Valsblaðið - 01.05.1991, Qupperneq 43

Valsblaðið - 01.05.1991, Qupperneq 43
— Fylgist þú með öðrum íþróttagrein- um? „Já, já. Ég fylgist bæði með gengi Vals- manna í fótboltanum og handboltanum. Annars er ég enn að setja mig almenni- lega inn í íslenskt þjóðlíf og tíðarandann hérna. Eins og þú heyrir kannski er það ekki þrautalaust fyrir mig að segja allt sem mér í brjósti býr — ég hef að vissu leyti misst „touch“ fyrir íslenskunni. Það sama má segja um íþróttirnar. Knatt- spyrnan er t.d. ekki hátt skrifuð í Banda- ríkjunum og eftir að hafa eytt síðastliðn- um átta árum þar, þá fann maður sér nýjar íþróttagreinar til að fylgjast með, svo sem hornaboltann og ameríska fót- boltann.“ — Líður þér betur í Bandaríkjunum heldur en hér á landi? „Nei, ég myndi ekki segja það. Það er þó staðreynd málsins að ég hef verið drjúgan hluta af ævinni í Bandaríkjunum og síðastliðin átta ár hafa verið mjög mót- andi í mínu lífi, eins og árin í kringum tvítugsaldurinn eru í lífi hvers manns. Ég var kominn vel inn í þann þankagang sem ríkir í Bandaríkjunum og leið vel. Það var náttúrlega gott að komast heim og Island er alltaf mitt land en það er farið að kitla mig svolítið til að komast til Bandaríkj- anna aftur og mig langar til þess að klára mastersnám þar.“ — Er annað Valsstórveldi í körfu- bolta, sambærilegt lærisveinum Tim Dwayer, í uppsiglingu? „Við erum með marga mjög góða leik- menn, sem ættu að geta myndað stór- veldi, en ég get ekki sagt að svo stöddu hvort svo verður. Tíminn mun leiða það í ljós.“ — Hver eru markmið þín í körfubolt- anum? „Eftir að hafa átt við þrálát meiðsli að stríða, þegar ég var við nám í Banda- ríkjunum, bjóst ég satt best að segja ekki við miklu af mér á síðastliðnum vetri og ég fann mig miklu betur en ég hafði þorað að vona. Mig þyrsti í að spila körfubolta og hafði mjög gaman af þessu á síðasta vetri. Markmið mitt, eftir að hafa átt það markmið eitt í fyrra að spila, er að vinna til einhverra titla. Mín persónulegu markmið eru ekki að sanna mig eftir vet- urinn í fyrra. Þeir sem hafa séð mig leika vita hvað ég get og það er langt í frá að mitt mottó sé að sanna getu mína fyrir einhverjum körlum úti í bæ.“ — En takmark þitt í lífinu? „Ég set hamingjuna ofar öllu. Hvernig maður nálgast hamingjuna er síðan þraut sem maður glímir við á hverjum degi. Ég vil læra sem mest í lífinu, ekki þá einvörð- ungu á skólabekkjum, heldur einnig í skóla lífsins. Mig myndi langa til þess að eignast sem flesta vini á lífsleiðinni, því að ég tel að það sé eitt af því sem gerir mann hamingjusaman. Ég tel mig vera frekar létta manneskju, sem auðvelt er að umgangast, ég á marga vini og mér líður vel og get varla sagt annað en að ég sé hamingjusamur í dag — sáttur við lífið og tilveruna." enda. Valsmenn eru kröfuharðir og sætta sig ekki við neitt nema toppsæti — og ætli við verðum ekki að setjast í það?!“ Aðspurður sagði Magnús landsliðs- málin á réttri leið. Hann sagði að Torfi Magnússon, núverandi landsliðsþjálfari, væri að gera góða hluti. „Ég held að vandamál landsliðsins sé að menn hafa varla tíma til þess að vera með í því svo að vel sé. Flestir leikmenn úrvalsdeildarinn- ar eru á vinnumarkaðinum, æfa síðan stíft með félagsliðum sínum og eitthvað gæti látið undan þegar landsliðsæfingarnar bætast ofan á þetta. Ég held að það þyrfti að gefa landsliðinu meiri tíma, þ.e.a.s. að menn séu ekki á mörgum vígstöðvum í einu heldur geti einbeitt sér að landslið- inu þegar þeir eru valdir í það.“ — Var niðurstaða forkeppni Evrópu- keppni landsliða, síðastliðið vor, þér mikil vonbrigði? „Já, vissulega var niðurstaðan ekki eins og maður hefði kosið. Liðið var ekki í toppformi, að mínu mati, þegar út í slaginn kom. Ég held að vissa samæfingu hafi vantað og það hafi leitt til þess sem síðar varð. Síðan spilaðist þetta mót náttúrlega ótrúlega. Við hefðum getað unnið þrjá leiki af fjórum, en samt orðið að sitja eftir með sárt ennið. Ég held að við höfum staðið okkur alveg sæmilega, en mótið spilaðist einfaldlega ekki okkur í hag og þar við sat.“ — En hvernig slappar Magnús Matt- híasson best af? „Ætli ég slappi ekki best af í heitri sturtu. Ef ég þarf að vera út af fyrir mig og það er eitthvað sem hvílir á mér, þannig að ég þarf að ná mér niður, finnst mér óttalega gott að fara í heita sturtu, þó svo að ég slappi svo sem ágætlega af við lestur góðrar bókar eða þegar ég er að hlusta á tónlist.“ 43
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.