Melkorka - 01.06.1949, Síða 41
Veikara kynið — hæfileikamaður
Eftir Malvina Lindsay
Formaður: Stelpur, sendinefnd karl-
manna bíður eftir að fá áheyrn. Þeir fara
fram á að einn maður, að minnsta kosti, fái
sæti í Framfaranefndinni.
Frú Tildursleg: Eru þeir laglegir?
Formaður: Hvað skal segja .. . Þeir eru
velnærðir að sjá.
Frú Tildursleg: Átti ég ekki á von.
Frú Hégómleg: Hvers vegna senda þeir
alltaf ýstrumagana?
Formaður: Uss-ss
Dr. Rökvís: Við erum önnur kafnar í dag.
Láttu þá koma aftur seinna.
Formaður: Við höfum þrívegis rekið þá
til baka áður, og nú hafa þeir beðið í hálfan
annan tíma. Eftir á að hyggja, þeir gætu
gert bölvaðan hávaða.
Fi'ú Tildursleg: Það er bezt fyrir okkur að
hlusta á þá og þá er því lokið.
Formaður: Gjörið þið svo vel, herrar
mínir.
Hr. Gljáfægður: Við erum ákaflega þakk-
látir fyrir velvild ykkar, frúr mínar . . .
Hr. Héri. Já! Já!
Formaður: Það er okkur alltaf óblandin
ánægja að hitta lierrana. Við teljum okkur
heiður að þessum smáheimsóknum. Fáið
ykkur sæti. Fer vel um ykkur? Finnst ykkur
ekki gott veður í dag?
Hr. Uppstökkur: Frúr mínar, það er bezt
að komast að efninu. Við álítum að þær 28
milljónir karlmanna, sem eru í þessu landi,
eigi að eiga fulltrúa í Framfaranefndinni.
Karlmenn vilja taka framförum eins og kon-
ur . . .
Hr. Gljáfægður: Heyrið mig! Það, sem
við auðvitað meinum, er að við karlmenn
viljum hjálpa ykkur konum að taka fram-
förum.
Hr. Héri: Já, einmitt. Það var það, sem
við vildum. Bara samvinnu.
Formaður: Það var ákaflega vingjarnlegt
af ykkur. Ég fyrir mitt leyti, já persónulega
er ég mjög hlynt karlmönnum. Það, sem ég
er í dag, á ég manninum mínum að þakka.
Þið ættuð að kynnast honum.
Flr. Uppstökkur: Svo að við snúum okk-
ur aftur að efninu . . .
Frú Hégómleg: Faðir minn var yndisleg-
ur maður . . .
Hr. Gljáfægður: Já, einmitt sem feður
bjóðum við aðstoð okkar í Framfaranefnd-
inni
Formaður: Eins og ég sagði áðan, þá virði
ég karlmenn. Og við mundum fúslega lrafa
þá í nefndinni ef — já, ef þeir hefðu bara
hæfileika til þess.
Hr. Uppstökkur: Hafa allar nefndarkon-
urnar fengið góðan undirbúning?
Hr. Gljáfægður: Það sem við vildum sagt
hafa Cr að við liöfum nokkra nrjög vel hæfa
menn.
Hr. Uppstökkur: Já, við erum hér með
lista.
Dr. Rökvís: Karlmenn vantar undirbún-
ing til þessa starfs. Þeir hafa ekki starfað í
neinum Framfaranefndum.
Hr. Héri: Auðvitað er okkur ljóst að okk-
ur vantar reynslu, en . . .
Hr. Uppstökkur: En það sama rná segja
um margar konur!
Dr. Rökvís: Karlmenn liafa enga reynslu
í framförum. Lítið á heiminn hvernig hann
er í þeiria liöndum.
MELKORKA
39