar. ég er í óða önn að leita að gati á slöngunni, fer að rigna. Ég finn ekkert að slöngunni. Helzt væri að leggja hana í vatn og dæla í liana lofti. En hér er hvergi vatn. Auk þess get ég tæplega bætt hana úti í rigningu. Ég held því áfram, leiði hjólið og vona, að ég verði svo heppin, að vörubíll fari framhjá og ég komist leiðar minnar með hjólið til einhvers gististaðar. En engir vörubílar koma. Hvað gerir það? Ég er vön við að teyma þennan gæðing: stundum upp brattar Iieið- ar, stundum í þungurn sandi. Ég kalla hann Skjónu. Ég hef farið á Skjónu minni þjóðveginn milli Þórshafnar og Reykjavíkur, flesta akvegi Suðurlands, en einkum þó vegi og vegleysur í Borgar- firði og Dalasýslu. Ég geng. Það rignir. Öll umferð er hætt. Hér er langt milli bæja, og ég fór of seint að hugsa um gististað. Loks sé ég bæ skammt frá veginum og dreg hjólið eftir móum og melum Jrangað heim. Jafnvel liundarnir sofa. Klukkan er að ganga eitt. Þarna er hermannaskáli, notaður fyrir lilöðu. Ég leggst niður í heyruddann. (Varla von á skárra heyi eftir sumarið Jrað í fyrra!) Ég get ekki sofnað. Mér er kalt. Ég hef blotnað dálítið gegnum regnkápuna. Einhver mundi í mínum sporum ljúga upp draugasögu — að minnsta kosti merki- legum draumi. Ég gæti sagt, að ég hafi séð alblóðugan herforingja sitja þarna á moð- lraugnum og syngja iðrunarsálma alla nótt- ina. Þetta fengi ég prentað í livaða blaði senr væri, og Lltvarpið mundi borga mér fyr- ir að segja frá því á kvöldvöku. Ef ég teygði úr sögunni á nokkrar arkir, mundu bókaút- gefendur taka henni tveim höndum, eins og „bersöglisbók“. Ég hristi af mér heyruddann fyrir fóta- ferðartíma og held áfram ferðinni. Veðrið er bjart en frekar svalt, svo að mig langar ekki til að setjast niður og bæta hjólið. Ég fer heirn að bæ, leggst niður á hlaðvarpann og bíð Jress, að menn konri á fætur. Vatns- nrikil á rennur hjá bænum, og í henni er foss. Að lokum opnast hurð . . . Lagtækur maður finnur þrjú ósýnileg göt á slöngunni og bætir þau fyrir mig, á meðan ég er að borða. Húsfreyjan segir, að ég muni vera þreytt og lætur mig liátta ofan í rúm. Framundan gnœfir jökullinn. MELKORKA 19

x

Melkorka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Melkorka
https://timarit.is/publication/625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.