Fréttablaðið - 25.03.2010, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 25.03.2010, Blaðsíða 28
28 25. mars 2010 FIMMTUDAGUR UMRÆÐAN Björg Sigurvinsdóttir skrifar um barn- vænt samfélag Árið 2009 vakti skólamálanefnd Félags leikskólakennara athygli á barnvænu samfélagi meðal annars með skrifum í dagblöð og í rit kennarasamtakanna, Skólavörðuna. Þetta málefni var sett á starfsáætlun félagsins og segja má að það hafi náð hápunkti með málþingi um barn- vænt samfélag sem haldið var í samstarfi við Sam- tök atvinnulífsins og Heimili og skóla í nóvember síðastliðnum. Tilgangur og markmið með málþing- inu var að skapa tækifæri fyrir hagsmunaaðila til að ræða um barnvænt samfélag út frá ólíkum sjón- arhornum. Til að ná því markmiði voru fengnir framsögumenn úr röðum ólíkra hópa auk þess sem málþingsgestum var gefið tækifæri til að ræða saman í málstofum um mismunandi viðfangsefni. Framsöguerindin voru mjög fróðleg og áhuga- verð. Mismunandi áherslur komu fram hjá frum- mælendum eins og vænta mátti. Fram komu vangaveltur um lengd vinnuvikunnar og að ýmsar rannsóknir bendi til þess að framleiðni minnki ekki þótt vinnutími styttist aðeins. Lengd vinnu- tíma hefur áhrif á tímann sem foreldrar eiga með börnum sínum og sjónum var beint að hver væri æskileg lengd leikskóladvalar. Rætt var um að leikskólar starfa almennt eftir þeirri hugmynda- fræði að börn læri best í gegnum leik og skapandi starf og því yrði að viðhalda til að tryggja að starfið mætti þörfum barna, ásamt því að leikskól- inn starfi alltaf í nánum tengslum við umhverfið og foreldra. Velt var vöngum yfir því hvort Íslend- ingar gætu státað af barnvænu samfélagi og að mjög mikilvægt væri að verja af öllum mætti það góða, sem vissulega væri fjölmargt, sem gert hefur verið síðustu misseri og ár. Lögð var áhersla á að allir í samfélaginu taki ábyrgð á börnunum og velferð þeirra. Málþingsgestir sem töldu 137 unnu í fimm mál- stofum og kynntu hóparnir niðurstöður sínar á málþinginu. Hjá öllum hópum mátti greina áhyggjutón þess efnis að foreldrar hefðu ekki nægan tíma til viðveru með ungum börnum sínum. Það þyrfti að hlusta á rannsóknir, m.a. rannsóknir sem gerðar hafa verið í sambandi við ung börn og tengslamynd- un. Það væri mikilvægt að gefa kost á sveigjanleika og að stytta vinnutímann almennt í þjóðfélaginu. Það myndi auð- velda margt í skipulagi barnafólks við að samræma vinnu og fjölskyldulíf. Einnig væri æskilegt að lengja fæðingarorlofið og var litið til Svíþjóðar í því sambandi en þar er orlofið allt að 18 mánuðir. Bent var á að víða á Norðurlöndunum er samspil milli vinnu foreldra utan heimilis og lengdar dval- artíma í leikskóla. Fram kom að foreldrar mættu vera sterkari þrýstihópur um hagsmuni barna sinna. Því var fagnað að ný lög um leikskóla gera ráð fyrir tilkomu foreldraráða, en með því skapast tækifæri til að efla aðkomu foreldra að starfinu í leikskólum og fá fram þeirra sjónarmið, þarfir og áherslur. Ljóst má vera þegar dregnir eru saman helstu punktar sem komu fram á málþinginu að það er kallað eftir ákveðnum samfélagsbreytingum. Ekki má þó gleyma þeirri jákvæðu umræðu sem fram kom, eins og því frelsi sem við búum við á Íslandi, sem Íslendingar sem hafa búið erlendis dásama gjarnan. Hér er margt mjög jákvætt og má þar t.d. nefna öryggið í umhverfinu og aðgengi allra að góðum leikskólum. Í stuttri blaðagrein sem þess- ari er engin leið að allt komi fram sem fram fór á málþinginu en á slóðinni http://fl.ki.is/pages/1882/ NewsID/1862 má finna samantekt frá umræðu- hópunum þar sem hægt er að kynna sér málefnið betur. Málþingið var vel sótt en hópurinn sem mætti var frekar einsleitur. Þörf er fyrir miklu víðtæk- ari umræðu og að henni þurfa foreldrar, atvinnu- lífið, samtök launafólks og stjórnvöld að koma. Ef allir taka höndum saman, má leiða að því líkum, að þá takist enn betra og farsælla samstarf allra aðila sem væri börnum þessa lands til heilla. Ég hvet þig, lesandi góður, til að láta skoðun þína í ljós með greinaskrifum eða á öðrum þeim vettvangi sem málaflokkurinn á heima. Höfundur er leikskólastjóri og nefndarmaður í skólamálanefnd FL. Hverjir eru málsvarar barna? BJÖRG SIGURVINSDÓTTIR UMRÆÐAN Eyjólfur Þorkelsson skrifar um vaktakerfi á Landspítalanum Fyrst i apr í l kom snemma þetta árið sé tekið mið af Mogganum 20. mars. A.m.k. eru við- brögð Bjarnar Zoëga, for- stjóra LSH, við ábend- ingum almennra lækna varðandi umbyltingu vaktakerfis okkar, brandarakennd svo ekki sé fastar að orði kveðið. Umbyltingu sem á að knýja fram þrátt fyrir hörð mót- mæli lækna. Umbyltingu þar sem öryggi og þjónusta við sjúklinga er lögð undir. Öllu tali um samráð vísa ég til föðurhúsanna. Hvenær hefur það talist samráð að boða breytingar, kynna þær seint og illa til stétt- ar- og fagfélags, svara gagnrýni engu eða með skætingi og lýsa svo yfir að þeir sem ekki kokgleypi katastrófuna geti sagt upp? Hug- myndir LSH um samráð eru því afar „Orwellskar“; fasískar hefði einhver sagt. Í hnotskurn snúast breytingarn- ar um að vinnutími okkar er auk- inn um 4-6 vikur á ársgrundvelli án launauppbótar. Raunar var ekki á vinnutímann bætandi því víða var hann á mörkunum skv. lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Vissulega væri grátbroslegt að stærsta heil- brigðisstofnun þjóðarinnar bryti lög sem skv. fyrstu grein eiga að tryggja heilsusamlegt starfsum- hverfi! En gangi finngálkn for- stjórans eftir þýðir það t.d. hátt í 60 klst. meðalvinnuviku almennra lækna á kvenna- og barna- sviði. Þeirra lækna sem sinna þunguðum og fæð- andi konum og veikum börnum. Er ástæða til að óttast slíkt? Rannsóknir á starfsað- stæðum lækna og tengsl- um við gæði þjónustunnar og öryggi sjúklinga sýna að þreyta eykur hættu á læknamistökum. Að auki vaxa vitræn glöp, svo sem tíðari mistök eða slys, sem og minnkuð afköst, í nær línulegu samhengi við fjölda nátta án nægj- anlegs svefns. Þá er þess ógetið að fyrirhugaðar breytingar fjölga vaktaskiptum sem eykur hættu á meðferðar- eða greiningartöf, auk þess sem meiri líkur eru á að dýrmætar upplýsingar misfarist. En forstjórinn vísar gagnrýni og áhyggjum á bug. Honum „dytti aldrei í hug að gera breytingu sem stefndi öryggi sjúklinga í hættu“. Almennir læknar eru vinnusam- ir og samviskusamir. Til okkar eru gerðar kröfur um framúrskarandi þekkingu, skjóta og góða þjón- ustu, líkn og lækningu á erfiðum tímum í lífi fólks. En við erum líka mannleg. Við erum Íslendingar í kreppu, nýkomin úr námi að reyna að standa skil á námslánum og hús- næði. Við erum ungt fólk, mörg með nýstofnaða fjölskyldu. Og okkur er annt um sjúklingana okkar. Þess vegna ríður nú á að fjöl- miðlar og almenningur allur standi vaktina með almennum læknum áður en brandaragleði forstjórans hleypir LSH í bál og brand. Höfundur er læknir. Brandspítali Íslands? EYJÓLFUR ÞORKELSSON www.penninn.is | pontun@penninn.is Mikið úrval af pappír í öllum stærðum og gerðum. Fínn pappír til að prenta út fermingarboðskort. *Tilboðið gildir til 1. apríl nk. Canon PIXMA prentarar nota FINE prenthaus sem er hannaður til að vinna með ekta Canon blek og ljósmyndapappír. Notaðu ekta Canon blek - til að fá ljósmyndir sem endast ævilangt - til að ná hámarks líftíma á prenthausnum - til að fá nákvæma og fallega liti Notaðu ekta Canon ljósmyndapappír - til að lengja líftíma ljósmynda - til að fá ljósmyndaútprentanir sem þorna strax - til að fá fullkominn glans 20% afsláttur af Canon pappír í verslunum Pennans* Prentaðu út myndirnar í öllum stærðum með bleki og pappír Verið velkomin í verslanir Pennans: Hallarmúla 2, Hafnarstræti 93 Akureyri, Strandgötu 31 Hafnarfirði, Sólvallagötu 2 Keflavík, Dalbraut 1 Akranesi, Hafnarstræti Ísafirði og Strandvegi 54 Vestmannaeyjum. Sími 540 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.