Fréttablaðið - 13.02.2010, Page 62
34 13. febrúar 2010 LAUGARDAGUR
ÖRLYGUR SIGURÐSSON LISTMÁL-
ARI (1920-2002) VAR FÆDDUR
ÞENNAN MÁNAÐARDAG.
„Fjöllin eru alltaf eins en
fólkið undir fjöllunum er
síbreytilegt og stökkbreyti-
legt með kostum sínum og
göllum.“
Örlygur var fjölhæfur listamað-
ur og helgaði líf sitt myndlist
og ritstörfum. Meðal annars
málaði hann myndir af mörg-
um þekktum Íslendingum.
MERKISATBURÐIR
1668 Spánn viðurkennir sjálf-
stæði Portúgals.
1693 Eldgos hefst í Heklu.
1945 Loftárásir hefjast á
Dresden.
1960 Frakkar gera tilraunir með
sína fyrstu kjarnorku-
sprengju.
1971 Suður-Víetnamar ráðast
inn í Laos með hjálp
Bandaríkjamanna.
1983 Lofsteinn fellur í sjóinn
austur af landinu. Víða
birti um austanvert landið
er hann þaut gegnum
himinhvolfið.
1988 Vetrarólympíuleikar hefj-
ast í Calgary í Kanada.
2001 Jarðskjálfti upp á 6,6 stig
á Richters-kvarða ríður yfir
El Salvador.
Mikil hraðsala á málverkum átti sér stað þenn-
an dag árið 1945. Þá opnaði Jóhannes S. Kjar-
val málverkasýningu í Listamannaskálanum og
er dyrnar á skálanum voru opnaðar klukkan tíu
stóðu um hundrað manns þar úti fyrir og hópar
fólks þyrptust að næstu mínúturnar. Þegar sýn-
ingargestir komu inn í salinn hófst æðisgeng-
in keppni milli þeirra um að festa kaup á mynd-
unum sem þar voru til sölu. Alls voru fjörutíu
og ein mynd á sýningunni en fjórar þeirra voru
ekki falar.
Eftir um það bil tuttugu mínútur höfðu þrjá-
tíu og þrjár myndir verið seldar. Urðu marg-
ir frá að hverfa sem þarna komu til að kaupa
sér málverk því aðrir höfðu orðið á undan að
hreppa þau.
Önnur eins hraðsala á málverkum hafði aldrei
átt sér stað hér á landi áður og mun fátíð meðal
annarra þjóða, að því er segir í Öldinni okkar.
ÞETTA GERÐIST: 13. FEBRÚAR 1945
Keppt um kaup á málverkum
„Við höldum upp á afmælið með rjóma-
tertum og randabrauði,“ segir Pétur
Þorsteinsson, prestur í Óháða söfnuðin-
um, glaðlega þegar hann er spurður út
í hátíðahöld morgundagsins vegna sex-
tugsafmælis safnaðarins. Hann tekur
þó fram að ekki verði sest að borðum
fyrr en að aflokinni guðsþjónustu með
tónlistarívafi þar sem aðalræðumaður
verður Ómar Ragnarsson, fréttahauk-
ur og margmiðlunarmaður. „Ómar er
með trúfastari sóknarbörnum hér og
Helga konan hans líka. Ég reikna frek-
ar með að hann segi einhverja brandara
þannig að gestir geti glott út í annað, ef
ekki bæði,“ segir sérann. Sjálfur kemur
hann fólki oft til að brosa með sinni
fjörlegu framkomu og sérstöku mál-
notkun. Pétríska orðabókin er lands-
þekkt og með tilvitnunum í hana kætir
hann stundum lund kirkjugesta. „Þeir
taka því vel,“ segir hann. „Þó sumum
finnist aðalsyndin sú að vera fyndinn
eru hinir fleiri sem kunna að meta létt-
leika; það er fagnaðarerindi sem við
prestarnir eigum að boða.“
Í Óháða söfnuðinum eru um þrjú
þúsund manns nú um stundir. „Fólk
er skráð í þetta trúfélag hvar sem er
á landinu,“ lýsir sr. Pétur. „Hér eru
messur annan og fjórða sunnudag
hvers mánaðar og fólk gengur að þeim
vísum. Svo erum við með göngumess-
ur á vorin, þá er byrjað að morgni með
stuttri helgistund í kirkjunni áður en
lagt er í ferðalag út fyrir bæinn þar
sem við göngum í fimm til sex tíma.
Eftir það er farið í sund og sána, snætt
lambalæri og sungið og dansað. Þetta
er heilmikil vorhátíð.“ Sr. Pétur lýsir
fleiri föstum liðum í safnaðarstarfinu
svo sem gúllasguðsþjónustunni í byrj-
un júlí „Þá er blessunin hún Búkolla
brytjuð niður og etin að ungverskum
hætti,“ segir hann hlæjandi og kveðst
líka beita töfrabrögðum í fjölskyldu-
messum sem haldnar séu tvisvar á
ári.
Nú er sr. Pétur beðinn að skauta
yfir hina sextíu ára sögu safnaðarins.
„Fylgjendur séra Emils Björnsson-
ar stofnuðu þennan söfnuð kringum
hann eftir að hann laut í lægra haldi
í prestskosningum við Fríkirkjuna og
hann var hér í þrjátíu ár,“ byrjar hann
frásögnina. „Hann messaði fyrst í
sal aðventista í Ingólfsstræti, fermdi
í háskólakapellunni og flutti ræður í
Stjörnubíói en kirkjan hér við Háteigs-
veg var byggð í sjálfboðavinnu og vígð
1959, þannig að hún varð fimmtíu ára
í fyrra.“ Aðspurður segir sr. Pétur um
lúterska fríkirkju að ræða, þar sé sami
klæðnaður, sálmabók og helgisiðir og
hjá þjóðkirkjunni og sóknargjald safn-
aðarbarna gangi til hennar í stað hverf-
iskirkna.
Eftir að sr. Emil fór til sjónvarps-
ins var sr. Baldur Kristjánsson prest-
ur safnaðarins í eitt ár, þá kom sr. Þór-
steinn Ragnarsson en sr. Pétur hefur
þjónað óháða söfnuðinum í hálfan
annan áratug, eða „háóða“ söfnuðinum
eins hann heitir á „pétrísku“.
gun@frettabladid.is
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: HELDUR UPP Á SEXTÍU ÁRA AFMÆLIÐ Á MORGUN
Kirkjugestir geta örugglega
glott út í annað, ef ekki bæði
GUÐSMAÐURINN „Þó sumum finnist aðalsyndin sú að vera fyndinn eru hinir miklu fleiri sem
kunna að meta léttleika,“ segir séra Pétur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
AFMÆLI
TÓMAS INGI
OLRICH sendi-
herra er sextíu
og sjö ára.
AGNAR
GUÐNASON
ráðunautur
er áttatíu og
þriggja ára.
90 ára afmæli
Hér með vil ég þakka öllum þeim sem
glöddu mig á 90 ára afmæli mínu
þann 23. janúar.
Sérstakar þakkir til Söngskólans
í Reykjavík fyrir veitta aðstoð og
ekki síður öllum þeim sem lögðu
hönd á plóg til að gera þennan dag
ógleymanlegan.
Guðmunda Elíasdóttir
söngkona
Innilegar þakkir til ættingja og vina
fyrir sýndan hlýhug og ómetanlega
aðstoð vegna andláts og útfarar
Jóhannesar Bekk
Ingasonar
kennara,
Lambastaðabraut 13, Seltjarnarnesi.
Alda Svanhildur Gísladóttir
Jón Þór Þorleifsson
Ingi Einar Jóhannesson Aðalbjörg Sigurðardóttir
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Þökkum auðsýndan hlýhug og vináttu
við andlát og útför sonar okkar, bróður
og mágs,
Kristins Freys Arasonar
Stekkjarhvammi 12, Hafnarfirði.
Ólöf Sigurlín Kristinsdóttir Ari Óskar Jóhannesson
Steinunn Aradóttir Sigríður Jóhannsdóttir
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför mannsins míns,
Bárðar Brynjólfssonar.
Rósa Magnúsdóttir og fjölskylda.
timamot@frettabladid.is
Fallegir legsteinar
JÓHANNES S. KJARVAL