Valsblaðið - 01.05.1991, Side 39

Valsblaðið - 01.05.1991, Side 39
UR VALSBLAÐINU 1985 - FÓR NÆRRI BERRASSAÐUR ÚT í GÓÐA VEÐRIÐ Úr viðtali við Berg Guðnason Fór nærri berrassaður út í góða veðrið Á þessum tíma var orðið erfitt að vera í báðum íþróttagreinunum því knatt- spyrnumennirnir voru farnir að undirbúa sig með vetraræfingum fyrir kejDpnistíma- bilið. Karl Guðmundsson og Oli B. Jóns- son komu sem þjálfarar og datt þeim í hug að skynsamlegt væri að undirbúa liðið fyrir sumarið. Fyrir bragðið kom ég seint inn í þetta og náði ekki að festa mig í liðinu fyrr en langt var liðið á mót. Þá var komin upp sú staða að ég varð að velja á milli handboltans og fótboltans. Pað verður að viðurkennast að ég hafði miklu meira gaman af fótboltanum og því ákvað ég 1964 að láta mig hafa það að taka einu sinni þátt í undirbúningnum fyrir fótbolt- ann. Sumarið ’64 er því eina tímabilið sem ég lék að staðaldri í meistaraflokki. Ég lék alla leiki sumarsins í deildinni — 10 að tölu og skoraði 6 mörk. Hermann Gunnarsson skoraði þá 8 mörk. Síðan gerðist það 1965 þegar ég ætlaði að taka þetta með trompi að ég fór nærri berrass- aður út í góða veðrið í mars og tognaði svona hrikalega í nára — sem er orðið margfrægt. Ég segi ekki að ég sé fyrsti náramaðurinn en meiðslin voru það slæm að ég gafst upp á miðju sumri eftir að hafa verið að rembast við að æfa. Læknar sögðu mér einfaldlega að hætta. Ég snéri mér því alfarið að handboltanum því þetta háði mér ekki í honum. Ferillinn var því styttri en ella. Þetta var þó orðið þannig að ég gat ekki stundað hvoru- tveggja því ég var í háskólanum og kom- inn með fjölskyldu. Ég gifti mig 1964 og eignaðist fyrsta soninn 1965. Toppurinn á mínum ferli í fótboltanum var að ég náði að komast í pressuliðið. Gamlir félagar mínir myndu reyndar segja að pressuleik- ir hafi verið mín sérgrein í gegnum árin. Ég spilaði sennilega 300 pressuleiki og þá flesta í handboltanum. Bergi Guðnasyni er margt til Iista lagt. Hér er hann í spjótkasti. // œ r r e x t i r s k a t t a f s l á t t u r é t t i n d i . /á%c JL, Með reglulegum sparnaði, 'hsestu vöxtum, W /• skattafslætti og lánsrétti leggurðu Grunn sem er sniðinn að þínum þörfum. évtvJTltl'ljy Grunnur er húsnæðisreikningur XTi lWlHlll Landsbankans. Hann er bundinn í 3 - 10 ár og nýtur ávallt bestu ávöxtunarkjara sem bankinn býöur á almennum innlánsreikningum sínum. Leggja þarf inn á Grunn reglulega og hámarksinnlegg á ári er nú rúm 360.000,- eöa 90.000,- ársfjóröungs- lega. Þannig gefur til dæmis 360.000 króna innlegg 90.000 krónur í skattafslátt. Grunni fylgir sjálfkrafa lánsréttur vegna húsnæðis að sparnaðartímanum loknum.Hámarkslán er nú 1,8 milljónir króna. Grunnur er þannig bæði góð sparnaðarleib fyrir þá sem hyggja á húsnæðiskaup eða byggingu og kjörinn lífeyrissjóður jv LandSbankÍ fyrir sparifjáreigendur. m l jg|ancjs Banki allra landsmanna 39

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.