Fréttablaðið - 25.03.2010, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 25.03.2010, Blaðsíða 26
26 25. mars 2010 FIMMTUDAGUR UMRÆÐAN Hörður Hilmarsson skrifar um samfélags- mál Ég horfði á Spaugstof-una í gærkvöldi og finnst sem þættirnir hafi breyst að undanförnu. Þessi spéspegill hefur stundum verið þunnur, en oftast verið hægt að brosa að mörgu, jafn- vel hlæja upphátt. Nú virðist mér gagnrýnin grimmari og háðið beitt- ara. Þó bregður svo við að mér er ekki hlátur í hug; það er frekar að grátur sæki að manni við að sjá á skjánum skopstælingu á Íslandi síð- ustu missera og síðustu dagana. Hvernig gat það gerst að hér á Íslandi varð til ríki í ríkinu, batt- erí sem varð öllu öðru æðra og reyndist máttugra en ríkisstjórn og Alþingi? Topparnir á fjármála- geiranum á Íslandi, bankaeigend- ur og bankastjórnendur voru (og eru?) valdamestu menn lýðveld- isins og engin lög virðast ná yfir þá. Hvernig stendur á því? Ef lög landsins ná ekki yfir allan landslýð þarf að breyta þeim og það strax. Það dugir ekki fyrir forsætis- og fjármálaráðherra að koma fram í fjölmiðlum, alveg jafn agndofa og almenningur yfir fréttum af mis- ferli og sukki tiltölulega fárra aðila. Það gengur heldur ekki að biðla til þessara sömu aðila að þeir sýni nú þann manndóm að skila til baka illa fengnu fé. Fé sem oft var greitt sem arður af rekstri fyrirtækja sem voru í reynd „fallit“, en gátu við fyrstu sýn eftir bókhaldsbrell- ur, litið vel út um stundarsakir, en urðu svo gjaldþrota innan skamms tíma. Einn þessara manna hefur nú stigið fram og segist iðrast. Það er gott svo langt sem það nær, en það þarf meira til. Eftir bankahrunið haustið 2008 hefur mér oft orðið óglatt við til- hugsunina um sukkið sem átti sér stað í bönkunum. Í dag treysti ég hvorki bönkum þessa lands, rík- isstjórn né Alþingi. Mér finnst hræðilegt að lifa í slíku samfélagi. Það hryggir mig að heyra fjármálaráðherra og fleiri halda því fram að inneign- ir almennings í bönkum landsins í október 2008 hafi verið að fullu tryggðar. Það er alrangt. Bankarnir, með aðstoð ríkisstjórnar og Alþingis, hirtu allt upp í 30-40% af ævisparnaði þúsunda Íslendinga, eink- um eldra fólks. Til að bæta gráu ofan á svart þurfti þetta sama fólk að greiða skatta af peningum sem hafði verið rænt af því. Það er eitthvað að í ríki sem þannig kemur fram við þá sem síst skyldi. Núverandi ríkisstjórn hefur marg- oft talað um nauðsyn þess að hlúa vel að fyrirtækjum í landinu, til að hægt sé að halda uppi atvinnu og skapa verðmæti. En hvað er gert? Ég nefni dæmi sem mér stendur nálægt: Lítið fyrirtæki, vel rekið og skuldlaust, átti smá varasjóð sem geymdur var í banka. Það töpuð- ust 31,2% varasjóðsins við aðgerð- ir yfirvalda haustið 2008. Fyrir- tækinu var eigi að síður gert að greiða skatta af því fé sem tapað- ist. Hvernig samræmist þetta því að hlúa að fyrirtækjum landsins? Það er eitthvað mikið að. Því miður er það svo að almenn- ingur ber sáralítið traust til stjórn- málamanna, eftir það sem á undan er gengið. Það er skiljanlegt. Ég tel því ekki þjóðstjórn vera besta kostinn til að koma Íslandi aftur á flot. Frá bankahruni hef ég verið þeirrar skoðunar og er enn, að hér þurfi utanþingsstjórn til að taka á málunum. Gefa pólitíkusun- um frí, því pólitík þvælist fyrir því sem þarf að gera. Það hefur mar- goft sýnt sig að margir stjórnmála- menn hugsa um sinn hag og síns flokks, frekar en hag almennings og þjóðarinnar. Þegar frá líður þarf síðan að breyta kosningalögum þannig að kosið verði um fólk, ekki flokka. Flokksræðið hefur runnið sitt skeið á enda. Kjósendur vilja fá að kjósa per- sónur, fólk, þvert á flokkslínur. Höfundur er framkvæmdastjóri. Það er eitthvað mikið að UMRÆÐAN Vilmundur Jósefsson skrifar um stöðug- leikasáttmálann Samtök atvinnulífsins og ASÍ hófu vinnu að gerð víðtæks sáttmála á vinnumarkaði með aðkomu stjórnvalda fyrir rúmu ári síðan þegar endurskoðun kjara- samninga á almennum vinnumarkaði fór fram. Niðurstaða þess starfs var stöðug- leikasáttmálinn, með aðild helstu samtaka á vinnumarkaði og stjórnvalda, sem undirrit- aður var 25. júní 2009. Sáttmálinn var gerður í dýpstu efnahags- kreppu landsins í meira en hálfa öld sem gerbreytti starfsskilyrðum atvinnulífs og afkomu heimila til hins verra og hraðvax- andi atvinnuleysi. Þörf var á samstilltu og öflugu átaki í atvinnumálum og skapa skil- yrði fyrir aukinni fjárfestingu innlendra sem erlendra aðila, auknum hagvexti og leggja grunn að bættum lífskjörum til framtíðar. Í dag eru 15 þúsund Íslendingar án atvinnu og vilja SA bregðast við því af krafti. Í janúar 2009 gáfu SA út rit um hagsýna, framsýna og áræðna atvinnu- stefnu og í febrúar síðastliðnum kynntu samtökin aðgerðaáætlun undir yfir- skriftinni „Atvinna fyrir alla“. Markmið alls þessa er að Ísland komist upp úr kreppunni sem allra fyrst. Í aðgerðaáætl- uninni er m.a. sýnt fram á að það dugar ekkert minna en 5% árlegur hagvöxtur á árunum 2011 til 2015 til þess að Íslend- ingar vinni bug á atvinnuleysinu og end- urheimti að mestu það sem tapast hefur í lífskjörum og velferð. Ef hagvöxtur verð- ur t.d. 3,5% mun atvinnuleysi enn verða mikið árið 2015 og Íslendingar lítið sótt fram. Ef hagvöxtur verður um 2% næstu árin, eins og ýmsar spár gera ráð fyrir, verða Íslendingar fastir í fjöldaatvinnu- leysi og ítrekuðum skerðingum í mennta-, heilbrigðis- og velferðarmálum. Uppbygging tafin Alveg frá því sáttmálinn var undirritaður hafa SA knúið á um efndir hans. Til dæmis að greitt væri fyrir framkvæmdum sem gert var ráð fyrir í þjóðhagsáætlun og eru nauðsynlegar til að hagkerfið haldi ekki áfram að dragast saman. Það gekk ekki eftir og öllum er kunnur sá dráttur sem orðið hefur á ýmsum ákvörðunum stjórn- valda og nægir þar að nefna SV línu, skipulagsmál við Þjórsá og málefni HS Orku. Meira að segja hefur komið fram að einstakir ráðherrar telja sáttmálann sér óviðkomandi og talað um „þá“ sem gerðu stöðugleikasáttmálann. Hægt hefur miðað við að koma fjármunum lífeyris- sjóða til atvinnuskapandi verkefna í sam- starfi við stjórnvöld. Það hefur skort veru- lega á að stjórnvöld hafi gert það sem í þeirra valdi stendur til þess að stuðla að atvinnuuppbyggingu. Í sáttmálanum var lagður grunnur að því hvernig standa mætti að ríkisfjármál- um á næstu árum og SA ákváðu að sætta sig við tilteknar skattahækkanir enda væri það hluti af heildarlausn málsins. Í sáttmál- anum var gengið út frá því að skattahækk- anir yrðu minni hluti aðlögunaraðgerða í ríkisfjármálum en síðan hafa skattahækk- anir orðið langt umfram það sem menn gerðu sér í hugarlund. Í ljósi þess sem um var samið liggur fyrir að ríkissjóður hefur tæmt svigrúm til skattahækkana og verður að reiða sig alfarið á lækkun gjalda í fjár- lögum 2011. Þá hafa þær breytingar sem gerðar hafa verið á skattalegri umgjörð atvinnulífsins allar verið óhagstæðar fyrirtækjum og alls ekki til þess fallnar að auka fjárfestingar í atvinnulífinu og örva hagvöxt, þvert á móti. Háir vextir og höft SA hafa ekki gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir háa stýrivexti Seðlabankans en það er samt eitt af markmiðum stöðugleikasáttmálans að vaxtamunur gagnvart evru verði 4% í árslok 2010 sem þýðir við núverandi aðstæður að stýrivextir Seðlabankans verði 5%. Ríkisstjórnin hefur á hinn bóginn ekk- ert beitt sér í málinu þótt í gildi sé sam- komulag milli ríkisins og Seðlabankans um framkvæmd peningastefnunnar og að hún sé hrunin. Gjaldeyrishöftin eru ákveðin með lögum frá Alþingi. SA hafa með gildum rökum bent á að höftin halda niðri gengi krón- unnar og lítil von sé á styrkingu hennar á meðan þau eru við lýði. SA hafa bent á þá leið út úr höftunum að bjóða þeim erlendu aðilum sem eiga hér skammtíma eignir í krónum að kaupa langtímaskuldabréf í evrum og tilkynna samhliða að höftunum verði aflétt innan fárra vikna. Dæmi um vanefnd er að ekki er áformað að standa við ítrekuð loforð um lögfestingu iðgjalds í Starfsendurhæfingarsjóð. Það stendur skýrum stöfum í sáttmálanum að það skuli gert á árinu 2009. Ótrúleg biðlund Samtök atvinnulífsins hafa lagt sig fram um að standa við það sem um hefur verið samið og í raun sýnt ótrúlega biðlund vegna seinagangs ríkisstjórnarinnar. Í lok október var ríkisstjórninni gerð grein fyrir óánægju SA með framgang ýmissa mála, í desember fékk ríkisstjórnin tvö bréf þar sem hnykkt var enn frekar á því og svo einnig þann 22. febrúar síðastliðinn. Kornið sem fyllti mælinn var síðan þegar Alþingi samþykkti lög sl. mánudag um breytingar á fiskveiðistjórninni, þrátt fyrir loforð í yfirlýsingu ríkisstjórnar- innar frá 28. október 2009, um að það mál færi í sáttafarveg í nefnd sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Brostið traust Þar með var traust stjórnar SA á samstarfi við ríkisstjórnina endanlega brostið og ljóst að samstarf við aðila sem ekki telur sig þurfa að standa við gefin loforð verður að taka annað form en gert var með stöð- ugleikasáttmálanum sem svo miklar vonir voru bundnar við. Af framansögðu má ljóst vera að ummæli leiðarahöfundar Fréttablaðsins þann 24. mars um „afleik“ og „upphlaup“ SA eru úr lausu lofti gripin. Önnur ummæli á borð við að verið sé að beygja sig undir „áhrifavald hagsmunaaðila í sjávarútvegi“ og að verið sé að „hrópa ábyrgðarlaust á vanhugsuð úrræði“ eru órökstudd því ákvörðun SA á sér langan aðdraganda og byggir á heild- stæðu mati samtakanna á samstarfinu við ríkisstjórnina og árangur þess. Höfundur er formaður Samtaka atvinnulífsins. Kornin í mælinum HÖRÐUR HILMARSSON VILMUNDUR JÓSEFSSON Samtök atvinnulífsins hafa lagt sig fram um að standa við það sem um hefur verið samið og í raun sýnt ótrú- lega biðlund vegna seinagangs ríkis- stjórnarinnar. Fyrstir inn - fyrstir út? Staða þjóðarbúsins í sögulegum og alþjóðlegum samanburði Gylfi Magnússson, efnahags- og viðskipta ráðherra, flytur opinn fyrirlestur á Háskólatorgi í stofu HT 105, fimmtudaginn 25. mars, kl. 12.00-13.00 Gylfi Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra, sem er í leyfi frá starfi sem dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, mun ræða stöðu efnahagsmála í sögulegum og alþjóðlegum samanburði og leitast við að varpa ljósi á þau verkefni sem framundan eru. Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis. HAGFRÆÐIDEILD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.