Fréttablaðið - 25.03.2010, Blaðsíða 12
25. mars 2010 FIMMTUDAGUR
Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. hefur til
sölumeðferðar virkan eignarhlut í MP Banka hf.
MP Banki hf. var stofnaður árið 1999 og hét þá MP Verðbréf.
Árið 2003 fékk bankinn fjárfestingabankaleyfi og bauð þá
alhliða fjárfestingarbankaþjónustu. MP Banki fékk fullt
viðskiptabankaleyfi í október 2008 og hóf að taka við innlánum
og séreignarsparnaði til viðbótar við fyrri starfsemi.
Höfuðstöðvar bankans eru í Reykjavík en bankinn rekur einnig
útibú í Vilníus í Litháen.
Tekið er við tilboðum frá fjárfestum sem uppfylla skilyrði þess að
geta talist hæfir fjárfestar samkvæmt 9. tl. 43. gr. laga nr.
108/2007 um verðbréfaviðskipti. Þá skal fjárfestir geta sýnt fram
á að hann hafi fjárhagslegan styrk til að geta staðið undir
fyrirhuguðum kaupum. Áskilinn er réttur til að útiloka þátttöku
fjárfesta ef lagalegar hindranir standa í vegi fyrir því að
viðkomandi geti eignast virkan eignarhlut í bankanum.
Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. tekur við fyrirspurnum á
netfangið fyrirtaekjaradgjof.mp2010@arionbanki.is og veitir
nánari upplýsingar í síma 444-6805.
Veislumatur
með Ora meðlæ
www.ora.is
EINN AF IÐNGÖRÐUNUM Skilanefnd Landsbankans hefur eignast allar eignir Nordic
Partners í Eystrasaltsríkjunum.
VIÐSKIPTI Skilanefnd Landsbank-
ans leysti á þriðjudag til sín allar
eignir fjárfestingarfélagsins Nord-
ic Partners í Lettlandi og er við
það að taka eignir yfir í Danmörku
og einkaþotuleigu í Bretlandi. Til-
kynnt var um yfirtökuna í gær. Nýtt
félag hefur verið reist á rústunum.
Fjárfestar frá Lettlandi keyptu 51
prósent í nýju félagi af skilanefnd,
sem á afganginn. „Lánahagsmunir
bankans eru mjög vel tryggðir með
veði í öllum eignum,“ segir Friðrik
Jóhannsson, sem unnið hefur að
fjárhagslegri endurskipulagningu
félagsins.
Nordic Partners var hugarfóstur
fjármálahagfræðingsins Gísla Þórs
Reynissonar, sem stofnaði félagið
upp úr kaupum á plastverksmiðju
í Lettlandi í einkavæðingarferli
stjórnvalda þar í kringum 1996.
Verksmiðjunni var breytt í iðn-
garða. Þeim fjölgaði í kjölfarið og
urðu mest átta.
Umfang Nordic Partners óx mikið
eftir þetta, svo sem með kaupum á
þjóðþekktum matvælafyrirtækj-
um í Lettlandi, Litháen og Póllandi
auk lóðaeigna. Þá er ótalinn smá-
rekstur hér og í Færeyjum, stofn-
un einkaþotuleigunnar IceJet árið
2006 og kaup á danskri hótelkeðju,
sem meðal annars átti danska glæsi-
hótelið D‘Angleterre.
Nordic Partners greiddi 1,1
milljarð danskra króna fyrir hót-
elin, jafnvirði um tólf milljarða
íslenskra króna á þávirði. Þetta var
talsvert yfir uppsettu verði. Svip-
uðu máli mun gegna um fleiri eignir
félagsins.
Gísli, sem lést langt fyrir aldur
fram í fyrravor, sagði í Fréttablað-
inu í lok árs 2007 að virði eigna-
safns Nordic Partners væri nálægt
hundrað milljörðum króna og
skuldsetningu lága.
Heimildir Fréttablaðsins herma
hins vegar að viðskiptamódel Nord-
ic Partners hafi verið tætingslegt
og rímað illa saman. Landsbankinn
virðist ekki hafa litið málið sömu
augum, enda nær eini lánardrottinn
Nordic Partners. Eftir því sem næst
verður komist námu heildarskuldir
félagsins níutíu milljörðum króna
áður en bankinn tók félagið yfir.
Ljóst er að bankinn mun tapa
tugum milljarða króna. Skilanefndin
segir að haldið verði í eignir þar til
markaðs aðstæður batni. Samkvæmt
heimild um Fréttablaðsins gæti liðið
hátt í áratugur þar til bankinn slepp-
ir hend inni af félaginu.
jonab@frettabladid.is
Saga Nordic
Partners öll
Skilanefnd Landsbankans hefur leyst til sín nær all-
ar eignir fjárfestingarfélags Nordic Partners. Lands-
bankinn tapar tugum milljarða króna á félaginu.
■ Að hluta í eigu skilanefndar
Landsbankans eru sjö matvæla-
fyrirtæki í Eystrasaltsríkjunum.
Velta þeirra nam í fyrra 85 millj-
ónum evra, jafnvirði 14,7 milljarða
króna.
■ Glæsisnekkjan Nordic Princess er
á meðal þeirra eigna sem bank-
inn eignast. Hún er 35 metra löng
og smíðuð árið 2007. Áætlað
verð hennar þá var 1,5 milljarðar
króna.
■ Aðrar eignir eru tengdar iðn-
görðum og fasteignaþróunar-
verkefnum. Velta þeirra nam tíu
milljörðum evra, jafnvirði 1,7
milljarða króna, í fyrra.
■ Í Danmörku eru þrjú hótel, þar
á meðal D‘Angleterre og fimm
þotur einkaþotuleigunnar IceJet.
■ Matvælafyrirtækið Háme á
Tékklandi er ekki inni í yfirtökunni
enda undir öðru félagi.
Nokkrar eignir Nordic Partners
LÖGREGLUMÁL Rannsókn á íkveikj-
unni í Laugarásvídeói í ágústlok
í fyrra lauk fyrir nokkru án þess
að nokkur hefði verið handtekinn.
Málinu verður þó haldið opnu ef
nýjar upplýsingar skyldu berast.
Myndbandaleigan og húsnæði
hennar skemmdust mikið í brun-
anum. Myndskeið úr öryggis-
myndavél sýndi brennuvarginn,
mann með derhúfu og tagl, aka
að leigunni á hvítum jepplingi
og kasta einhverju inn um bréfa-
lúguna. Leit að manninum bar
engan árangur þrátt fyrir ítarlega
rannsókn. - sh
Rannsókn á brunanum í Laugarásvídeói hætt í bili:
Íkveikjan enn óupplýst
LAUGARÁSVÍDEÓ Eigandinn hefur opnað
leiguna að nýju. FRÉTTABLAÐIÐ / ARNÞÓR