Valsblaðið - 01.05.1991, Page 56
ÚTSKRIFUÐUMST FJÓRIR ÚR
LÆKNADEILDINNI
Að afloknu stúdentsprófinu lá leið mín
síðan í Háskóla Islands þar sem ég lagði
stund á læknisfræði sem ég lauk árið 1938.
Læknadeildin var nú ekki eins fjölmenn í
þá daga og hún er nú og til marks um það
vorum við einungis fjórir sem útskrifuð-
umst á því herrans ári 1938.“
— Hvenær byrjaðir þú í íþróttum?
„Ætli ég hafi ekki byrjað í íþróttum um
leið og ég fór að ganga óstuddur," segir
Jón og brosir út í annað. „í þá daga var
varla um aðra íþróttaiðkun að ræða en
leikfimi íbarnaskólanum og menntaskól-
anum. Eg fór snemma að sparka, þó svo
Minni myndin er af Jóni „á kantinum árið 1928“ en hin var tekin 63 árum síðar — 1991.
Fyrir sextíu og einu ári stóð hann í
hnésíðum stuttbuxum, frumstæðum fót-
boltaskóm, klæddur aðreimaðri keppn-
istreyju Vals og fagnaði sigri. Hann fagn-
aði ásamt félögum sínum í Val fyrsta ís-
landsmeistaratitlinum í sögu félagsins —
titli sem lagði hornstein að þeirri happa-
drjúgu framtíð sem félagið átti eftir að
eiga, sögu félags í áttatíu ár og enn um
ókomin ár.
Valsmaðurinn er Jón Eiríksson, annar
tveggja núlifandi knattspyrnukappa Vals
sem hömpuðu íslandsmeistaratitli fyrsta
sinni, en hinn er Jóhannes Bergsteinsson.
Jón er hér um bil jafngamall Knatt-
spyrnufélaginu Val en hann er nokkrum
mánuðum yngri en félagið. Hann ólst upp
í austurbæ Reykjavíkur en foreldrar hans
fluttust þangað austan úr Rangárþingi.
Jón var í miðið í þriggja barna fjölskyldu,
„venjulegri verkamannafjölskyldu,“ eins
og hann kemst sjálfur að orði. Jón kvænt-
ist árið 1938 Guðrúnu Sigurðardóttur og
eiga þau þrjú börn: Ásdísi Vébjörgu, Þyri
Ágústu og Sigga Jóns. og eiga þau Jón og
Guðrún fimm barnabörn.
„Bernskuár mín voru eins og almennt
og gerist og gengur hjá verkamannafjöl-
skyldum. Eg var í Miðbæjarbarnaskólan-
um, sem þá var jafnframt eini barnaskól-
inn hérna. Þaðan lá leið mín í Mennta-
skóla Reykjavíkur, en égtók inntökupróf
í þann skóla árið 1924. Stúdent varð ég
síðan árið 1931, svo að ég átti sextíu ára
stúdentsafmæli á þessu ári.
56