Valsblaðið - 01.05.1991, Side 45

Valsblaðið - 01.05.1991, Side 45
SKÝRSLA VALSKVENNA 1991 Ungir Valsmenn og Valskonur í góðum félagsskap. BLÓMLEGT STARF FRAMUNDAN Af okkur Valskonum er allt gott að frétta og er mjög blómlegt starf framund- an — á seinni hluta ársins og byrjun þess næsta. Hjá okkur Valskonum ein- kenndist fyrri hlut ársins 1991 af köku- bakstri frekar en fundarsetu. Að venju var jólaball haldið fyrir börn- in í gamla félagsheimilinu, 5. janúar 1991. Það var mjög vel sótt og skemmtu tilvon- andi Valsmenn og konur sér hið besta þegar jólasveinarnir sungu og gengu í kringum jólatréð með börnunum. Á 80 ára afmælisdegi Vals mætti stjórn Valskvenna á hátíðarfund um morguninn ásamt öllum stjórnum félagsins. Var sú stund reglulega hátíðleg — sérstaklega þegar fánar voru dregnir að húni. Eins og venjulega, þegar Valur á af- mæli, leitaði aðalstjórn Vals til Vals- kvenna til að sjá um kaffi og kökur á afmælisdaginn. Við vorum mættar upp úr hádegi á afmælisdaginn til að raða borð- um og taka til svo gestirnir hefðu það sem best þegar þeir mættu á svæðið. Svo vel vildi til að 11. maí var á laugar- degi og var því mjög gestkvæmt á þessum 80. afmælisdegi félagsins. Vonum við Valskonur að sem flestir hafi fengið eitt- hvað að smakka af því sem var á boðstól- um. Þann 25. maí leitað stjórn Vals aftur til Valskvenna um að fá kaffi og kökur og í þetta sinn var tilefnið það að kapellan var fokheld. Gestum var boðið að skoða kap- elluna og var hátíðardagskrá í kirkjunni en eftir það var gestum boðið í sætabraut og kaffi. Framundan er blómlegt starf hjá okk- ur. 19. nóvember verður fundur þar sem Þórhallur Guðmundsson, hinn vinsæli miðill, mun heimsækja okkur. í desem- ber verður jólaglögg þar sem engin Val- skona mun láta sig vanta. I janúar mun Heiðar Jónsson snyrtir, koma til okkar og kenna okkur Valskonum allt um leyndar- dóma lífsins. En eins og allir vita eru leyndardómarnir ansi margir. Með kveðju Valskvenna. Ingibjörg Kristjánsdóttir 45

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.