Valsblaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 27
A-liðið. Efri frá vinstri: Birgir þjálfari, Egill, Jóhannes, Jóhann, Svanur. Neðri frá
vinstri: Árni Viðar, Stefán, Kjartan, Sigurður, Matthías.
B-Iiðið. Efri frá vinstri: Guðmar, Ágúst, Hannes, Jóhannes, Jóhann. Neðri frá vinstri:
Hlynur, Mikael, Kristinn, Atli, Ólafur.
C-liðið. Efri frá vinstri: Sigurður, Smári, Óttar, Eggert, Orri, Benedikt, Sveinn. Neðri
frá vinstri: Valgeir, Pálmi, Þórður, Pétur, Bjarni, Jón Þröstur.
notalegt að vera lausir úr stressi móts-
leikjanna á Akureyri og komnir út af fyrir
sig enda léku menn á alls oddi. Þreyttir
leikmenn sofnuðu snemma en fararstjórn
skemmti sér fram eftir kvöldi við að rifja
upp skemmtileg atvik.
„GEÐVEIKISLEGA FLOTT“
Þau voru ófá lýsingarorðin sem heyrð-
ust í rútunni þegar við ókum í gegnum
Ólafsfjarðargöngin. Göngin voru hreint
og beint „geðveik“, „sjúkleg“, „trufluð“
og ég veit ekki hvað. Mánudagurinn var
tekinn snemma og brunað frá Dalvík tii
Ólafsfjarðar. Við lékum tvo leiki við
Leiftursmenn áður en við héldum ferð-
inni áfram. Breyting varð á fyrirhugaðri
áætlun. Siglfirðingar höfðu frétt af ferð
okkar og tóku ekki annað í mál en við
kæmum við. Að sjálfsögðu þáðum við
heimboðið og lékum við KS. Koma okk-
ar var vel auglýst og sáum við nafn Vals á
plakötum hér og þar í bænum. Eftir að
hafa m.a. leikið við skemmtilegan sjötta
flokk Siglfirðinga, var okkur boðið upp á
veitingar.
ÞRUMUR OG ELDINGAR
Síðasti viðkomustaðurinn í þessari
reisu um Norðurlandið var Sauðárkrók-
ur. Þar gistum við aðfaranótt þriðjudags-
ins 9.júlí. Við sváfum mismikið um nótt-
ina því við urðum vitni að gífurlegum
þrumum og eldingum. Daginn eftir voru
leiknir síðustu leikirnir í ferðinni gegn
Tindastól. Þess má til gamans geta að
samtals, á þessari sex daga ferð, lékum
við 31 leik.
Það var þreyttur en ánægður hðpur
sem hélt heirn á leið, margs fróðari um
Norðurlandið. Strákarnir höfðu kynnst
nýjum stöðum, aukið þekkingu sína á
landinu og ekki síst notið saman tæprar
viku samvistar. Ég tel mig mæla fyrir
munn allra sem tóku þátt í þessari ferð að
ég hefði ekki viljað missa af henni. Strák-
arnir stóðu sig vel bæði innan vallar sem
utan og rná félagið vera stolt af þeim.
liirgir Össurarson, þjálfari
ÚR GÖMLU VALSBLAÐI
Hvað kostar knötturinn?
Ef knetti er spyrnt langt út fyrir æf-
ingasvæðið svo hann týnist, glatast
verðmæti, sem nema frá 300-400 krón-
um, og því meira, sem knötturinn er
vandaðri. Auk þess tapast mikilsvert
leiktæki. Minnist þess að það þarf
mörg árstillög til þess að greiða annan
knött, í stað þess, sem týndist.
Hafið þið gert ykkur það ljóst, að
þegar 10 knettir eru í notkun á æfing-
um, og það er oft, þá spyrnið þið á
milli ykkar hlutum, sem eru á milli 4
og 5 þúsund króna virði?
Gætið þess vegna knattanna vand-
lega og skilið þeim þegar í hendur um-
sjónarmannsins, að notkun lokinni."
27