Valsblaðið - 01.05.1991, Síða 11

Valsblaðið - 01.05.1991, Síða 11
ingu, þannig að nokkur tími mun líða þar til þær koma í meistaraflokk. Einstaka spila einn og einn leik en þær eru það ungar að það er ábyrgðarhluti að leggja of mikla byrði á herðar þeirra og getur brot- ið þær niður.“ BATNANDI KVENNABOLTI Hanna Katrín leggur áherslu á að útlit- ið nú sé bjartara en undanfarin ár og segir að sjálf sé hún bjartsýn. Ráðnir hafa verið góðir þjálfarar í kvennaboltanum. „Um leið og það fréttist að farið er að gera eitthvað fyrir Valsstelpurnar streyma stelpur úr öðrum félögum til okkar. Streymið hefur semsagt snúist við og við „VERÐUM I TOPPBAR- ÁTTUNNP‘ Hanna Katrín Friðriksen landsliðskona í handknattleik í spjalli við Valsblaðið horfum nú ekki lengur á bak spilurum í þeim mæli sem við gerðum fyrir nokkrum árum.“ — Fóru leikmenn í einhverjum mæli frá ykkur? „Víst gerðu þær það vegna þess að stelpurnar mættu á æfingar og sáu að lítið sem ekkert var gert fyrir þær þar. Ég tel að þetta sé svartur blettur á eins stór- kostlegu félagi og Valur er. Sem betur fer hefur þetta breyst og málum verið kú- vent.“ Það kemur fram í máli Hönnu Kat- rínar að liðið í dag sé nokkuð gott og að liðið geti náð á toppinn á ný. „Já,“ segir hún hugsandi á svip, „ég er viss um að við verðum í toppbaráttunni næst.“ Við ræðum um stund um kvennabolt- ann almennt á íslandi og Hanna Katrín segist þess fullviss að lægðin, sem kom í kvennahandboltann hjá Val fyrir nokkr- um árum, eigi sennilega gamalkunnar skýringar. „Svona lægð hefði ábyggilega, reyndar örugglega, ekki komið í karla- boltanum," segir hún. „Ég veit að oft er vísað til áherslumismununar stjórnenda í kvenna- og karlaíþróttum en ég get ein- faldlega ekki fundið aðra skýringu en þá að á vissum tíma hafi áhugi stjórnar- manna á kvennaboltanum hjá okkur í Val ekki verið ýkja mikill. “ Þegar við spyrjum Hönnu Katrínu hverjum sé um að kenna segir hún það vera að hluta konunum sjálfum að kenna. Þær hafi ekki verið nógu harðar að koma málum sínum á framfæri, hvort heldur varðandi fjármál eða æfingatíma. „Hvernig sem á því stendur þá er það einu sinni svo að stelp- „Við verðum að hætta að vorkenna okkur og fara að vinna að eigin málum.“ ur, sem hafa jafnvel leikið vel og lengi, hætta alveg. Þær hætta ekki einungis að spila heldur hverfa úr félagsstarfinu. Við uppgötvuðum þetta einn daginn og það kom okkur á óvart hve fáar taka þátt í starfinu. Auðvitað er þetta okkur sjálfum að kenna og mín framtíðarsýn er sú að hressar og dugandi stelpur starfi á félags- grundvellinum í Val þegar þær kjósa að hætta að æfa sjálfar.“ 11

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.